Bæjarins besta


Bæjarins besta - 26.11.2003, Page 11

Bæjarins besta - 26.11.2003, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2003 11Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is leyti erfitt að búa við vegna þeirrar óvissu sem skapast í atvinnugreininni. Menn eru að takast á um leiðir og það er mjög eðlilegt að menn skiptist á skoðunum um sjávarútvegs- mál, þau er eru langstærsta hagsmunamál byggðanna. Við verðum að vara okkur á því að persónugera málin ekki of mikið þegar við tökumst á um sjávarútvegsmál eða önnur hagsmunamál okkar. Það má bara alls ekki í svona litlum samfélögum. Menn verða að reyna að ná saman um það sem kemur sér best fyrir okkur öll.“ Ekki búið á Vestfjörðum í neyð – Hvernig metur þú styrk- leika Bolungarvíkur, er t.d. ekki óhætt að segja að bærinn sé leiðandi í rekstri grunnskóla á svæðinu? Hann hefur a.m.k. komið mjög vel út úr sam- ræmdum prófum í nokkuð mörg ár. „Ég tel að við eigum gríðar- lega góðan grunnskóla og sé- um vel samkeppnishæfir á því sviði. Á samræmdum prófum 2003 í 10. bekk er grunnskóli Bolungarvíkur í fyrsta sæti í íslensku og stærðfræði en í ekki hérna af því að við þurfum þess heldur af því að okkur líður vel. Við erum ekki hérna í neyð heldur af því að við viljum vera hérna. Útivistar- og afþreyingarmöguleikar eru t.d. mjög miklir á Vestfjörð- um.“ Íbúarnir beini ork- unni í réttan farveg – Nú er að fara í gang vinna verkefnisstjórnar iðnaðarráðu- neytisins sem á að gera tillögur að aðgerðum í byggðamálum á Vestfjörðum. Hvernig metur þú stöðuna í byggðamálunum? „Ég er nú bara bjartsýnn, það má segja að verkefnis- stjórninni sé falið að fram- fylgja byggðaáætlun fyrir Vestfirði sem er hið besta mál. Ég er viss um að nefndarmenn og allir vestfirðingar hafi það að markmiði að sem flestar hugmyndir úr byggðaáætlun fyrir Vestfirði verði að veru- leika.“ – Heldurðu að jafnvel sé verið að gera of mikið úr þeirri þróun sem hefur átt sér stað undanfarin ár? „Að minnsta kosti er ég ekki frá því að oft sé gengið full langt í að mála skrattann á vegginn. Margir ganga ansi langt í svartsýninni og bölsýn- öðru sæti í ensku og dönsku í Norðvestur kjördæmi – meira getum við varla farið fram á. Krakkarnir okkar, kennararnir og stjórnendurnir eru að standa sig alveg gríðarlega vel og mjög gott starf unnið í skólum bæjarfélagsins.“ – Er það ekki rétt skilið að Bolungarvíkurkaupstaður hafi lagt mikla áherslu á fjöl- skylduvænt umhverfi? Skóla- málin hafa t.d. verið í brenni- depli lengi og nú síðustu ár hefur verkefnið Heilsubærinn Bolungarvík verið í gangi. Það mætti kannski segja að heil- brigð sál í hraustum líkama væru einkunnarorð bæjarins? „Jú við höfum lagt áherslu á Heilsubæinn Bolungarvík og líka talað um Bolungarvík sem bæ fyrir barnafólk. Við leggj- um mikla áherslu á að fjöl- skyldan geti notið sín og allir hafi eitthvað fyrir stafni. Hvort sem það eru íþróttir, tónlistar- iðkun eða önnur afþreying þá viljum við að framboðið sé fjölbreytt. Íþróttafélögin eru að skila frábæru starfi og menningarlíf fjölbreytt enda öflugt fólk sem dregur vagninn á þessum sviðum. Ég held að við Vestfirðingar þurfum að temja okkur í aukn- um mæli að koma þeim skila- boðum áleiðis að við búum inni og eiga erfitt með að sjá björtu hliðarnar. Það styttir alltaf upp og ég held að það sé að gerast núna. Byggðamálin snúast fyrst og fremst um viðhorf fólksins á stöðunum. Ef það er jákvætt og beinir sinni orku í réttan farveg þá blómstra bæirnir“ Ekki ósáttur við aðfinnslur bæjarbúa –Maður ímyndar sér að starfinu fylgi töluvert annríki, hvernig áhrif hefur það haft á þig persónulega? „Því getur náttúrlega fylgt ys og þys. Það pirrar mig stundum þegar ég kem heim eftir langan vinnudag að mér finnst ég ekki hafa gert neitt þann daginn. Þá er ég jafnvel búinn að sitja nokkra fundi, taka á móti fólki og tala mikið í síma en lítið áþreifanlegt situr eftir. En sem betur fer eru dag- arnir eins ólíkir og þeir eru margir, því inn á milli koma dagar sem ég næ að einbeita mér að öðrum verkefnum.“ – Reynirðu þá að líta til lengri tíma? „Maður verður að gera það því á þessu sviði verða engar byltingar frá því maður kemur í vinnuna á morgnana og fer aftur heim að loknum vinnu- degi. Það gildir í þessu starfi að dropinn holar steininn“ – Þegar menn eru komnir í það hlutverk að vera leiðtogar fyrir heilan bæ er þá eitthvað einkalíf eftir? Er ekki sama hvert þú ferð það er alls staðar farið að ræða við þig bæjar- málin og pólitíkina? „Jú jú en ég gerði mér líka grein fyrir því áður en ég tók við starfinu. Menn þurfa að átta sig á því áður en þeir taka svona starf að sér að þetta er 24 tíma vinna. Hvort sem ég er í sundlauginni eða úti á gangi þá er alltaf verið að benda mér á eitthvað sem betur mætti fara. Það er bara mjög gott því betur sjá augu en auga. Ég er ekki ósáttur við þann þátt starfsins“ Verðum að draga vagninn sjálf – Þú ert fæddur og uppalinn Bolvíkingur. Þekkirðu þá ekki vel málin sem brenna á bæjar- búum og fólkið sem þú ert að ræða við? „Jú auðvitað er maður meira og minna kunnugur öllum. Það má velta því fyrir sér hvort það er kostur eða galli en ég held að þegar upp er staðið séu kostirnir fleiri. Vegna þess hefur maður t.d. átt auðveldara með að setja sig fljótt inn í málefni bæjarins. Auðvitað geta tengslin þvælst fyrir líka, þannig verður maður að passa að halda ákveðnar línur í þeim efnum.“ – Getum við sagt að þegar á heildina er litið horfir þú björt- um augum á framtíðina fyrir hönd Bolvíkinga? „Já ég geri það, ég er bjart- sýnn á framtíð svæðisins. Sér- staklega hefur mér þótt ástæða til þess að undanförnu. Maður er að heyra mjög jákvæð um- mæli frá stjórnmálamönnum á landsvísu. Utanríkisráðherra lýsti því yfir fyrir skömmu að nú væri komið að Vestfjörð- unum og iðnaðarráðherra var jákvæð í okkar garð á fundi hér fyrir skömmu. Ég heyri ekki annað á ráðamönnum en það sé brennandi áhugi fyrir því að aðstoða okkur Vestfirð- inga við að rífa upp þessi sam- félög. Það gerist auðvitað ekki bara með einhverjum aðgerð- um fyrir sunnan. Við verðum að draga vagninn sjálf.“ – Myndirðu segja að tími bölmóðsins sé liðinn? „Já það er alveg klárt“, sagði Einar Pétursson, bæjarstjóri Bolvíkinga. – kristinn@bb.is 47.PM5 18.4.2017, 13:0611

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.