Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2021, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2021, Side 29
Gullaldartími Hard Rock Hard Rock Café var fyrst opnað á Íslandi sumarið 1987 í Kringlunni. Staðurinn varð fljótt ákaflega vinsæll og lét fólk sig hafa það að bíða löngum stundum eftir borðum. Starfsfólkið var hipp og kúl, maturinn góður og tónlistin hátt stillt. Tómas Tómasson stofnaði Hard Rock. MYNDIR/TIMARIT.IS TÍMAVÉLIN S tarfsfólkið var brosmilt, klætt einkennisbún-ingum, konur í hvítum, stuttum kjólum og hvítum hjólabuxum innan undir og menn í svörtum skyrtum. Barmmerkin skipuðu stóran sess, en allir starfsmenn gengu með barmmerki sem voru einnig seld á staðnum ásamt bolum, böngsum og öðrum varningi. Tónlistin var spiluð hátt og fatnaður og tónlistarmunir úr eigu heimsþekktra lista- manna prýddu staðinn og fljótlega tóku munir frá ís- lenskum stjörnum að bætast við. Staðurinn var að vissu leyti uppreisnarseggur með sinni háu tónlist og var lengi vel eini staðurinn sem var opinn á föstudaginn langa. Tómas A. Tómasson, betur þekktur sem Tommi á Búll- unni, stofnaði Hard Rock árið 1987 en staðnum var lokað árið 2005. Á gullaldartímum Hard Rock var staðurinn ákaflega vinsæll og margir ungir töffarar unnu þar. Tónlistar- og fjölmiðlamenn Gísli Marteinn var 16 ára þegar hann hóf störf á Hard Rock sem „bus boy“ en mögu- leiki var að fá stöðuhækkun upp í „food runners“ eða jafnvel þjónastarf. Valgeir Sigurðsson tónlistarmaður og upptökustjóri hóf einn- ig störf á staðnum 16 ára og störfuðu þeir Gísli saman. Jó- hann Bachmann eða Jagúar- Jói, Frosti Logason fjölmiðla- maður og Einar Bárðarson lagahöfundur og athafna- maður, störfuðu allir á Hard Rock, en Einar rak staðinn á árunum 1999-2000. Margar heitustu hljóm- sveitir landsins stigu á stokk á Hard Rock og voru það ófáar stjörnur sem mættu á kveðjutónleika staðarins árið 2015 þegar skellt var í lás eftir 18 ára rekstur. Þekktir veitingamenn Margir þekktir veitingamenn störfuðu einnig á staðnum og má þá helst nefna Bento Guerreiro, sem er í dag einn umsvifamesti veitingahúsa- eigandi landsins, Haukur Víðisson fyrrum eigandi FÓKUS 29 Vegamóta og stofnandi Saffr- an, Friðrik Ármann Guð- mundsson, Frikki Meló fyrr- um eigandi Melabúðarinnar og Jón Örn Eiríksson eigandi Kjötkompanís. Tommi sjálfur stökk einnig í hin ýmsu störf t.d. sem sætavísa. Hard Rock opnaði að nýju árið 2018 í Lækjargötu en aðrir eigendur eru að baki þeim rekstri. n DV 12. FEBRÚAR 2021 Gísli Mar- teinn byrjaði 16 ára á Hard Rock Café. BLESS Haldnir voru h ö r k u t ó n - leikar árið 2005 þegar Hard Rock í Kringlunni var lokað. TÓNLISTIN LÆKKUÐ Elís sá t il þess að tón- lis t in væri lækkuð – en s t a ð n u m var lokað ári seinna. VANUR MAÐUR Elís Árnason var einn fram- kvæmdastjóra Hard Rock. Hér er hann ásamt samstarfskonum sínum. Elís rak bæði Sjallann, Café Adessó og opnaði á dög- unum breskan pöbb, O‘Lerys, í Smáralind. HARD ROCK STÚLKAN Sara Guðmundsdóttir er ein þeirra sem starfaði á Hard Rock. KVENNAREKSTUR Helga Bjarnadóttir og Kristbjörg Kristinsdóttir tóku við rekstrinum sumarið 1997. Þorbjörg Marinósdóttir tobba@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.