Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.06.2001, Blaðsíða 10

Bæjarins besta - 13.06.2001, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2001 GÆSLUVÖLLUR VIÐ TÚNGÖTU Gæsluvöllur við Túngötu á Ísafirði opnar 15. júní og verður opinn frá kl. 13:30-17:00 alla virka daga í sumar. Daggjald á gæsluvöllinn er kr. 250.- Skóla- og fjölskylduskrifstofa Ísafjarðarbæjar. FRÁ FÉLAGSMIÐSTÖÐINNI ÍSAFIRÐI Félagsmiðstöðin á Ísafirði óskar eftir að ráða starfsmann í fullt starf til þess að hafa umsjón og eftirlit með ungl- ingastarfi á Ísafirði. Bæði er um dag- og kvöldstarf að ræða. Þá vantar dagstarfsmann til þess að hafa eftirlit með húsnæði félagsmið- stöðvarinnar að degi til, gæslu, þrif, aðstoð í eldhúsi o.fl. Mötuneyti nemenda grunnskólans er innan veggja félagsmiðstöðvarinnar. Þar vantar matselju í 83,4% starf í 9 mánuði ársins. Viðkomandi sér um að útbúa og selja málsverði fyrir 7.-10. bekk. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í síðari hluta ágústmánaðar. Upp- lýsingar gefur forstöðumaður í síma 456 3808 eða 863 3806. Félagsmiðstöðin á Ísafirði. GARÐEIGENDUR ATHUGIÐ! Vinnuskólinn býður upp á slátt og garðhirðu. Kostnaður er kr. 1.500 á klst. Áætla má að sláttur á meðal garði taki 3 klst. Hreinsun á beðum, arfahreinsun o.fl. er á kr. 2.000.- á klst., miðað við að 6- 7 duglegir unglingar starfi að hreinsun í einu. Upplýsingar og pöntun í síma 456 3808. Vinnuskólinn. Ísfirðingar á leið til hjálparstarfa í Serbíu og Bosníu „Börn sem þekkja ekkert annað en stríð“ Í næstu viku halda tveir Ís- firðingar til hjálparstarfa í Ser- bíu og Bosníu. Þetta eru hjón- in Guðmundur Sigurðsson, starfsmaður sorpbrennslunnar Funa og Kolbrún Dagbjört Sigurðardóttir, starfsmaður á Bræðratungu. Þau fluttu til Ísafjarðar fyrir sex árum og komu þá frá Galtavita þar sem þau voru vitaverðir í tvö ár. Móðurfjölskylda Kolbrúnar býr fyrir vestan, en hún er hálfsystir ljósmyndarans Spessa eða Sigurþórs Hall- björnssonar eins og hann heit- ir fullu nafni. Guðmundur og Kolbrún stofnuðu og hafa rek- ið Vitann, kristið sjómanna- starf síðan þau fluttu til Ísa- fjarðar. Oak Hall samtökin „Við höfum starfað að Vit- anum, kristnu sjómannastarfi og höfum lengi haft áhuga á að fara í einhverskonar hjálp- arstarf. Nú er svo komið að við eigum bæði stórafmæli í ár og við ákváðum að gera eitthvað gefandi fyrir okkur og aðra og fórum að líta í kringum okkur að einhverju sem okkur litist vel á og þá kom þetta tækifæri upp í hendurnar á okkur. Oak Hall samtökin í Englandi, er í raun kristinn bresk ferðaskrifstofa. Þeir eru með ferðir út um allan heim, til Spánar, Ítalíu, og til Íslands einu sinni á ári og þá um Suðurlandið, en við ætlum einmitt að nýta tækifærið meðan við erum úti og benda þeim á möguleika á ferðum til Vestfjarða. Júgóslavía er eina landið þar sem þeir eru með hjálparstarf. Þeir hafa far- ið í rútum og haft með sér hjálpargögn í flutningabílum. Þeir hafa verið þarna síðan stríðið hófst og voru meira að segja á þessum slóðum á meðan á loftárásunum stóð og er ferðin sem við erum að fara í 39. ferðin sem þeir gera út til Júgóslavíu. Dæmigerð innkaup vísitölufjölskyldu Við höfum valið að eyða sumarfríinu okkar í þessa ferð sem tekur hálfan mánuð. Við ætlum að slást í för með ensk- um trúsystkinum og er förinni heitið til hjálparstarfa í Serbíu og Bosníu. Við förum út til Englands 18. júní og dveljum í bækistöðvum Oak Hall í Kent. Við förum svo frá Eng- landi að morgni 21. júní með rútu sem leið liggur til Júgó- slavíu. Við komum til með að búa í heimahúsum og í bækl- ingnum erum við beðin um að þiggja ekkert af fólkinu sem við búum hjá heldur kaupum við okkar eigin mat- vörur og hópurinn fær lánaða krá til með að elda mat. Einnig erum við beðin um að koma með matarpakka handa fjöl- skyldunni sem við verðum hjá. Við fengum uppskrift af þeim pakka en hann saman- stendur af hreinlætis- og mat- vörum. Við sjáum ekki betur en að þetta séu dæmigerð innkaup vísitölufjölskyldunn- ar hér á Íslandi. Biblíuskóli í Backy Petrovec Bækistöðvar okkar verða í Backy Petrovec í Serbíu, þar sem Englendingar hafa komið á fót biblíuskóla sem heitir Ces og núna á seinni árum hafa Serbar farið að sækja þennan skóla. Þeim finnst betra að vera þarna heldur en í flóttamannabúðum og hafa þá eitthvað fyrir stafni því allt nám og allt viðurværi er ger- samlega í molum þarna niður- frá. Þó svo að stríðið sé búið þá er ennþá mikil neyð og fólk hefur raunar engin tæki- færi. Þess vegna hafa Serbar tekið því fegins hendi að geta farið í þennan biblíuskóla og nú er skólinn farin að senda nemendur víðsvegar um Júgó- slavíu til þess að vinna þessi sömu verk, boða trú og hjálpa fólki. Börn sem þekkja ekkert annað en stríð Með í för verður flutninga- bíll með 40 tonn af hjálpar- gögnum, matvælum, klæðn- aði, lyfjum og öðrum nauð- synjum og við munum gera út frá þessum skóla en við munum búa meðal innfæddra í heimahúsum. Dvalið verður á þessu svæði í átta til níu daga og munum við heim- sækja flóttamannabúðir, sem eru nokkrar á þessu svæði, skóla og kirkjur og taka til hendinu þar sem þarf. Í baka- leiðinni verður farið í gegnum Bosníu. Þar er meira óráðið hvað gert verður, en þetta er þriðja ferð Oak Hall samtak- anna þangað. Þar er ástandið í raun eins, en það er svona meira óvissuferð því samtökin hafa ekki komið sér fyrir þar. Við munum dvelja þar í þrjá til fjóra daga við það að færa fólki nauðsynjar, von, hlýju og kærleika frá Guði. Við höf- um rætt við Bryndísi Frið- geirsdóttur hjá Rauða kross- inum á Ísafirði en þau eru í samstarfi við Rauða Kross deild sem er sunnar í Serbíu. Samkvæmt því sem hún sagði mér, þá er mjög mikil neyð á þessu svæði og mörg börn hafa dvalið í flóttamannabúð- um alla sína ævi, eða sjö til níu ár. Læknishjálp og skóla- ganga er í algeru lágmarki. Þarna er fólk sem hefur kann- ski upplifað tvær heimstyrj- aldir og svo borgarastyrjöld í ofanálag sem og börn sem þekkja ekkert annað en stríð. Pakkar af ást Meðal þess sem verður dreift í ferðinni eru litlir pakk- ar sem heita “parcel of love“ eða pakkar af ást. Þegar við fórum að skoða innihald þeirra, brá okkur talsvert því þetta eru bara litlir skókassar og í þeim eru hlutir sem okkur hefði ekki órað fyrir að þau vantaði. Þetta eru hlutir sem við notum á hverjum degi, jafnvel oft á dag og ef okkur vantar þá förum við bara út í búð og kaupum þá án frekari umhugsunar. Það sem á að vera í pökkunum er ein dós af niðursoðnum tómötum, ein dós af niðursoðnum ávöxtum, tannbursti og tannkrem, fjög- ur bréf af bollasúpu, súkku- laðistykki, kexpakki, 16 stk parasetamól, skrifblokk og penni, bland í poka, sokkapar, kaffi eða te, vasaklútur, sápu- stykki og plástur eða svita- lyktareyðir. Svona pakkar eru mikil verðmæti í þeirra aug- um. Maður getur ekki ímyndað sér þegar svona langt er um liðið frá stríðinu að fólk þurfi á þessu að halda, að neyðin sé svona mikil. Manni finnst svo sjálfsagt að það séu matvöru- búðir til staðar en á þessum slóðum er ekki neitt til neins. Við erum bara saklausir Ís- lendingar sem förum út í búð og kaupum það sem okkur vantar þannig að þetta verður líka lærdómsríkt fyrir okkur. Við ætlum núna, í staðinn fyrir að fara út með fullt af pökkum, að reyna að kanna landið sjá hvort það sé hugsanlega hægt að senda pakka frá Ísafirði með í næstu ferð sem verður farin í september. Geta gefið von Með þessari ferð viljum við reyna að opna dyr að hjálpar- starfi frá Íslandi í samstarfi við þessi samtök. Ferðin er byrjun á einhverju sem við ætlum að halda áfram, við erum ákveðin í því. Einnig getur fólk sem hefur áhuga á að fara í svona ferð talað við okkur og við getum veitt þeim allar upplýsingar. Það gæti verið sniðugt fyrir fjölskyldur að taka til í einn skókassa og taka þannig þátt. Við Ísfirð- ingar erum náttúrulega að taka þátt í þessu með því að sauma föt en með svona pökkum get- um við gert ennþá meira. Við hljótum að geta séð af þeim. Svona einfaldir hlutir gefa þessu fólki mikla von, þeir gefa þeim þá vissu að heimur- inn er ekki búinn að gleyma þeim og það gefur þeim styrk til að halda áfram að lifa.“ Kolbrún Dagbjört Sigurðardóttir og Guðmundur Sigurðsson. Nú í byrjun sumars eru ferðamenn, jafnt innlendir sem erlendir og þá aðallega frá Bretlandi og Þýskalandi byrjaðir að streyma til Vest- fjarða. Að sögn Sigríðar Ó. Kristjánsdóttur, fram- kvæmdastjóra Vesturferða ehf. á Ísafirði, lítur út fyrir gott sumar hvað varðar fjölda ferðamanna. Fjöldi pantana hjá Vestur- ferðum er mjög svipaður í ár og á síðasta ári en þá voru öll met slegin hvað varðar fjölda ferðamanna. ,,Þetta fylgir mikið veðrinu. Ef veðrið verð- ur eins gott og í dag (mið- vikudag í síðustu viku), þá verður þetta gott sumar hjá okkur enda ýmislegt hægt að gera. Nokkrir hópar koma til Ísafjarðar til að vera þar og skoða norðanverða Vestfirði en líkt og áður liggur straumurinn til Horn- stranda. Þar eru Íslendingar í meirihluta en Hornstrandir eru einnig vinsælar hjá er- lendum ferðamönnum og þá einkum Bretum og Þjóð- verjum,“ sagði Sigríður Ó. Kristjánsdóttir. Svipaður fjöldi pantana í ár hjá Vesturferðum Flestir ferðamenn ætla að fara til Hornstranda í sumar 24.PM5 19.4.2017, 09:3410

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.