Bæjarins besta - 26.11.2003, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
Arnar G. Hinriksson hdl.
Silfurtorgi 1 • Ísafirði • Sími: 456 4144 • Fax: 456 4243
Fasteignaviðskipti
Hef til sölu
fasteignir víða
á Vestfjörðum
Allar nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu
maður vikunnar
Nafn: Birna Lárusdóttir.
Fædd/-ur, hvar og hvenær: Í Reykjavík 14.03.1966.
Atvinna: Ég sit í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar og sinni alls-
kyns öðrum pólitískum störfum og það hefur verið aðal-
vinnan mín undanfarin ár. Svo gríp ég í greinarskrif. ritstjórn-
arstörf og ýmis verkefni þess utan .
Fjölskylda: Bý með Hallgrími Kjartanssyni, lækni, og við
eigum þrjá orkubolta: Heklu (5) og tvíburana Hilmi og Huga
(2).
Helstu áhugamál: Pólitíkin tekur yfir helstu hobbístund-
irnar en þegar tími vinnst til fer ég á góða tónleika, í leikhús
eða bíó. Svo vorum við hjúin bæði á kafi í vélsleðamennsku
hér einu sinni en hann sér um þá deild eftir að börnin komu
– þ.e. að segja ef það snjóar!.
Bifreið: Við eigum svartan Toyota Landcruiser 100 árgerð
1998.
Hvernig bíl vildir þú helst eiga? Í gamla daga var drauma-
bíllinn gul Corvetta en þegar árin færðust yfir tók skynsemin
völdin og ég get ekki ímyndað mér betri bíl en þann sem ég
á í dag.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst lítill? Flug-
freyja!!! Ég er bara svo flugveik að það hefði seint gengið
upp.
Uppáhalds matur? Ég er alltof mikið fyrir góðan mat og á
erfitt með að gera upp á milli en ef fjölskyldan á að svara
þessu fyrir mig, þá hefðu þau hrópað í kór: Rjómaís!
Versti matur sem þú hefur smakkað? Ég verð seint talin
matvönd en þegar ég smakkaði færeyskt skerpikjöt í fyrsta
sinn, 18 ára gömul, þá fór nú um mig. Síðan hafa bragðlauk-
arnir þroskast mjög (m.a. með hjálp frá hákarli og kæstri
skötu) og sennilega þætti mér skerpikjötið bara gott í dag.
Uppáhalds drykkur? Af óáfengu verð ég að nefna espresso
kaffi. Veit fátt betra en vel lagaðan cappu-chino. Í áfengis-
deildinni eru það helst góð rauðvín og eru vín frá Wolf
Blass í uppáhaldi um þessar mundir.
Uppáhalds tónlist? Svolítið gamaldags djass á borð við
Villa Valla plötuna og Ellu Fitzgerald.
Uppáhalds íþróttamaður eða félag? Ég er ekki mikil
áhugakona um íþróttir en hef fylgst af aðdáun með Magnúsi
íþróttaálfi og hann fólki upp á síðkastið í gegnum Latabæjar-
átakið. Hann er góð fyrirmynd og á heiður skilin fyrir eljuna.
Mér finnst það líka gott ef hann græðir á henni. Ef ég á
annað borð fer á íþróttaleiki (sem er mjög sjaldan) þá er
það til að horfa á körfubolta og þá er auðvitað KFÍ uppáhalds-
liðið.
Uppáhalds sjónvarpsefni? Fréttir, velgerðir heimildar-
þættir – einkum breskir – og svo nokkrar bandarískar syrp-
ur eins og Frasier og Six feet under.
Uppáhalds vefsíðan? Smjaðurlaust er það bb.is.
Besta kvikmynd sem þú hefur séð? Úff – þær eru svo
margar, Af íslenskum eru það Mávahlátur og Ungfrúin
góða og húsið. Og svo auðvitað Börn náttúrunnar sem Lóa
tengdamanna birtist í. Af erlendum myndum get ég nefnt
Chocolat og Festen og svo fannst mér Matrix myndin góð.
Fallegasti staður hérlendis? Skutulsfjörðurinn í logni og
heiðskíru. Hann er einstakt samspil þéttbýlis og náttúru.
Fallegasti staður erlendis? Sá staður sem kemur fyrst
upp í hugann er nánasta umhverfi eldfjallsins Mt. St. Hel-
ens í Washington fylki. Ótrúlegur staður.
Ertu hjátrúarfull(ur)? Nei.
Uppáhalds heimilistækið? Kaffikannan og upp-þvottavél-
in. Þau gefa lífinu lit.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Knúsa börn-
in mín.
Hvað fer mest í taugarnar á þér og hvers vegna?
Óheiðarleiki. Ég þoli ekki þegar fólk stendur ekki við það
sem það segir.
Hvað gerir þú til að láta þér líða vel? Utan heimilis er gott
að fara í labbitúr í góðu veðri og svo nýt ég þess að fara út
að borða í rólegheitunum. Heima er mjög vinsælt að leigja
spólu, setja nammi í skál og njóta svo.
Áttu þér leyndan draum sem þú ætlar að láta ræt-ast?
Já, hver á það ekki?
Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í? Það
yrði of langt mál að segja frá því hræðilega atviki en yfirleitt
þykir mér óskaplega neyðarlegt þegar ég man ekki nöfn á
fólki eða kem því ekki fyrir mig. Ég tek út fyrir það.
Ef þú værir bæjarstjóri í einn dag, hverju myndir þú
breyta? Ég myndi engu breyta því Halldór bæjarstjóri er að
gera það sem gera þarf.
Lífsmottó? Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi.
Ætlaði að
verða flug-
freyja en er
bara svo
flugveik
Það er sjálfsagt að bera í
bakkafullan lækinn að ætla að
skrifa um samgöngumál á
Vestfjörðum, svo mikil um-
ræða hefur verið um þau mál
að undanförnu þó segja megi
að sú umræða hafi nánast öll
verið að aðra höndina, þ.e.a.s.
um veg yfir Tröllatunguheiði
til að stytta leiðina frá Ísafirði
til Reykjavíkur. Ég velti því
fyrir mér hvort okkur vanti
enn eina heiðina til að fara
yfir. Aka yfir Steingrímsfjarð-
arheiði til þess að aka svo aftur
yfir Tröllatunguheiði og kom-
ast þar í Reykhólasveit og
áfram til Reykjavíkur. Er það
þetta sem við viljum?
Þegar ekið er um Stein-
grímsfjarðarheiði er komið að
afleggjara inn á Þorskafjarðar-
heiði sem liggur í svipaðri
hæð, en vegurinn um Þorska-
fjarðarheiði er allur meira og
minna niðurgrafinn eða liggur
utan í moldarbörðum þar sem
hinn minnsti skafrenningur er
fljótur að fylla upp í. Þó er
þessi vegur fær fyrir flesta bíla
nú um miðjan nóvember.
Mig langar að benda á allar
þær umræður sem fram fara í
heiminum í dag um hlýnandi
veðurfar á norðurhveli jarðar.
Segir það okkur ekki styttri
vetur og minni snjó, sem raun-
in hefur verið undanfarin ár.
Ég hef hvergi séð þessi atriði
tekin með í reikninginn þegar
verið er að ræða um sam-
göngumál á Vestfjörðum eða
annars staðar. Því spyr ég: Er
ekki kominn tími til að kanna
í alvöru hvort ekki sé jafn gott
eða kannski betra að byggja
upphækkaðan veg yfir Þorska-
fjarðarheiði niður í Þorska-
fjörð og fá með því styttri leið
til Reykjavíkur – og sjálfsagt
ódýrari valkost.
Ég er ekki viss um að sú
leið verði neitt erfiðari en veg-
ur yfir Tröllatunguheiði eða
Steingrímsfjarðarheiði að vetri
til. Einnig má benda á að við
höfum þó alltaf leiðina suður
Strandir til vara. Það er að
segja ef Þorskafjarðarheiði
lokast á undan Steingríms-
fjarðarheiði sem ég held að
verði afar sjaldan vegna þess
að mér hefur verið sagt að
mesti snjórinn sé oftast í Lága-
dalnum.
Ég legg því til og skora á
alla þá sem með þessi mál fara
að skoða þessa leið í alvöru
áður en farið verður í rándýrar
framkvæmdir annars staðar.
Ég vil einnig benda á að fyrir
nokkrum árum var Einari K.
Guðfinnssyni, sem þá var í
samgöngunefnd, afhentur listi
með undirskriftum fjölda
manns um að þessi leið verði
valin. Hins vegar vil ég líta
svo á að þetta verði leið til
bráðabirgða, þ.e.a.s. í nokkur
ár eða þangað til alvöru jarð-
göng verða gerð úr Ísafirði,
með tengingu í Þorskafjörð
annars vegar og hins vegar í
Kollafjörð. Þá fyrst tel ég að
Vestfirðir verði komnir í
varanlegt samband við þjóð-
vegakerfi landsins.
Og svo að lokum um jarð-
göng milli Dýrafjarðar og Arn-
arfjarðar. Erum við betur sett
komin til Arnarfjarðar? Og
hvað svo? Þá er leiðin um
Dynjandisheiði eftir. Þarf ekki
að leysa það mál samtímis og
þá hvernig?
– Sigurður Ólafsson.
Sigurður Ólafsson á Ísafirði skrifar
Vega- og samgöngumál
Forsvarsmenn barnafata-
verslunarinnar Leggs og skelj-
ar á Ísafirði hefur heiðrað tvö
pör nýbakaðra foreldra fyrir
að hafa orðið við áskorun
þeirra um að eignast fleiri
börn. Verslunin er 20 ára um
þessar mundir og var haldið
upp á þau tímamót á föstudag
og laugardag.
Aðspurð um uppátækið seg-
ir Svanhildur Þórðardóttir,
kaupmaður, að þegar verslunin
flutti í nýtt húsnæði í miðbæ
Ísafjarðar í febrúar á þessu ári
hafi hún birt í auglýsingu
áskorun til Vestfirðinga um
að fjölga sér og heitið verð-
launum fyrir fyrsta barnið sem
fæddist níu mánuðum frá þeim
degi.
„Ég var nú ekki alveg búin
að reikna þetta út þá en það
vill svo skemmtilega til að nú
rúmum níu mánuðum seinna
erum við að halda upp á afmæli
búðarinnar. Í ofanálag vorum
við svo heppin að það fæddust
bæði strákur og stelpa, sama
daginn“, sagði Svanhildur.
Á meðfylgjandi mynd má
sjá kaupkonurnar Svanhildi og
Huldu Guðmundsdóttur ásamt
nýbökum foreldrum, þeim
Gísla Kristjánssyni, Önnu
Kristínu Svansdóttur og ný-
fæddri dóttur þeirra auk Svein-
bjargar Sveinsdóttur og Krist-
ins Halldórssonar með dreng-
inn sinn. – kristinn@bb.is
Urðu við áskorun og
fjölguðu Vestfirðingum
Barnafataverslunin Leggur og skel á Ísafirði 20 ára
Svanhildur, Gísli, Anna Kristín, Sveinbjörg, Kristinn og Hulda ásamt börnunum.
47.PM5 18.4.2017, 13:068