Bæjarins besta


Bæjarins besta - 09.01.2002, Blaðsíða 8

Bæjarins besta - 09.01.2002, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002 Stakkur skrifar Áfall á Þingeyri Netspurningin Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Netspurningin er birt viku- lega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Aðeins er tekið við einu svari frá hverri tölvu. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Spurt var: Var árið 2001 þér og þínum eins gott og þú hafðir vænst? Alls svöruðu 450. Já sögðu 255 eða 56,67% Nei sögðu 141 eða 31,33% Miklu betra sögðu 54 eða 12,00% Kirkjuskólinn á Ísafirði byrjar á laug- ardaginn kl. 11:00. Ísafjarðarkirkja. GRUNNSKÓLINN Á ÍSAFIRÐI Óskum eftir að ráða satrfsfólk til eftir- talinna starfa nú þegar: Stuðningsfulltrúa í 70% starf. Um er að ræða aðstoð inni í bekk og önnur skyld verkefni. Leiðbeinanda í 35% starf. Um er að ræða aðstoð við nemanda á unglinga- stigi, bæði í og utan kennslustunda. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Kristinn Breiðfj. Guðmundsson. Skólastjóri. Kirkjuskólinn í Hnífsdal byrjar á sunnudaginn kl. 13:00. Hnífsdalskapella. Áskriftarsíminn er 456 4560 Tölvuþjónustan Snerpa ehf. á Ísafirði Nýtt „veiruþvottahús“ Fjölmargar nýjar tölvuveir- ur skutu upp kollinum á ný- liðnu ári. Code Red tölvuorm- urinn og frændi hans Sircam birtust og fór sá síðarnefndi að dreifa m.a. bankayfirlitum og fundargerðum fram og til baka í tölvupósti. Í framhaldi af því var ákveðið hjá Tölvu- þjónustunni Snerpu á Ísafirði að stíga veiruvarnaskrefið til fulls og koma upp póstkerfi sem gæti hreinsað allan póst. Fram að því hafði Snerpa ein- ungis haft búnað til að skanna póst og aðvara notendur þegar slíkt fannst og sérsmíða varð hreinsunartól fyrir hættuleg- ustu tegundirnar. Vinnu við nýtt „veiru- þvottahús“ lauk skömmu fyrir jól og er það nú komið í gagn- ið. Ein nýjungin er að nú er einnig hægt að þvo póst sem fer áfram á önnur pósthús þannig að stærri fyrirtæki sem hafa eigin netpósthús eru nú einnig varin gegn tölvuveir- um. Snerpa endurnýjaði fram- leiðslu- og endursölusamning við Kaspersky Labs um veiru- varnaforritið Kaspersky Anti- virus í haust en áður hafði forritið verið selt undir vöru- merkinu AVP. Í kjölfarið sló Snerpa öll fyrri sölumet sín hjá Kaspersky og seldi mikinn fjölda veiruvarnaforrita bæði hér vestra og annars staðar. Sjálfstæðisfélögin í Ísafjarðarbæ Framboðsfrestur vegna prófkjörs framlengdur Stjórn Fulltrúarráðs sjálf- stæðisfélaganna í Ísafjarðar- bæ hefur að höfðu samráði við kjörnefnd ákveðið að framlengja framboðsfrest vegna fyrirhugað prófkjörs til þriðjudagsins 15. janúar kl. 20. Upphaflega rann fram- boðsfrestur vegna prófkjörs- ins út sl. fimmtudagskvöld. Unnur Brá, formaður Full- trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Ísafjarðarbæ, segir að það hafi verið ákveðið að lengja frestinn til að láta reyna á það að fá fleiri nöfn inn. „Samkvæmt reglum skulu vera minnst tíu í framboði, en kjörnefndin hefur einnig heimild til að bæta inn nöfn- um. Það voru færri en tíu sem skiluðu inn framboði,“ sagði Unnur Brá Konráðsdóttir, for- maður fulltrúaráðs. Krabbameinsfélagið Sigurvon á norðanverðum Vestfjörðum Efnt til fundar um stofnun stuðn- ingshópa krabbameinssjúkra Fundur um stofnun stuðn- ingshópa á vegum Krabba- meinsfélagsins Sigurvonar á norðanverðum Vestfjörðum verður fimmtudaginn 10. jan- úar kl. 20 í Kiwanishúsinu á Ísafirði. Hildur Björk Hilm- arsdóttir, formaður stuðnings- félagsins Krafts og starfsmað- ur Krabbameinsfélags Ís- lands, flytur erindi um gildi og starfsemi stuðningshópa. Hún mun einnig svara fyrir- spurnum varðandi stuðnings- hópa og starfsemi þeirra og Krabbameinsfélagsins. Fyrirhugað er að stofna stuðningshópa og stuðnings- félag Sigurvonar. Allir eru hvattir til að mæta, ungir sem aldnir, og hlusta á mjög áhuga- vert erindi. Félagið vill jafn- framt minna á heimasíðuna sína www.krabb.is/sigurvon. Frá stofnfundi Krabbameinsfélagsins Sigurvonar. Hinn hörmulegi eldsvoði á Þingeyri aðfararnótt síðasta föstudags er mönnum ofarlega í huga. Það er hræðilegt áfall fyrir þorp eins og Þingeyri að missa með svo sviplegum hætti ung hjón og son þeirra. Eftir lifir annar sonur þeirra, sem misst hefur móður, föður og bróður. Aðstandendum er vottuð hin dýpsta sam- úð. Atburður þessi vekur athygli á því hve allir eru tengdir fyrir skyldleika, mægðir eða einfaldlega vegna vináttu og kunningsskapar. Þess háttar náin tengsl eru meðal helstu kosta smárra samfélaga. Því meiri er sorgin og söknuðurinn er vá ber að dyrum. En söknuður og sorg nær einnig til íbúa Ísafjarðarbæjar alls og reyndar skapast sterk samkennd með Vestfirðingum, sem hafa á undanförnum árum mátt glíma við hamfarir náttúrunnar, sjóslys og slysfarir á landi sem kost-að hafa mannslíf. Tímans þunga hjóli verður ekki snúið við. Til baka verður ekki komist. Í upphafi árs er venjan að líta fram á veginn með von í hjarta og öll óskum við okkur og okkar nánustu góðs á árinu. Þingeyringar eiga nú við mikla sorg að glíma. Athygli vekur hve fast og ákveðið tekið hefur verið á málum með sam- verustundum, sem sóknarprestur og læknir hafa komið að. Áður fyrri báru menn sorg sína í hljóði og alla jafna einir. Nú ríkir skilningur á nauðsyn þess að unnið sé úr sorginni með þeim hætti að viðkomandi séu færir um að takast á við lífið þrátt fyrir áföll og geti jafnframt dregið af þeim lærdóm og öðlast þroska. Niðurstaða rannsóknar lögreglunnar á Ísafirði á upptökum eldsins liggur nú fyrir. Naut hún aðstoðar tveggja sérfræðinga frá ríkislögreglustjóra og eins frá rafmagnsöryggisdeild Löggildingarstofu. Eldsupptök voru talin stafa frá logandi kertaskreytingu. Ekki mun hafa verið reykskynjari í íbúðinni. Ljóst má vera að maðurinn bjargaði lífi eldra sonar þeirra hjóna með snarræði og hetjulund. En því miður tókst það ekki í seinna skiptið og eftir stendur sorgin. Þessi hörmulegi atburður leiðir hugann að framtíðinni og því sem unnt er að gera til að fyrirbyggja að viðlíka atburðir endurtaki sig í einni eða annarri mynd. Því miður er það allt of algengt að gleymist að hyggja að forvörnum á heimilum. Það er því mið-ur svo að varnir heimilisins sitja á hakanum. Því er nauðsynlegt að breyta og virkja áhugamenn um úrbætur. Þrátt fyrir allt er það staðreynd að mjög mörg slys verða á heimilum fólks, en þar eð allt er heimilisfólki kunn- uglegt hættir okkur of mörgum til að gleyma því að vera búin undir hið óvænta. Fæstir eiga von á því að slys hendi inni á heimilinu. Á flestum heimilum sleppa heimilismenn ótrúlega vel og fólk er fljótt að gleyma. Þessa staðreynd ber að hafa í huga. Forvarnir á heimilum eru mikið nauðsynjamál. Hinn hörmu- legi atburður á Þingeyri minnir okkur á þá staðreynd, að aldrei er of varlega farið á þeim vettvangi sem flestir verja drýgstum tíma, heimilinu. Blessuð sé minning ungu hjónanna og sonar þeirra.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.