Vinnan - 01.02.1997, Page 13
Kvennabanki
í Zimbabwe
ífyrrafengulOO konurí
Zimbabwe lán til að koma
á fót eigin atvinnustarf-
semi frá kvennabanka
sem er samstarfsverkefni
norsku þróunarvinnusam-
takanna Norsk Folkehjelp
og Norska Landsbanken.
Kvennabankinn í Zimbabwe
er byggður upp á sama
hátt og Grameen kvennabank-
inn í Bangladesh. Landsbanken
hefur áram saman styrkt Norsk
Folkehjelp og fékk þá hug-
mynd að stofna sérstakan sjóð
til að fjármagna lán til kvenna.
Utkoman varð Folkebanken í
Zimbabwe. Landsbanken legg-
ur fjármagn til hliðar og hvetur
líka viðskiptavini sína til að
styrkja framtakið. Viðskipta-
vinimir fá svo upplýsingar um
framgang einstakra verkefna
sem verða til vegna lána frá
Folkebanken.
Vinahópar
Starf Folkebanken í Zimbabwe
byggir á svokölluðum ,vina-
hópum“ eða samtökum kvenna
á staðnum. Konur slá sér sam-
an fimm til sex í hóp sem
gengur sameiginlega í ábyrgð
fyrir lán til einnar af konunum í
hópnum. Á síðasta ári fengu
100 konur lán frá Folkebanken
og árangurinn hefur verið mjög
góður. Pær segja lánin hafa
hjálpað sér við að styrkja stöðu
sína og hafa auknar tekjur m.a.
verið notaðar til að fjármagna
skólagöngu barna, til heilsu-
gæslu og ekki síst aukinnar
framleiðslu matvæla til eigin
neyslu.
Lærdómurinn sem draga má
af svona starfi er ekki síst sá að
tiltölulega litlar upphæðir geta
breytt mjög miklu séu þær not-
aðar á réttan hátt og af því fólki
sem best þekkir til á hverjum
stað. Fyrir utan þýðinguna sem
þetta hefur fyrir lántakenduma
sjálfa eru margfeldisáhrifin í
öllu samfélaginu mjög jákvæð.
Frá sjónarhóli bankanna eru
kvennabankamir einnig góður
kostur því 98% af öllum lánum
kvennabanka í heiminum eru
endurgreidd með vöxtum.
Nokkrir lántakendur kvenna-
bankans í Zimbabwe fyrir utan
útibúið sitt.
Be h- itt > j £
F7 V * i
fjj ,Æ gj|j f M '1
| J ■ X ' 8 ) JB / I
,J Mr Bfefj r M l jjfl 1 M
% I M M I I
1 í lr * I f 1/ f
kr 'I i j \ fj m
w* .* ■ 1 j
f ‘ Ar 1 I tij.
M Mfr i ,\ /1
Ki M » \
Vaxandi fátækt og
atvinnuleysi
Ný skýrsla Alþjóða vinnumála-
stofnunarinnar (ILO) um atvinnu-
ástand í heiminum, hefur vakið mikla
athygli enda leiðir hún í Ijós að atvinnu-
leysi og fátækt fer vaxandi um leið og
misskipting auðs eykst. Tæpur þriðj-
ungur vinnuafls í heiminum er annað
hvort án atvinnu eða hefur ekki næga
vinnu.
Þróunin á vinnumarkaði í heiminum
er dökk samkvæmt skýrslu ILO.
Næstum 35 milljónir manna eru án at-
vinnu í ríkjum OECD og milljónir ann-
arra rétt hafa í sig og á með atvinnu
sem þeir geta misst þá og þegar. Fjöldi
þeirra sem er undir fátæktarmörkum fer
vaxandi á meðan tekjur hinna hæst-
launuðu hækka. Þeir sem eru atvinnu-
lausir í lengri tíma eiga á hættu að
verða útilokaðir frá þátttöku á vinnu-
markaði um aldur og ævi. í þróunar-
löndunum verða milljónir manna að
sinna einhæfum og heilsuspillandi störf-
um þar sem framleiðni er hverfandi og
líkur á bata því mjög litlar.
Þessi þróun er svo áberandi að
ýmsir fræðimenn eru farnir að smíða
tískukenningar um „efnahagslegan
vöxt án atvinnu“, þ.e. efnahagslegar
framfarir sem grundvallast á tæknifram-
förum og munu því ekki skila fleiri störf-
um. Þeir sem lengst ganga tala í spá-
mannastíl um „endalok vinnunnar" í
nýju efnahagskerfi heimsins. Höfundar
ILO skýrslunnar andmæla slíkum kenn-
ingum því með þeim sé verið að horfa
fram hjá þeim gífurlega vanda sem
blasir við milljónum manna um heim
allan og í reynd að yfirgefa það mikil-
væga markmið að tryggja fólki vinnu og
mannsæmandi lífskjör. Því er einnig
hafnað að afnám allra reglna og rétt-
inda á vinnumarkaði sé einhver lausn f
þessu efni.
LÍFEYRISSJÓÐURINN
LÍFIÐN
Frá og með síðustu áramótum sameinuðust Lífeyrissjóður
framreiðslumanna, Lífeyrissjóður matreiðslumanna og Lífeyrissjóður
rafiðnaðarmanna í nýjum lífeyrissjóði, Lífeyrissjóðnum Lífiðn.
Hinn nýi lífeyrissjóður tók yfir ábyrgð á öllum eignum og
skuldbindingum eldri sjóða.
Starfsmenn Lífeyrissjóðsins Lífiðnar:
Þorsteinn Húnbogason
Einar Guttormsson
Bjarni Sigfússon
Unnur Magnúsdóttir
framkvæmdastjóri
aðalbókari
gjaldkeri
fulltrúi
Innheimta iðgjalda af félagsmönnum í Matvís hefur verið
falin Innheimtustofu Matvíss, Þarabakka 3 og henni veitir
forstöðu Ásta Kristjónsdóttir, sími: 587 2355, fax: 587 2125.
Launagreiðendur eru hér með beðnir um að taka tillit til
þessarar sameiningar og greiða öll iðgjöld eftir 1. janúar 1997
sem áður tilheyrðu Lífeyrissjóði matreiðslumanna, Lífeyrissjóði
framreiðslumanna og aðildarfélögum Matvíss ásamt
eftirmenntunargjaldi til
Innheimtustofu Matvíss, kt: 581296-2159 á bankareikning
í íslandsbanka, Þarabakka 3, Reykjavík, bankanúnter 537,
höfuðbók 15 og reikningsnúmer 400180.
Innheimta iðgjalda af rafiðnaðarmönnum hefur verið falin
Innheimtustofu rafiðnaðarmanna og henni veitir forstöðu
Elín Fríða Sigurðardóttir, sími: 568 1433, fax: 553 9097.
Launagreiðendur eru hér með beðnir um að taka tillit til
þessarar sameiningar og greiða öll iðgjöld eftir 1. janúar 1997
sem áður tilheyrðuUífeyrissjóði rafiðnaðarmanna og
aðildarfélögum RSÍ ásamt eftirmenntunargjaldi til
Innheimtustofu rafiðnaðarmanna, kt: 581296-2079,
á bankareikning í íslandsbanka, Suðurlandsbraut 30,
Reykjavík, bankanúmer 526, höfuðbók 15 og reikningsnúnter
324601.
eða Landsbanka, Háaleitisbraut 68, Reykjavík, bankanúmer
120, höfuðbók 26 og reikningsnúmer 4400.
Sjóðfélögum er bent á að afgreiðsla sjóðsins er að Háaleitisbraut 68.
LIFEYRISSJOÐURINN LIFIÐN ■ HAALEITISBRAUT 68 ■ 103 REYKJAVIK
SÍMI: 568 1438 ■ FAX: 568 1413 ■ KT: 581096-2759 ■ E-MAIL: lifidn@lifidn.rl.is
Vinnan
13