Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2021, Síða 20
H vernig er kynlífið í sambandinu þínu? Þetta er mögulega
ekki spurning sem þú berð
upp reglulega í vinahóp þín-
um. Ástæðan er sú að kynlíf
para hefur löngum verið talið
þeirra einkamál og ókunn-
ugum óviðkomandi. Mörg
pör veigra sér jafnvel við að
ræða kynlíf sitt sín á milli.
Það er bara eins og það er,
annað hvort gott eða slæmt
og lítið við því að gera. Engin
ástæða til að hefja mögulega,
vandræðalegar samræður um
þetta sögulega feimnismál.
En það þarf ekki að vera
svo. Sigríður Dögg Arnar-
dóttir kynfræðingur, sem er
betur þekkt sem Sigga Dögg,
segir mikilvægt að hugsa um
kynlíf sem samtal milli para
því orð séu til alls best. Hún
ræddi við blaðamann um kyn-
hvöt, samræður um kynlíf og
mikilvægi þess að setja og
virða mörk.
Kynlöngun frekar
en kynhvöt
„Ég er ekki hrifin af því
að tala um kynhvöt, ég tala
frekar um kynlöngun, því
hvöt gefur til kynna að þetta
sé eitthvað sem við þurfum og
lifum ekki af án þess að hafa.
Kynlíf er alltaf val svo þetta
er ekki hvöt sem við þurfum
að bregðast við, þó við höfum
vissulega missterka og mis-
mikla löngun í kynlíf.“
Sigga Dögg segir það eðli-
legt að kynlöngum manna
sveiflist. Stundum sé hún
meiri, en stundum minni. Ef
fólk langar að auka löngun í
sambandi þá standi klassísku
ráðin enn fyrir sínu.
„Það sem fræðin segja
okkur er að þessi klassísku
ráð sem fólk heyrir alltaf um
að halda neistanum lifandi
eru alltaf góð og gild. Það er
til dæmis að upplifa eitthvað
nýtt saman, koma sér í nýjar
aðstæður og að halda þessum
leik á lofti.“
Svefnherbergið á, að mati
Siggu Daggar, að vera griða-
staður para.
„Ég skil að fólk tali um að
fara aldrei ósátt að sofa en ég
myndi vilja taka þetta einum
lengra og segja að fólk ætti
aldrei að taka ósætti með inn
í svefnherbergið. Ég myndi
vilja að svefnherbergið fengi
að vera griðastaður fyrir leik,
einlægni, frið og gleði.
Pör ættu að gera samkomu-
lag um að ræða ekki erfið mál
uppi í rúmi, að þetta sé griða-
staður fyrir ákveðna nánd,
koddahjal, jafnvel rómantík
og erótískan leik. Pólitíkin
og umræður á borð við „ég er
ósátt við að þú þrífir ekki kló-
settið“ eiga ekki heima uppi í
rúmi.
Lesið saman
Til að tendra neistann þurfi
ekki alltaf að fara í flóknar að-
gerðir, eins og ferðalög, kaup
á kynlífstækjum eða því um
líkt.
Sigga Dögg átti samtal við blaðamann um samtöl um kynlíf. MYND/VALLI
til hliðar og pör ættu að leyfa
sér að vera í gleðinni, flissa,
roðna og njóta.
Nakin saman
„Ég myndi líka hvetja fólk
til að vera nakið saman. Sofa
nakin saman. Það er svo mikil
nánd í húð við húð, og það eru
rannsóknir um hvaða áhrif
það hefur á okkur lífeðlislega
að vera húð við húð. Þegar við
komum í heiminn þá er það
fyrsta sem við viljum húð við
húð og þetta er líka dýrmætt
fyrir fullorðið fólk. Þetta er
svo mikil nánd og þarf ekki
að vera kynferðislegt.“
Margt getur orðið til þess
að kynlöngun minnki. Oft eru
það ytri aðstæður en stundum
getur það einnig verið líf-
fræðin.
„Það geta alls konar þættir
spilað inn í, bæði streita,
makaleysi, makadýnamík. Það
er ótrúlega margt sem spilar
inn í kynlöngunina okkar,
svona ytri þættir. En hún þarf
ekkert að dvína með aldrinum.
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
KYNLÍF ER SAMTAL
Mörgum þykir kynlíf feimnismál, jafnvel finnst
okkur óþægilegt að ræða það við maka okkar
þegar báðir aðilar eru fullklæddir. Þessum
hugsanagangi þarf að breyta því kynlíf er form
af samskiptum og við þurfum að tala um það.
„Ég held að ef COVID hefur
kennt okkur eitthvað þá er það
að kunna að skemmta okkur
heima. Ein hugmynd væri að
lesa saman uppi í rúmi og þar
má sko vel taka einhverjar vel
kryddaðar og skemmtilegar
bókmenntir.
Það þjálfar ykkur líka í að
tala um kynlíf. Þarna eruð þið
ekki að tala um ykkar kynlíf
heldur kynlíf annarra en þið
eruð samt að tala um kynlíf og
eruð þá farin að lýsa einhverju
sem má búa til fantasíur úr,
máta það og meta hvað ykkur
finnst um þessar lýsingar.
Finnst ykkur þær æsandi eða
ekki? Það ætti að leyfa þessum
eina stað í húsinu, svefnher-
berginu, að vera svolítið helg-
aður þessu tali.“
Sigga Dögg segir samtal um
kynlíf vefjast fyrir mörgum.
„Fólk veit ekki alveg hvað það
á að segja, hvernig á að byrja,
hvernig orð það á að nota og
svo eru margir sem hafa ekki
alveg formað fantasíur sínar
og hafa ekki pælt mikið í því
hvað þá langar til að prófa.“
Í svefnherberginu ætti al-
varan og ábyrgðin að vera lögð
20 FÓKUS 12. FEBRÚAR 2021 DV