Bæjarins besta - 26.11.2003, Side 14
1 4 MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
Smurbrauðstíðin haf-
in hjá SKG-veitingum
Guðlaug Jónsdóttir,
matreiðslumaður og einn
eigenda SKG-veitinga á
Hótel Ísafirði, er farin að
útbúa ríkulega hlaðnar
brauðsneiðar sem dönsk
smurbrauðsjómfrú væri
og heldur uppteknum
hætti allt til jóla. Sú
venja hefur skapast hjá
veitingamönnunum á
Hótel Ísafirði að bjóða
upp á smurbrauð á að-
ventunni. Nú byrja þau
heldur fyrr en vanalega
enda smurbrauðið heils árs
kostur þó margir tengi það
við aðdraganda jólanna
eins og ýmislegt annað úr
danskri matargerð. Að
þessu sinni eru fimm réttir
á smurbrauðsseðlinum en
auk þess er ætlunin að
bjóða upp á smurbrauð
dagsins ásamt súpu í
hádeginu. Af fiskmeti er
boðið upp á tartar úr
einiberjagröfnum lax og
hina sígildu rauðsprettu.
Kjötmetið er ekki af lakara
taginu „flæskesteg“, vest-
firsk villiönd og ekta
heimatilbúið „leverpostej“.
Því ætti að vera nóg um
freistingar fyrir þá sem eru
á ferð um miðbæ Ísafjarð-
ar næstu vikur. Hægt er að
setjast niður og njóta
smurbrauðsins með útsýni
yfir Pollinn eða taka það
með heim.
– kristinn@bb.is Guðlaug Jónsdóttir matreiðslumaður með fullan bakka af smurbrauði.
Dönskunemar við Menntaskólann á Ísafirði
Kynntu sér aðstæð-
ur nemenda í Svíþjóð
Dönskunemar við Mennta-
skólann á Ísafirði fóru nýlega
til Klippan í Svíþjóð og kynntu
sér námsaðstæður þarlendra
menntskælinga. Alls fóru 13
nemar utan en heimsóknin var
styrkt af Vestnorræna sjóðn-
um. Svíarnir ætla að endur-
gjalda heimsóknina í mars og
er von á 20 menntaskólanem-
um á Sólrisuhátíð MÍ. Kenn-
ararnir Arndís Björnsdóttir og
Ingibjörg Ingadóttir fóru fyrir
hópnum en Arndís hafði óskað
eftir samstarfi við aðra norr-
æna skóla síðasta vetur.
Flestir nemanna eru á verk-
námsbrautum og þótti þeim
mikið til um aðstöðu kolleg-
anna í menntaskólanum í
Klippan en þar er afar full-
kominn tækjabúnaður. Að
auki var farið í heimsókn til
stórfyrirtækisins Perstorp AB
en þar starfa um 3.000 manns.
Fyrirtækið rekur sinn eigin
menntaskóla þar sem einungis
30 nemar eru teknir inn á
hverju ári og er brottfall ekkert.
Nemarnir sóttu margvíslega
viðburði og skoðunarferðir
ytra, m.a. var unnið í hópastarfi
með Svíunum og skoðuð nátt-
úran á Suður Skáni. Flogið
var um Kaupmannahöfn og
gafst nemunum kostur á að
skoða höfuðborg Danaveldis
í þrjá daga.
Arndís segir ferðina hafa
reynst mjög gagnlega og virk-
að hvetjandi á dönskunámið.
– kristinn@bb.is
Arndís Björnsdóttir ásamt hluta hópsins í sænskum þjóðgarði. Ljósmyndir: Þorbjörn Jóhannsson.
Kristján Helgi Jónsson, Friðrik Hagalín
Smárason, Einar Jón Snorrason, Arnar Guð-
mundsson og Almar Þór Ingason fyrir utan
skólann í Klippan.
Arnar Guðmundsson og Pétur Gestsson ræða
við sænskar námsmeyjar.
Sigríður María Gunnarsdóttir hjá Sól og fegurð
Þekur bert hörund kvenna með
leirvafningum þeim til heilsubótar
Sigríður María Gunn-
arsdóttir, eigandi Sól og
fegurðar á Ísafirði, var
með opið hús fyrir stuttu
þar sem m.a. gat að líta
spjaralitlar konur þekja
sig leirvafningum í
heilsubótarskyni. Í vafn-
ingana er notaður leir úr
Dauðahafinu og þykja
þeir hafa mjög góð áhrif
á æðakerfi líkamans og
húð. Jafnvel eru dæmi
um að þeir minnki mittis-
málið verulega í einum
tíma. Þó uppátækið virð-
ist skondið frá „karllæg-
um“ sjónarhóli gera já-
kvæð áhrif vafninganna
ekki upp á milli kynjanna.
Fjölmargir gestir lögðu
leið sína í Sól og fegurð til
að kynna sér starfsemina.
Auk leirvafninganna vin-
sælu var boðið upp á
kynningu á heilsuvörum,
sogæðanuddi og sólar-
bekkjum stofunnar.
– kristinn@bb.is
Leirvafningarnir
þykja hafa
undraverð áhrif.
47.PM5 18.4.2017, 13:0614