Bæjarins besta - 26.11.2003, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
Afmælisbarnið ásamt frænkum sínum Jónínu og Margréti Sanders.
Herdís Albertsdótt-
ir fagnar 95 árum
Einn af elstu borgurum
Ísafjarðar, Herdís Al-
bertsdóttir, átti 95 ára
afmæli á miðvikudag í
síðustu viku. Herdís
hefur ávallt gefið svoköll-
uðu kynslóðabili langt
nef og sannað að aldur er
afstætt hugtak. Hún býr
ennþá í húsi sínu í Sund-
stræti þar sem nokkrar
kynslóðir dokkupúka hafa
notið nærveru hennar og
hjálpsemi. Í tilefni dagsins
komu nokkrir ættingjar
hennar saman á heimili
barnabarns hennar
Kristjönu Sigurðar-dótt-
ur. Ljósmyndari blaðsins
var á staðnum og tók
meðfylgjandi myndir.
Herdís með Kristjönu og hennar manni Gunnlaugi Gunnlaugssyni.
Hólskirkja í Bolungarvík
Hvalbein undir gólfi
Hvalbein, sem ætla má að
sé hryggjarliður, kom í ljós
undir gólfinu í Hólskirkju í
Bolungarvík þegar verið var
að grafa þar fyrir skömmu.
Halldór Páll Eydal, kirkju-
vörður í Hólskirkju, segir eng-
ar hugmyndir uppi um hvers
vegna beinið hafi verið þarna
en fundurinn hafi komið
mönnum á óvart.
Garðar Guðmundsson, forn-
leifafræðingur, sem sá um
uppgröft við Hólskirkju í sum-
ar segist ekki geta sagt til um
af hverju hvalbeinið hafi verið
þarna. Þó segir hann að bein
af þessu tagi hafi verið notuð í
margvíslegum tilgangi áður
fyrr. „Ég verð samt sem áður
að telja ólíklegt að beinið sé í
nokkru samhengi við þau
mannvirki sem við sáum þarna
undir í sumar því það lá svo
ofarlega“, sagði Garðar.
Hóll er talin landnámsjörð
og situr kirkjan á mannvistar-
lögum. Endurbætur hafa staðið
yfir á kirkjunni síðan í sumar
og hafa m.a. gólfbitar verið
réttir af og gólffjalirnar teknar
upp. Að auki hefur verið grafið
niður með undirstöðum kirkj-
unnar.
– kristinn@bb.is
Hvalbeinið sem fannst undir Hólskirkju.
47.PM5 18.4.2017, 13:066