Bæjarins besta - 26.11.2003, Síða 1
Brennandi
áhugi fyrir
að „rífa upp“
Vestfirði
– sjá viðtal í miðopnu við Einar Pétursson bæjarstjóra í Bolungarvík
Miðvikudagur 26. nóvember 2003 • 47. tbl. • 20. árg.
ÓHÁÐ Á V E S T F J Ö R Ð U MFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Veffang: www.bb.is • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 250 m/vsk
Bolungarvíkurkaupstaður fær minnst úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
Súðavíkurhreppur fær langmest
Súðavíkurhreppur fékk hæst
framlög á hvern íbúa úr Jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga á síð-
asta ári af sveitarfélögum á
Vestfjörðum eða 203 þúsund
krónur. Bolungarvík fær 62
þúsund sem er minnst á hvern
íbúa. Næst hæsta sveitarfélag-
ið er Hólmavík með 152 þús-
und krónur á íbúa.
Þar á eftir koma Reykhóla-
hreppur með 141 þúsund,
Árneshreppur með 138 þús-
und, Broddaneshreppur með
130 þúsund, Vesturbyggð með
117 þúsund og Tálknafjörður
með 116 þúsund krónur. Lest-
ina reka síðan Kaldrananes-
hreppur sem fékk 95 þúsund
krónur, Bæjarhreppur með 88
þúsund, Ísafjarðarbær með 66
þúsund króna framlag og loks
Bolungarvík.
Heildarframlög Jöfnunar-
sjóðs til Súðavíkurhrepps
námu á síðasta ári tæpum 48
milljónum króna. Til Ísafjarð-
arbæjar var framlagið 274
milljónir króna og til Bolung-
arvíkur 60 milljónir króna.
Hlutverk Jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga er að jafna mis-
munandi útgjaldaþörf og skatt-
tekjur sveitarfélaga með fram-
lögum úr sjóðnum. Eðli máls-
ins samkvæmt eru því fámenn-
ari sveitarfélög að fá að jafnaði
hærri framlög á hvern íbúa en
þau fjölmennari.
Til samanburðar má nefna
að Akranes fékk úthlutað 25
þúsund á íbúa, Skagafjörður
81 þús. og Fjarðabyggð 56
þús. krónum. – hj@bb.is
Ísafjörður
Slasaðist
á höfði
Vinnuslys varð við
hafnarframkvæmdir á Ás-
geirsbakka í Ísafjarðarhöfn
síðdegis á laugardag. Slys-
ið varð með þeim hætti að
skófla moksturstækis rakst
í höfuð eins starfsmanns
við framkvæmdirnar.
Hlaut hann mikið sár á
höfði og var fluttur á
sjúkrahús. Meiðsli reynd-
ust þó minni en talið var í
fyrstu. Sauma þurfti skurði
á höfði en hann slapp við
brot. – hj@bb.is
47.PM5 18.4.2017, 13:061