Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.03.2001, Qupperneq 9

Bæjarins besta - 28.03.2001, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 9 Forseti Íslands heimsótti Þróunarsetur Vestfjarða Óskaði eftir að fá að kynna sér frumkvöðlastarfið Forseti Íslands notaði ferðina á æskuslóðirnar á Ísafirði, þegar hann heim- sótti Þjóðahátíð Vestfirð- inga, og leit inn á nokkrum öðrum stöðum. Sérstaklega óskaði hann eftir því að fá að koma í heimsókn í Þróunarsetur Vestfjarða og kynna sér þá vinnu sem þar er unnin. Var þar vel tekið á móti honum og Dorrit og Páli Péturssyni félagsmála- ráðherra, sem einnig var með í för. Forsetinn fékk kynningar- efni um starfsemina og fleira til fróðleiks og minja. Hann lét í ljós ánægju með það frumkvæði og frum- kvöðlastarf, sem þar á sér stað í málefnum fjórðungs- ins. Jafnframt gat hann þess, að fyrir nærri þremur ára- tugum hefði hann ásamt fleiri mönnum unnið að hugmyndum um framtíðar- skipulag Ísafjarðarkaupstað- ar. Honum hefði aftur á móti ekki komið í hug á þeim tíma starfsemi á borð við þá sem nú fer fram í Þróunar- setri Vestfjarða á Ísafirði. Ljósmyndari blaðsins fylgdist með heimsókn forsetans í Þróunarsetrið. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og heitkona hans Dorrit Moussaieff heimsóttu m.a. Dorothee Lubecki ferðamálafulltrúa Vestfjarða. Dorrit og Ólafur Ragnar smökkuðu á þeim réttum sem í boði voru í heimsókninni í Þróunarsetur Vestfjarða. Forsetinn og heitkona hans heimsóttu meðal annars útibú Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins sem er með aðstöðu í Þróunarsetri Vestfjarða. Á myndinni eru einnig þeir Kristinn Þór Kristinnsson útibússtjóri og Aðalsteinn Óskarsson, fram- kvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða hf. Starfsfólk þeirra fyrirtækja og stofnana sem hafa aðstöðu í Þróunarsetri Vestfjarða. Ingimar Halldórsson framkvæmdastjóri Fjórðungssam- bands Vestfirðinga og Ólafur Ragnar Grímsson á tali. Heitkona forsetans, Dorrit Moussaieff, hafði um margt að spjalla við Ólaf Helga Kjartansson sýslumann. 13.PM5 19.4.2017, 09:269

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.