Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.03.2001, Blaðsíða 6

Bæjarins besta - 28.03.2001, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 Hefur eiginlega aldrei farið úr Fjarðarstrætinu – spjall við Fylki Ágústsson á Ísafirði, fyrrum sundkappa og núverandi bókara, ræðismann og ferðaskrifstofurekanda á Netinu Fylkir Ágústsson er merkilegur fyrir margra hluta sakir. Á árum áður var hann einn mesti sundgarpur Íslendinga, en hann var Íslands- meistari þrjú ár í röð. Lengst af hefur hann unnið sem bókari, bæði sem launamaður hjá fyrirtæki og sem sjálfstæður atvinnurekandi. Hann var eitt ár í lýðháskóla í Danmörku. Það var á þeim tíma þegar erfitt var að komast á milli landa og sjaldgæft að menn færu utan í slík ævintýri. Hann hefur gegnt stöðu ræðis- manns Danmerkur á Ísafirði í hartnær tíu ár og hefur þrisvar hitt Margréti Danadrottningu, tvisvar á Íslandi og einu sinni í Danmörku. Fylkir hefur rekið ferðaskrifstofu á Netinu í nokkurn tíma og þó að hann hafi leyfi til að selja ferðir hvert sem er, þá vill hann sérhæfa sig í ferðum um Danmörku. Ætlar ekki ofar í götuna Fylkir fæddist á Ísafirði og ólst þar upp. „Ég hef eiginlega aldrei farið úr Fjarðarstrætinu. Foreldrar mínir bjuggu í núm- er 11. Þegar ég komst til vits og ára keypti ég húsið að Fjarðarstræti 13 og bjó í því um tíma en er nú kominn í númer 15. Ofar í götuna ætla ég ekki. Ég bjó reyndar í miðbænum í einhvern tíma í millitíðinni, en það er ekkert til að tala um. Ég hef alla mína ævi búið á Ísafirði, fyrir utan þetta eina ár sem ég bjó í Danmörku.“ Komst að því að Danir kunnu ekki dönsku Fylkir hafði aldrei farið til útlanda þegar hann fór í lýð- háskóla í Danmörku. „Ég hafði farið einu sinni eða tvisvar til Reykjavíkur. Á þessum tíma, um 1960, voru samgöngurnar ekki líkar því sem er í dag. Flug var rándýr ferðamáti og það var eingöngu á færi efnuðustu manna að fljúga á milli landa. Ég fór því með Gullfossi til Danmerkur. Siglt var á tveggja vikna fresti og þurfti ég að velja hvort ég vildi mæta viku of snemma eða viku of seint í skólann. Ég valdi að mæta viku of snemma og fékk vinnu við að rækta grænmeti og tína ávexti. Ég vann með hollensk- um strák sem ætlaði líka í lýðháskólann. Við áttum eftir að verða miklir vinir þá um veturinn. Ég komst fljótlega að því að Danir kunnu ekki dönsku. Í það minnsta kunnu þeir ekki þá „Andrésar Andar“ dönsku sem ég hafði lært á Íslandi. Það tók mig nokkurn tíma að venjast talsmátanum hjá þeim, en það kom þó allt á endanum.“ Langur ferill í pappír Fylkir hefur unnið sem bók- ari lengst af. „Þetta er orðinn nokkuð langur ferill í pappír. Ég vann hjá Skipasmíðastöð- inni í tæp tuttugu ár. Svo hef ég verið með sjálfstæða bók- haldsþjónustu í um fimmtán ár. Ég var reyndar byrjaður að vinna nokkuð sjálfstætt þegar ég var hjá Skipasmíðastöð- inni, hjálpaði mönnum með framtöl og slíkt. Það er alltaf nóg að gera í þessum bransa. Reyndar hafa breytingarnar orðið miklar með framförum í tölvu- og internettækni. Nú eru skatt- framtölin komin á netið og öll vinnsla orðin þægilegri. Þetta gerir það að verkum að fólk þarf kannski ekki eins mikið á bókara að halda eins og áður. Þrátt fyrir þetta er alltaf nóg að gera.“ Færeyskir sjómenn voru lítið að slást Áður en Fylkir varð ræðis- maður Dana á Ísafirði hafði hann aðstoðað forvera sinn, Ruth Tryggvason, í nokkur ár. „Eins og menn muna eflaust eftir, var mikið um komur fær- eyskra togara til Ísafjarðar á níunda áratugnum. Þá var mikið að gera hjá ræðismanni. Hans hlutverk er að aðstoða danska ríkisborgara ef eitt- hvað kemur upp á, hvort sem það er skemmtilegt eða leiðin- legt. Ég man í svipinn ekki eftir neinu atviki þar sem lög- regla kom við sögu. Það var ekki mikið um að færeyskir sjómenn væru að slást á böll- um, eins og títt var með hina bresku. Þegar Ruth hætti sem ræðis- maður, hafði danski sendiherr- an samband við mig og bað mig um að taka við. Þetta var um 1990 og töluvert farið að hægjast um í starfinu. Ég tók þetta að mér og hef verið í þessu síðan. Það sem ég hef verið að gera í þessu embætti er að aðstoða menn ef þá vanhagar um eitthvað, hversu smávægi- legt sem það er. Stundum er maður bara túlkur, stundum eitthvað meira. Ég hef verið að aðstoða menn við að koma peningum í gegnum banka- kerfið, redda mönnum flugfari til og frá Íslandi og svo fram- vegis. Stundum hefur verið lítið að gera og stundum mik- ið. Mest var að gera þegar kviknaði í færeyskum togara hér í höfninni. Það fóru fleiri dagar í að snúast í kringum það mál.“ Flestir hefðu sjálf- sagt orðið sárhentir Það verður ekki sagt annað en að Danadrottning verðlauni sína ræðismenn. „Á nokkurra ára fresti eru allir ræðismenn danska ríkisins, alls um 350 talsins, kallaðir til Danmerkur. Þar eru þeir í heila viku, ferð- ast og fræðast, sækja nám- skeið og matarboð og heim- sækja drottninguna. Ég fór í eina slíka ferð árið 1996. Við vorum í þrjá daga í kringum Kaupmannahöfn, einn dag í heimsókn hjá drottningunni og tvo daga í heimsóknum hér og þar. Síðan var mönnum boðið að velja um tveggja daga ferð um Dan- mörku. Farið var með okkur um Jótland, Fjón eða hvert sem við vildum fara. Alls voru hátt í þúsund manns í ferðinni. Það kom mér mjög á óvart að þegar við hittum drottninguna, þá tóku hún og eiginmaður hennar í höndina á hverjum einasta manni. Venjulegur maður hefði sjálfsagt orðið sárhentur eftir slíkt en drottningin er ýmsu vön.“ Bílaleiga fyrir útlendinga Hvernig kom það til að Fylkir fór að reka ferðaskrif- stofu? „Ég komst á sínum tíma í samband við bílaleigu í Es- bjerg sem leigir eingöngu til útlendinga eða manna sem bú- settir eru utan Danmerkur. Með því er hægt að kaupa bílana skattfrjálsa og leigja þá út á töluvert lægra verði en gengur og gerist. Ekki er heimilt að leigja þessa bíla til manna sem búsettir eru í Dan- mörku, hvort sem þeir eru danskir ríkisborgarar eða ís- lenskir. Hins vegar má leigja bílana dönskum ríkisborgur- um sem búsettir eru annars staðar, til dæmis á Íslandi. Ég gerðist umboðsmaður fyrir þessa bílaleigu og gekk nokkuð vel. Eftir nokkur ár var fólk farið að óska eftir meiri og meiri þjónustu, vildi geta pantað sumarhús og slíkt í gegnum mig. Ég ákvað því að aðstoða fólk við þetta. Þá þurfti ég að stofna ferðaþjón- ustu og fá tilskilin leyfi. Ég mátti vera umboðsmaður fyrir bílaleigu, en ef ég fór að selja gistingu, þá þurfti ég sérstakt leyfi.“ Ferðaþjónustan átti að vera aukagrein Fylkir sótti um og fékk leyfið og fór að reka ferða- skrifstofu. „Ég gerðist um- boðsmaður fyrir DanCenter a.s. sem sér um leigu á sum- arhúsum í Danmörku. Þeir gefa út gríðarmikla vörulista yfir öll þau sumarhús sem þeir bjóða. Fyrst eftir að ég fór að leigja út húsin fékk ég heilu vörubrettin af þessum listum og var að dreifa þeim út um allt. Ég vildi gera þetta á hag- kvæmari máta og kom því upp heimasíðu, www.fylkir.is. Þar getur fólk skoðað og pantað hús. Fyrir þá sem ekki eru nettengdir er ennþá hægt að fá þessa lista til að skoða. Ég ætlaði ferðaþjónustunni að vera aukabúgrein. Fljótlega varð þó ljóst að þetta yrði meira en ég bjóst við. Nú er svo komið að þetta er miklu stærri hluti af starfseminni en mig óraði nokkurn tímann fyrir. Aðallega er það vegna þess að flugfargjöld til Dan- merkur hafa lækkað mjög mikið. Einnig hafa ferðir orðið tíðari og allt hefur þetta orðið til þess að umsvifin hjá mér hafa stóraukist, bæði í leigu á bílum og sumarhúsum.“ Danskur leigubíl- stjóri spurði til vegar „Það munar töluvert miklu í verði hjá þessari útlendinga- leigu og öðrum bílaleigum. Það hefur komið fyrir að Ís- lendingar sem staddir eru í Danmörku hafa hringt í mig og pantað bíl, enda er það ódýrasti kosturinn. Það gerðist líka einu sinni að danskur leigubílstjóri hringdi í mig frá Kaupmanna- höfn til að spyrja til vegar. Hann var þá með Íslending í bílnum sem pantað hafði hótel í gegnum mig. Leigubílstjór- inn kannaðist ekki alveg við staðsetninguna á hótelinu en ég gat lóðsað hann um öng- stræti Kaupmannahafnar.“ Æfingarnar voru algjör leikaraskapur Fylkir æfði sund og náði 13.PM5 19.4.2017, 09:266

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.