Bæjarins besta - 05.02.2003, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2003 11
Tilboð óskast í skrif-
stofuhúsnæði á 3. hæð
í Stjórnsýsluhúsinu,
Hafnarstræti 1, Ísafirði
SALA 13201; skrifstofuhúsnæði á 3.hæð
í Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1, Ísafirði.
Um er að ræða 40,97m² séreign á 3. hæð
eða 54,9m² að skiptar flatarmáli. Brunabóta-
mat er kr. 8.134.000.- og fasteignamat er kr.
3.141.000.-
Húseignin er til sýnis í samráði við Óla M.
Lúðvíksson, símar 450 3715 og 897 3733.
Tilboðseyðublöð liggja frammi á sama stað
og hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7, 105
Reykjavík.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl.
11:00 þann 12. febrúar 2003, þar sem þau
verða opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda
er þess óska.
Foreldrar barna við Grunnskóla Ísafjarðarbæjar
Krefjast úrbóta í húsnæðismálum
Grunnskólans á Ísafirði þegar í stað
„Við undirritaðir foreldrar
barna við Grunnskóla Ísa-
fjarðarbæjar krefjumst þess
að nemendum skólans verði
þegar í stað tryggð fullnægj-
andi aðstaða til náms í hús-
næði sem uppfyllir þær kröfur
sem gerðar eru til nútíma
skólahúsnæðis. Í dag fer
kennsla yngstu bekkjanna
fram í aldargömlum hjalli sem
hvorki heldur vatni né vindum
eða er forsvaranlegur með til-
liti til eldvarna. Foreldrar eru
ekki tilbúnir til að sætta sig
við þetta ástand lengur né bíða
í nokkur ár eftir viðhlítandi
lausn. Skorað er á bæjaryfir-
völd að koma upp færanleg-
um kennslustofum strax í vet-
ur til bráðabirgða fyrir yngstu
bekkina svo að skólahald geti
farið fram með eðlilegum
hætti.“
Þannig hljóðar áskorun til
bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar,
sem liðlega 270 manns, for-
eldrar og aðstandendur barna
í Grunnskólanum á Ísafirði,
skrifuðu undir og afhent var
fulltrúum Ísafjarðarbæjar í
síðustu viku. Eyleif Björg
Hauksdóttir, Guðrún Karls-
dóttir og Ingibjörg Guðný
Kjartansdóttir, mæður barna
í 1. og 2. bekk Grunnskólans
á Ísafirði, afhentu Halldóri
Halldórsyni bæjarstjóra og
Bryndísi Friðgeirsdóttur full-
trúa minnihluta bæjarstjórnar
undirskriftirnar á skrifstofu
bæjarstjóra. Vilja þær með
þessu leggja áherslu á að nú-
verandi aðstaða barna á 2. hæð
gamla barnaskólans sé óvið-
unandi og að til tafarlausra
aðgerða verði að grípa svo að
börnin þurfi ekki að mæta þar
aftur til kennslu í haust.
Fulltrúar bæjarstjórnar og
foreldrarnir ræddu málefni
skólans í rúma klukkustund.
Bæði Halldór og Bryndís voru
sammála foreldrunum í því
að ástandið væri óviðunandi.
Halldór sagði að of mikil orka
hefði farið í það gegnum tíðina
að ræða hvort rífa ætti gamla
barnaskólann en nú lægi fyrir
að ekki væri hægt að rífa hús-
ið, hvort sem menn hefðu
áhuga á því eða ekki. „Húsið
hefur ekki verið friðað form-
lega en húsafriðunarnefnd
hefur gert okkur skýra grein
fyrir því að beitt verði ákvæð-
um um skyndifriðun ef bæjar-
stjórn sýni einhverja tilburði
til að rífa húsið“, sagði Hall-
dór.
Bryndís Friðgeirsdóttir
kenndi um árabil í húsinu og
tók undir sjónarmið foreldra
varðandi erfiðan aðbúnað þar.
Sagði hún að í gegnum tíðina
hefðu kennarar verið smeykir
við eldhættu og fundið fyrir
leka og öðrum vandamálum í
húsinu. Í máli fundarmanna
kom þó fram að ekki væri við
húsið að sakast, sem gæti ver-
ið hin mesta prýði, heldur
frekar áralanga vanrækslu og
að það uppfyllti ekki lengur
þær kröfur sem gerðar væru
til húsnæðis fyrir barnakenn-
slu.
„Við sjáum að húsið er ótrú-
lega vel byggt, að það skuli
standa uppi, miðað við það
viðhaldsleysi sem það hefur
mátt þola“, segir Bryndís.
Lagði hún áherslu á að bygg-
ingarsaga skólahúsanna væri
að hennar dómi hreinasta
hörmung sem staðið hefði yfir
afar lengi. Menn hefðu verið
fastir í því gegnum tíðina að
rífast um byggingar og ekki
tekist að horfa fram á við.
„Húsbyggingamál Grunn-
skólans snúast ekki um gamla
barnaskólahúsið. Húsafriðun-
arnefnd er ekki blóraböggull-
inn í málinu. Það eina sem
hefur komið út þessu hug-
myndaflugi er 100 milljón
króna bráðabirgðalausn úti í
Kaupfélagi“, sagði Bryndís.
Halldór Halldórsson grein-
di frá því að nú væri starfandi
undirbúningshópur vegna
byggingar framtíðarhúsnæðis
fyrir Grunnskólann á Ísafirði
og að honum væri ætlað vinna
hratt á grunni þeirra tillagna
sem komu fram í hugmynda-
samkeppni nú í vor. Honum
væri m.a. falið að leysa það
vandamál hvað yrði um börn-
in í haust ef til framkvæmda
kæmi en sagði vandkvæðum
bundið að koma við færanleg-
um kennslustofum vegna
plássleysis. Vænlegra þætti að
reisa hið fyrsta byggingu sem
félli inn í framtíðarmynd
skólahúsnæðisins og hefði 6
til 8 kennslustofur, þannig að
hægt yrði að rýma gamla
barnaskólann.
Í lok fundarins lögðu mæð-
urnar áherslu á það sjónarmið
sitt að um væri að ræða
ófremdarástand og að börnin
ættu ekki að þurfa að fara upp
á 2. hæðina í gamla barnaskól-
anum aftur í haust. Halldór
tók undir það og segir það
vera stefnu bæjarins að bæta
úr þessum málum. „Fyrst var
að leysa úr fjárhagsvandræð-
um sveitarfélagsins, nú getum
við farið að gera eitthvað.
Hérna áður fyrr var bara hægt
að tala því að það voru engir
peningar til“, sagði bæjar-
stjóri.
Bryndís Friðgeirsdóttir, Guðrún Karlsdóttir, Halldór Halldórsson, Ingibjörg Kjartansdóttir og Eyleif Hauksdóttir.
Það var glatt á hjalla á leikskólanum Sólborg á Ísafirði í kaffinu á mánudagsmorgun þegar nemendur og kennarar
héldu upp á fimm ára afmæli skólans. Öll börnin á Sólborg sungu saman og gæddu sér á forkunnarfögrum afmælis-
kringlum frá Bakaranum sem á var glassúr í einkennislit hverrar deildar. Ingigerður Stefánsdóttir leikskólastjóri seg-
ir að afmæliskringlurnar og söngurinn hafi fallið í góðan jarðveg hjá börnunum. Þegar mun vera farið að hugsa
næstu fimm ár fram í tímann og ætlunin er að halda enn betur upp á tíu ára afmælið þegar að því kemur. Meðfylgjandi
mynd var tekin í afmælisfagnaðinum á Sólborg.
Fimm ár frá opnun leikskólans Sólborgar
05.PM5 18.4.2017, 10:2311