Bæjarins besta - 26.11.2003, Qupperneq 10
1 0 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
Brennandi áhugi fyrir
að „rífa upp“ Vestfirði
Einar Pétursson tók við starfi bæjarstjóra
í Bolungarvík um síðustu áramót þegar
forveri hans, Ólafur Kristjánsson,
lét af störfum eftir að hafa leitt
sveitarfélagið um árabil. Einar er
fæddur og uppalinn í Bolungarvík
og því vel hnútum kunnur í bæjar-
félaginu. Hann var við nám í Við-
skiptaháskólanum á Bifröst áður
en hann tók við stjórntaumunum í
heimabænum síðasta vetur. Nú
hefur hann gegnt starfinu í tæpt
ár og því við hæfi að spyrja
hvernig honum komi starfið
og verkefn-
in fyrir
sjónir.
„Varðandi starfið sem slíkt
þá er það ekki mjög frábrugðið
því sem ég átti von á. Að vísu
er það svolítið umfangsmeira
en ég bjóst við hvað varðar
fjölbreytni þeirra verkefna sem
koma inn á borð bæjarstjóra.
Í rekstri sveitarfélagsins
stendur það upp úr í mínum
huga hvað sveitarfélögum er
sniðinn þröngur stakkur í
sínum fjármálaum, ég hafði
ekki gert mér fulla grein fyrir
því. Þá er ég ekki bara að tala
um Bolungarvík heldur flest
sveitarfélög í landinu.“
– Þetta sjónarmið hefur ein-
mitt heyrst víða að undanförnu
að það standi lítið út af hjá
sveitarfélögunum þegar þau
hafi gert upp sinn rekstur.
„Í flestum tilvikum telst það
gott ef eitthvað stendur út af,
oftar en ekki er það á hinn
veginn. Þess vegna er það
mjög brýnt verkefni að ráðast
í endurskoðun á tekjustofnum
sveitarfélaga gagnvart ríkinu.
Sveitarfélögin tóku við aukn-
um verkefnum en það er ljóst
að kostnaður við þau hefur
farið fram úr tekjustofnunum
sem fylgdu með í upphafi.“
– Hvaða mál eru efst á baugi
hjá sveitarstjórnarmönnum í
Bolungarvík í dag?
„Fjármálin og atvinnumálin
eru náttúrlega það sem við er-
um að kljást við. Þó að bæjar-
sjóður sem rekstrareining sé
ekki mjög skuldsettur þá eru
heildarskuldir samstæðunnar
miklar. Okkar helsti vandi
eru miklar skuldir á félags-
lega húsnæðiskerfinu okkar.
Ég myndi segja að það væri
númer 1, 2 og 3 að koma
þeim málum í betra horf.“
– Hvaða lausnir sérðu
fyrir þér?
„Ég kann nú enga ein-
falda lausn á vanda félags-
lega húsnæðiskerfisins.
Varasjóður húsnæðismála
var settur upp til að koma
til hjálpar en hann hefur
ekki nýst okkur mikið þar
sem markaðsaðstæður hér
hafa verið þannig að við höfum
ekki getað selt íbúðir út úr
kerfinu. Þegar glímt er við jafn
stóran vanda og Bolungarvík
á við að etja í húsnæðiskerfinu
sé ég ekki annað í stöðunni en
að til einhverskonar stjórn-
valdsaðgerða þurfi að koma.
Ég sé ekki aðra leið en að
skuldirnar verði afskrifaðar að
hluta.“
– Áttu von á að fá einhver
viðbrögð við þess konar mála-
leitan?
„Já ég á von á því, ég held
að menn séu farnir að sjá að
sveitarfélögin geti ekki staðið
undir þessum skuldbindingum
ein og sér.“
Horfum á
svæðið sem heild
„Við horfum upp á að fram-
lög Jöfnunarsjóðs sveitarfé-
laga til minni sveitarfélaga
minnka frá því sem verið hef-
ur. Nýjar reglur sjóðsins voru
samdar með það fyrir augum
að stuðla að sameiningu sveit-
arfélaga. Þannig var klipið af
þeim minni. Það má segja að
þetta séu óbeinar þvinganir í
átt til sameiningar.“
– Í umræðunni hafa heyrst
vangaveltur um hvort verið sé
að skikka sveitarfélög til sam-
einingar. Hvað sýnist þér?
„Ég á ekki von á að menn
fari þá leið að þröngva sveitar-
félögum saman með lagasetn-
ingu t.d. með því að setja lág-
marksíbúafjölda við 1.000
íbúa eða eitthvað álíka. Ég hef
trú á því að menn fái að taka
þessar ákvarðanir heima í hér-
aði áfram. Hins vegar er ekki
hægt að horfa framhjá því að
þegar tekjur minni sveitarfé-
laganna dragast saman vegna
breyttra reglna jöfnunarsjóðs
þá felur það í sér óbeina þving-
un.“
– Hvaða skoðun hafa menn
á því, er æskilegt að steypa
stórum svæðum saman í eitt
sveitarfélag? Hvernig væri t.d.
að hafa einungis eitt sveitar-
félag á norðanverðum Vest-
fjörðum.
„Mér finnst við ættum að
horfa á svæðið sem eina heild,
hvort sem það skiptist niður í
þrjú sveitarfélög eða eitt.
Grunnurinn að því að við get-
um lifað hérna öll saman er að
við leggjumst ekki í skotgraf-
irnar hvert á móti öðru heldur
störfum saman, hvort sem við
borgum útsvar til sama sveitar-
félagsins eða ekki.“
Útilokar ekki
samrekstur
– Stundum er sagt að sam-
eining sveitarfélaga sé ekki
endilega besta aðferðin til að
ná fram samlegðaráhrifum og
þeim fylgi sá ókostur að sjón-
armið íbúa fámennari hverfa
fjölkjarnasveitarfélaga verði
jafnvel afskipt. Hvað segir þú
um þetta?
„Það segir sig náttúrlega
sjálft að íbúar fámennari kjarn-
anna verða nokkurskonar
minnihlutahópar. En íbúar
þessara byggðakjarna geta
samt orðið sterkir þrýstihópar
innan sveitarfélagsins.
Ég held að það sé ekki svo
mikill fjárhagslegur ávinning-
ur af sameiningu. Ef við tökum
jöfnunarsjóðinn út úr dæminu
þá held ég að peningarnir séu
ekki stóri ávinningurinn við
sameiningu en vissulega eru
rök fyrir því að stjórnsýslulega
séð sé hagræði af stærri sveit-
arfélögum. Þá á ég við að það
er auðveldara að bjóða upp á
þjónustu fagfólks hjá stærri
einingum og auðvitað hefur
það heilmikið að segja t.d. í
félagsmálum og fræðslumál-
um, þessum stóru málaflokk-
um sem alltaf eru að vaxa.
Lítil sveitarfélög hafa einfald-
lega ekki bolmagn til að standa
undir menntuðu fólki í hverj-
um málaflokki.“
– Á þessu ári hefur tekið til
starfa sameiginleg barna-
verndarnefnd fyrir norðan-
verða Vestfirði, munum við
jafnvel sjá að öllu svæðinu
verði þjónað af sameiginlegri
félagsmálastofnun?
„Ég myndi ekki útiloka að
félagsmálahluti sveitarfélag-
anna yrði rekinn saman til að
ná fram þeirri sérhæfingu sem
ég var að tala um. Á Ólafsfirði
og Dalvík er t.d. rekin sameig-
inleg félagsþjónusta þó um tvö
sveitarfélög sé að ræða. Þannig
ná þeir að halda í sérhæft
starfsfólk. Ég held einmitt að
það sé góð reynsla af sameig-
inlegu barnaverndarnefndinni
eða hef a.m.k. ekki orðið var
við annað.“
Má ekki fara út
í persónupólitík
– Á síðustu árum hafa menn
byggt upp blómlega útgerð
smábáta í Bolungarvík í kring-
um krókaaflahámarkskerfið
eftir mörg áföll árin á undan,
hvernig meturðu undirstöður
vinnumarkaðarins í Bolung-
arvík í dag?
„Ég held að við byggjum á
nokkuð góðum grunni í Bol-
ungarvík í dag en í sjálfu sér
er alltaf hálfgerð óvissa í kring-
um sjávarútveginn og þarf ekki
mikið út af að bregða til að
hafa mikil áhrif á svona bæj-
arfélag, einfaldlega vegna þess
að við erum bara með eitt risa-
stórt egg í einni körfu. Fjöl-
breytnin er svo lítil sem gerir
það að verkum að allar sveiflur
í sjávarútvegi hafa mjög mikil
áhrif. Það er einmitt þessi fá-
breytni í atvinnulífinu sem við
viljum reyna að koma okkur
út úr.“
– Nú hafa verið mjög heitar
umræður um sjávarútvegsmál-
in að undanförnu. Hvað finnst
bæjarstjóranum í Bolungarvík
um þessa sjávarútvegspólitík?
„Sjávarútvegspólitíkin ein-
kennist af sífelldum slag hags-
munahópa sem er að mörgu
47.PM5 18.4.2017, 13:0610