Bæjarins besta - 09.01.2002, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 9. janúar 2002 • 2. tbl. • 19. árg.
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk
Virkjunarframkvæmdir í botni Súgandafjarðar ganga vel
Vélarsamstæðan í virkj-
un Dalsorku sett upp
Virkjunarframkvæmdir í
botni Súgandafjarðar ganga
vel og stefnt er að því að Dals-
orka gangsetji hina nýju vatns-
aflvirkjun í lok mánaðarins.
Rafstöðvarhúsið er tilbúið og
sömuleiðis tveggja km löng
aðfallslögn sem liggur að því.
Á föstudag kom svo véla-
samstæðan vestur en hún er
keypt frá Austurríki og saman-
stendur m.a. af sambyggðri
túrbínu og rafali auk spennis.
Var samstæðan flutt með skipi
til landsins en síðan keyrð á
tengivagni vestur í Súganda-
fjörð. Nokkurn tíma tekur
setja vélarnar upp og tengja
þær en stefnan er að ljúka því
fyrir næstu mánaðarmót.
Gert er ráð fyrir að fram-
leiðslugeta virkjunarinnar
verði frá 220 kW til 500 kW
og fer það eftir vatnsrennslinu
á hverjum tíma en vatnið er
fengið úr Botnsá og Vest-
fjarðagöngunum. Inntakið er
rétt neðan við gangamunnann
og fallhæðin er 138 metrar. Á
næstu tveimur árum er stefnt
að því að virkja rennsli Þverár
og verður henni beint í sömu
inntakslögn. Stofnkostnaður
við þessar framkvæmdir er
um 43 milljónir króna.
Vélasamstæðan við virkjunarhúsið.
Skip Hraðfrystihússins – Gunnvarar hf., komu með 12.019 tonn að landi á síðasta ári
Aflaverðmætið um 1.772 milljónir
Skip Hraðfrystihússins –
Gunnvarar hf., í Hnífsdal
komu með 12.019 tonn að
landi á síðasta ári að verð-
mæti um 1.772 milljónir
króna.
Frystitogarinn Júlíus
Geirmundsson ÍS kom með
4.860 tonn að landi að
verðmæti um 1.100 millj-
ónir króna (cif), Páll Pálsson
ÍS kom með 3.726 tonn að
verðmæti um 360 milljónir
króna og Stefnir ÍS kom
með 1.357 tonn að verð-
mæti um 124 milljónir
króna. Andey ÍS kom næst
með 964 tonn að verðmæti
um 91 milljón króna, þá
Framnes með 723 tonn að
verðmæti um 68 milljónir
króna, Bára ÍS kom með
194 tonn að verðmæti um
14 milljónir króna og Örn ÍS
kom með 195 tonn að verð-
mæti um 14 milljónir króna.
Júlíus Geirmundsson var
um hálfan mánuð í slipp á
síðasta ári þar sem settar voru
í skipið nýjar togvindur. Uppi-
staðan í afla Júlíusar var
þorskur og grálúða. Uppistað-
an í afla ísfisktogarans Páls
Pálssonar var þorskur sem að
stærstum hluta fór til vinnslu
í frystihúsi félagsins í Hnífs-
dal. Stefnir var á bolfiskveið-
um fyrri hluta ársins þar sem
aflinn var að mestu steinbítur,
þorskur og ýsa. Eftir verkfall
fór hann síðan á rækjuveiðar.
Stefnir var í slipp í um mán-
aðartíma á árinu. Andey var
á rækjuveiðum allt árið og
sömuleiðis Framnes utan
2ja mánaða er skipið var í
stálviðgerðum í Póllandi.
Páll Pálsson ÍS kom með 3.726 tonn að landi á síðasta ári að verðmæti um 360 milljónir króna.