Vinnan


Vinnan - 01.02.1997, Side 12

Vinnan - 01.02.1997, Side 12
í kjölfar byltinganna í Austur- Evrópu og hruns kommúnista- stjórnanna hefur víða komið mikið bakslag gegn kvenrétt- indum og áherslan er lögð á að konur eigi að fara aftur inn á heimilin og sinna fjölskyldu og barnauppeldi. Ein af skýringun- um á þessu er sögð sú að allt tal um kvenráttindi þyki minna á áróður gömlu kommúnista- flokkanna og því hafnað sem hluta af þeirri arfleifð. Undir stjóm kommúnista var lögð mikil áhersla á jafnrétti í fram- kvæmd og fólst það aðallega í jafnri stöðu kvenna fyrir lögum, í menntun og á vinnumarkaði. Lítil áhersla var lögð á kvenfrelsi sem frelsi einstakl- inganna enda var rekinn mikill áróð- ur fyrir sósíalísku fyrirmyndarfjöl- skyldunni þar sem konan bar ábyrgð á umhyggju og umönnun samhliða fullri ábyrgð í atvinnulífinu. Til að auðvelda konum að sinna sínum margvíslegu hlutverkum var komið upp öflugu fæðingarorlofi, vöggu- stofum og leikskólum. I Rússlandi og víða í Austur-Evrópu er ímynd hinn- ar sterku konu mjög rótgróin; það er ■ * iríl m 1 ^ jyfeH Kvenfrelsi í fvmim kommnnistaríkjnm ímynd konunnar sem mætir erfiðum aðstæðum, fómar sér og ber miklar byrðar án þess að mögla. Kvenfrels- ishugmyndirnar sem kommúnista- stjómimar hömpuðu lögðu tvöfaldar byrðar á konur; þær áttu að standa sig jafnfætis körlum í atvinnulífinu en bera alla ábyrgð á heimilinu og fjöl- skyldunni að auki. Frá 1989 hefur borið sífellt meira á því að öllum hugmyndum um „kven- frelsi“ sé hafnað sem arfleifð frá kommúnistastjómunum. Hefðbundn- ar hugmyndir um að staða konunnar sé á heimilinu hafa öðlast mikinn byr, bæði frá konum og körlum. Þetta veldur ekki síður erfiðleikum fyrir konur. Margar þeirra telja að konur eigi að vera heima en þær verða engu að síður að vinna úti, því ein fyrir- vinna dugir ekki til. A sama tíma het- ur kerfi ríldsrekinna leikskóla hrunið og dagvistunarúrræði margfaldast í verði auk þess sem staða kvenna á nýjum einkavæddum vinnumarkaði hefur versnað mjög. Þá heyrast raddir sem kenna konum og atvinnuþátttöku þeirra um þá samfélagslegu upplausn sem víða ríkir. I skoðanakönnun sem gerð var árið 1991 í Slóvakíu kom fram að aðeins 8% kvenna töldu að konur ættu að vinna fulla vinnu og aðeins 12% kvenna á aldrinum 18 til 39 ára. Þá hafa kannanir leitt í ljós að bæði konur og karlar á öllum aldri virðast sammála um að konan eigi að sinna húsverkunum og heimilinu. Verri staða á vinnumarkaði Eftir breytingarnar í Austur-Evrópu hefur atvinnuleysi kvenna vaxið mun hraðar en karla ekki síst vegna þess að þeir hlutar vinnumarkaðarins þar sem staða þeirra var sterkust fyrir, svo sem í léttum iðnaði og opinberri þjónustu, hafa farið verst út úr breyt- ingunum á efnahagskerfinu. Þau rétt- indi sem konur áttu áður hjá ríkinu er nú verið að flytja yfir á einkafyrirtæki en því fylgir jafnframt að þau líta á konur sem mjög dýrt vinnuafl. Sama er að gerast í stjómmálum. Nú eru ekki lengur ,,kvótar“ fyrir konur í stjórnmálum og sem dæmi um þróunina má nefna að í kosning- um í Tékklandi 1990 minnkaði hlutur kvenna á þingi úr tæplega 30% niður í 6%. Konur virðast nú víða líta svo á að stjórnmál séu subbuleg og best geymd í höndum karla. Skýringar? Þessi viðbrögð má að hluta skýra sem viðbrögð við þeirri útgáfu af kvenfrelsi sem rekin var áróður fyrir af kommúnistástjórnunum. Margar konur litu á margfaldar kröfur til sín sem kúgun og sáu heimilið sem griðastað sinn eða jafnvel sem vett- vang fyrir einskonar andspymu gegn opinberri stefnu. Þegar konum stendur svo til boða einhæf, erfið og illa borguð vinna auk þess sem nær ekkert stuðningskerfi er eftir til að styðja þær til þátttöku á vinnumark- aði getur sú staða vel komið upp að það sé almennt meira aðlaðandi að sinna einu hlutverk vel en reyna að leysa mörg í einu. Imynd húsmæðra er jákvæð og það starf er hátt metið. Atvinnulaus kona getur því byggt upp sjálfstraust og sjálfsmynd með því að vera heimavinnandi húsmóðir, sem er nokkuð sem atvinnulaus karl getur ekki. Byggt á grein e. Laurie Occhipinti í Anthropology Today, 6/96. 1OLVUSALAN Suðurlandsbraut 20 Sími 55 33 700 • Fax 586 74 95 * Tölvukaplar • lOnsiyrlSpjOIQ • iNeiounaour • EPROM-forritari Höfðabrekkujökull „Sem atvinnuljósmyndari þá vil ég vera tiltcekur fyrir ný verkefni hvenœr sem er og hvar sem er. Ég Ijósmynda mikið í óbyggðum og því fœri þetta tvennt tœþlega saman nema með hjálp NMT farsímans. Með NMT getur konan mín verið í sambandi við mig og ekki síður mínir viðskiptavinir. NMT síminn er því ekki bara öryggistœki í mínum augum heldur nauðsynlegt atvinnutœki.“ RagnarTh. Sigurðsson, Ijósmyndari „Ég nota NMT síma því hann tryggir mér öryggi og atvinnu NMT farsímarnir hafa fyrir löngu sannað notagildi sitt á íslandi. Dreifikerfið fyrir NMT farsímana er víðtækt og símarnir eru langdrægir. Þessir kostir gera NMT að ákjósanlegum valkosti fyrir þá sem eru á ferð um sveitir landsins, í óbyggðum og ekki síður á hafi umhverfis landið. íslenska NMT síma má einnig nota á Norðurlöndum. NMT símar - þegar langdrægni og öryggi skipta máli. POSTUR OG SIMI 12

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.