Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2021, Qupperneq 29
Gullaldartími Hard Rock
Hard Rock Café var fyrst opnað á Íslandi sumarið 1987 í Kringlunni. Staðurinn
varð fljótt ákaflega vinsæll og lét fólk sig hafa það að bíða löngum stundum eftir
borðum. Starfsfólkið var hipp og kúl, maturinn góður og tónlistin hátt stillt.
Tómas Tómasson stofnaði Hard Rock. MYNDIR/TIMARIT.IS
TÍMAVÉLIN
S tarfsfólkið var brosmilt, klætt einkennisbún-ingum, konur í hvítum,
stuttum kjólum og hvítum
hjólabuxum innan undir og
menn í svörtum skyrtum.
Barmmerkin skipuðu stóran
sess, en allir starfsmenn
gengu með barmmerki sem
voru einnig seld á staðnum
ásamt bolum, böngsum og
öðrum varningi.
Tónlistin var spiluð hátt og
fatnaður og tónlistarmunir
úr eigu heimsþekktra lista-
manna prýddu staðinn og
fljótlega tóku munir frá ís-
lenskum stjörnum að bætast
við. Staðurinn var að vissu
leyti uppreisnarseggur með
sinni háu tónlist og var lengi
vel eini staðurinn sem var
opinn á föstudaginn langa.
Tómas A. Tómasson, betur
þekktur sem Tommi á Búll-
unni, stofnaði Hard Rock árið
1987 en staðnum var lokað
árið 2005. Á gullaldartímum
Hard Rock var staðurinn
ákaflega vinsæll og margir
ungir töffarar unnu þar.
Tónlistar- og
fjölmiðlamenn
Gísli Marteinn var 16 ára
þegar hann hóf störf á Hard
Rock sem „bus boy“ en mögu-
leiki var að fá stöðuhækkun
upp í „food runners“ eða
jafnvel þjónastarf. Valgeir
Sigurðsson tónlistarmaður
og upptökustjóri hóf einn-
ig störf á staðnum 16 ára og
störfuðu þeir Gísli saman. Jó-
hann Bachmann eða Jagúar-
Jói, Frosti Logason fjölmiðla-
maður og Einar Bárðarson
lagahöfundur og athafna-
maður, störfuðu allir á Hard
Rock, en Einar rak staðinn á
árunum 1999-2000.
Margar heitustu hljóm-
sveitir landsins stigu á stokk
á Hard Rock og voru það
ófáar stjörnur sem mættu á
kveðjutónleika staðarins árið
2015 þegar skellt var í lás
eftir 18 ára rekstur.
Þekktir veitingamenn
Margir þekktir veitingamenn
störfuðu einnig á staðnum
og má þá helst nefna Bento
Guerreiro, sem er í dag einn
umsvifamesti veitingahúsa-
eigandi landsins, Haukur
Víðisson fyrrum eigandi
FÓKUS 29
Vegamóta og stofnandi Saffr-
an, Friðrik Ármann Guð-
mundsson, Frikki Meló fyrr-
um eigandi Melabúðarinnar
og Jón Örn Eiríksson eigandi
Kjötkompanís. Tommi sjálfur
stökk einnig í hin ýmsu störf
t.d. sem sætavísa. Hard Rock
opnaði að nýju árið 2018 í
Lækjargötu en aðrir eigendur
eru að baki þeim rekstri. n
DV 12. FEBRÚAR 2021
Gísli Mar-
teinn byrjaði
16 ára á
Hard Rock
Café.
BLESS
Haldnir voru
h ö r k u t ó n -
leikar árið
2005 þegar
Hard Rock
í Kringlunni
var lokað.
TÓNLISTIN
LÆKKUÐ
Elís sá t il
þess að tón-
lis t in væri
lækkuð – en
s t a ð n u m
var lokað ári
seinna.
VANUR MAÐUR
Elís Árnason var einn fram-
kvæmdastjóra Hard Rock. Hér
er hann ásamt samstarfskonum
sínum. Elís rak bæði Sjallann,
Café Adessó og opnaði á dög-
unum breskan pöbb, O‘Lerys, í
Smáralind.
HARD ROCK STÚLKAN
Sara Guðmundsdóttir er ein
þeirra sem starfaði á Hard Rock.
KVENNAREKSTUR
Helga Bjarnadóttir og Kristbjörg
Kristinsdóttir tóku við rekstrinum
sumarið 1997.
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is