Bæjarins besta


Bæjarins besta - 26.11.2003, Side 20

Bæjarins besta - 26.11.2003, Side 20
ÓHÁÐ Á V E S T F J Ö R Ð U MFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 250 m/vsk Bolungarvíkurkaupstaður skuldar mest vestfirskra sveit- arfélaga á hvern íbúa eða 687 þúsund krónur. Íbúar í Brodda- neshreppi eiga hins vegar í handraðanum 772 þúsund krónur fyrir hvern þeirra. Ef byggt er á upplýsingum úr ár- bók sveitarfélaga voru nettó- skuldir vestfirskra sveitarfé- laga á hvern íbúa mjög mis- jafnar um síðustu áramót. Með nettóskuldum er átt við heild- arskuldir sveitarfélagsins og stofnana þess að frádregnum veltufjármunum sem eru um- talsverðir hjá flestum þeirra vegna sölunnar á Orkubúinu. Súðvíkingar koma næstir á eftir Bolvíkingum með 547 þúsund króna skuld á mann. Hjá Ísafjarðarbæ eru skuldir- nar 518 þúsund krónur á mann, í Vesturbyggð 486 þúsund á mann, Hólmvíkingar skulda 302 þúsund krónur á mann og íbúar í Reykhólahreppi skulda 111 þúsund krónur á mann. Nokkur sveitarfélög eru með jákvæða stöðu. Best er staðan í Broddaneshreppi eins go áður sagði en í Bæjarhreppi er talan 602 þúsund krónur. Í Árnes- hreppi er staðan jákvæð um 492 þúsund krónur og í Kaldr- ananeshreppi er talan 230 þús- und krónur á hvert mannsbarn. Til samanburðar má nefna að skuldir á Akranesi eru 331 þúsund krónur á mann, í Skagafirði eru skuldir 533 þús- und og Fjarðabyggð 716 þús- und krónur. Akureyri skuldar 570 þúsund fyrir hvern íbúa og höfuðborgarbúar skulda hver um sig 599 þúsund krón- ur. Það skal ítrekað að skulda- tölur vestfirskra sveitarfélaga eru eftir að sala Orkubús Vest- fjarða fór fram. – hj@bb.is Broddanes á digrasta sjóðinn Bolungarvík skuldar mest á hvern íbúa samkvæmt nýútkominni árbók sveitarfélaga Vestfirðingar eiga að meðaltali færri bíla en aðrir landsmenn Hlutfallslega fæstir bílar í Ísafjarðarbæ Ökutækjaeign Vestfirðinga var minni en á landsvísu á síðasta ári samkvæmt Lands- högum Hagstofu Íslands. Landsmenn eiga að jafnaði 637 ökutæki á hverja 1.000 íbúa en á Vestfjörðum eru 594 ökutæki fyrir sama fjölda. Svæðisútvarpið greindi frá þessu. Ef fólksbílaeign er skoðuð eru þeir 509 fyrir hverja 1.000 Vestfirðinga en landsmeðaltalið er 561 bíll. Þegar kemur að vörubílum eru íbúar fjórðungsins hins vegar vel yfir meðaltali og eiga 38 bíla meðan meðaltalið er 27. Ef litið er til einstaka sveitar- félaga á Vestfjörðum eru hlut- fallslega fæstir bílar í Ísafjarð- arbæ en þar eru 467 fólksbílar og 23 vörubílar fyrir hverja 1.000 íbúa. Í Bolungarvík eru fólksbílarnir 469 og vörubíl- arnir 43 en í Vesturbyggð eru 537 fólksbílar og 48 vörubílar að baki sama íbúafjölda. Íbúar Vesturbyggðar eru því vel yfir landsmeðaltali í fólks- og vörubílaeign, meðan Bol- víkingar komast yfir meðaltal í vörubílaeign og íbúar Ísa- fjarðarbæjar liggja undir með- altali í báðum flokkum. Ef litið er til samanlagðrar bílaeignar íbúa annarra sveitarfélaga á Vestfjörðum þá er hún lang- mest í fjórðungnum eða 584 fólksbílar á hverja 1.000 íbúa og 58 vörubílar. – kristinn@bb.is Nýir bílar á leiðinni til Ísafjarðar. Betur fór en á horfðist þegar jepplingur valt kl. 7:30 á laugardagsmorgun með fimm manns í. Óhappið varð við Tungu- dalsafleggjara nálægt gangamunna Vestfjarða- ganganna í Skutulsfirði. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á Ísafirði urðu engin slys á fólki en bif- reiðin, sem talið er að hafi oltið vegna hálku, er eitt- hvað skemmd. Bílvelta við göngin VestfirðirÍslandspóstur tekur í notkun nýja póstafgreiðslu í verslunarmiðstöðinni Neista á Ísafirði Opnuð með „íslensku aðferðinni“ Ný póstafgreiðsla Íslandspósts í verslunarmiðstöðinni Neista á Ísa- firði var tekin í notkun kl. 9 á föstudag með því að starfsstúlkur póstsins afgreiddu fyrsta viðskipta- vininn. Forsvarsmenn Íslandspósts höfðu sagst gera ráð fyrir að póst- afgreiðslan yrði opnuð með „ís- lensku aðferðinni“ og varð það raunin enda voru iðnaðarmenn á staðnum fram að opnun. Ragnheið- ur Baldursdóttir hjá Íslandspósti á Ísafirði, segir starfsmönnum lítast vel á sig í Neista þó enn séu ekki allir innanstokksmunir komnir á sinn stað. „Þetta er alveg að falla í liðinn hjá okkur en vinnuaðstaðan verður miklu þægilegri“, sagði Ragnheið- ur. Ágúst Gíslason, annar eigandi fasteignafélagsins Apto, afhenti Einari Þorsteinssyni, forstjóra Ís- landspósts hin nýju húsakynni við formlega athöfn í hádeginu á föstu- dag. – kristinn@bb.is Einar Þorsteinsson forstjóri Íslandspósts og Ágúst Gíslason annar eigandi fasteignafélagsins Apto ehf. 47.PM5 18.4.2017, 13:0620

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.