Stefnir - 01.02.1970, Síða 10
ÆSKULÝÐSMÁL
HEIMÞING
ESkl W.llt
(Woa ld a§§embly of youtli)
EFTIR SKÚLA MÖLLER, KENNARA
Æskulýðssaraband Islands samþykkti
á aukaþingi sínu laugardaginn 28. febr.
sl. að segja sambandið úr World Ass-
embly of Youth. Vegna þessarar sam-
þykktar kom ritstjóri Stefnis að máli
við greinaiböfund og bað hann, þar
sem hann sat þingið sem fulltrúi SUS,
að segja lesendum blaðsins frá samtök-
um þessum, sem meirihluti íslenzkra
æskulýðssamtaka telur sig ekki geta
átt samleið með.
Stofnun WAY.
Á síðastliðnu sumri var 7. þing WAY
haldið í Belgíu og var þess þá um
leið minnst að 20 ár eru liðin frá
stofnun samtakanna.
Tildrög að stofnun WAY má segja
að hafi verið þau, að fljótlega eftir
stofnun Alþjóðasambands lýðræðissinn-
aðrar æsku (WEDY), sem stofnað var
seint á árinu 1942, kom í ljós, að þessi
samtök voru orðin handbendi komm-
únistaríkjanna og var því engan vegin
mögulegt fyrir þau æskulýðssamtök,
sem ekki vildu starfa í anda þeirrar
einræðisstjórnar, að standa að þessum
samtökum. Því var það á árinu 1948
að fulltrúar 29 landa komu saman til
fundar í Englandi og ákváðu að kanna
möguleikann á stofnun samtaka, sem
starfað gætu í þágu æskunnar í hin-
um frjálsa heimi. Þessi samtök kornu
aftur saman til fundar í Ashridge í
Englandi 1949 og var formlega gengið
frá stofnun World Assembly of Youth.
Samtökin settu sér strax í upphafi
að starfa í anda Mannréttindasáttmála
S.Þ. og að því að útrýma styrjöldum og
hungri, nýlendustefnu, sundurgreiningu
og einræði. Þrátt fyrir þennan ásetning,
sem hefur verið haldinn að mati flestra
aðildarlanda, þá hafa samtökin verið
sökuð um að styðja stjórnmálastefnu
Vesturlanda. Þessi ásökun hefur eink-
um komið frá löndum, sem hafa að-
hyllzt einhverja þá stefnu, sem sam-
tökin hafa sett sér að berjast gegn,
því með iþví gætu þau bezt unnið í
þágu ungs fólks.
Uppbygging WAY.
Strax við stofnunina var það sett í
lög samtakanna, að þau skyldu vera
samtök landssambanda æskunnar og
viðurkenna aðeins eitt samband í
hverju landi. Var þetta sett í lög til
þess að tryggja að öll landssambönd,
sem sæktu um aðild að WAY væru í
raun fulltrúar allrar æskunnar í aðild-
arlöndunum.
Stjórnun WAY er þannig háttað, að
þing samtakanna, sem er æðsta vald í
málefnum þeirra, kemur saman þriðja
•hvert ár. Á þingum er rædd og sam-
þykkt starfsáætlun WAY fyrir næsta
starfstímabil. Á milli þinga fer stjórn
WAY með stjórnina. Stjórninni til
stuðnings við stjórnunina er fulltrúa-
ráð, sem skipað er fulltrúum 10 Ianda,
en á milli stjómar- og fulltrúaráðs,
funda sér skrifstofa samtakanna, sem
staðsett er í Brussel um að halda starf-
seminni gangandi. Forstöðumaður henn-
ar er aðalritari og hefur hann sér til
aðstoðar einn til þrjá aðstoðaraðalrit-
ara, auk þess annars starfsliðs, sem
þörf er talin vera á.
Á 7. þingi WAY, sem haldið var í
Belgíu s.I. sumar voru fullgildir með-
limir 54 æskulýðssambönd, auk ann-
arra sem ýmist eru aukaaðilar eða
áheyrnarfulltrúar, en samtals munu
vera rúmlega 70 lönd tengd WAY á
einn eða annan veg. Það er því mikið
starf, sem hvílir á starfsliði samtak-
anna, ef starfsemin á að vera nægjan-
lega góð.
Starfsemi WAY.
WAY hefur Iengs'um starfað sem
upplýsingaskrifstofa fyrir aðildarlönd-
in og alþjóðastofnanir er vinna að
æskulýðsmálum. Ennfremur hefur mikl-
um tíma verið varið til að halda æsku-
lýðsleiðtoganámskeið á fjölþjóðagrund-
velli.
Töluverð breyfing hefur orðið á
á starfsemi samtakanna nú hin síðustu
ár, því árið 1963 var s*ofnað til Evrópu-
ráðs æskunnar (CENYC), en Æsku-
lýðssamband íslands var eitt af stofn-
aðilum. Þessi samtök hafa frá upphafi
starfað sem svæðasamband fyrir WAY
í Evrópu, þó ekki séu öll lönd í
CENYC í WAY. Þetta hafði það í
för með sér, að samtökin efldu til muna
allt starf er snerdr þróunarlöndin og
starfa nú að mestu í þeim hluta heims.
Nú síarfa samtökin mest að því, að
starfrækja verkefni ýmis konar í þró-
unarlöndunum og má nefna sem dæmi,
kennslu um fjölskylduáætlanir í Ind-
landi og Mauritius, alhliða þróunará-
ætlun á Ceylon, en nú er ákveðið að
stofna einnig til slíks verkefnis í fleiri
löndum, t. d. Ghana.
Töluverðum starfstíma WAY er varið
til stuðnings frelsisbaráttu ríkja í
ánauð og er meðal annars rekin um-
fangsmikil útgáfustarfsemi í því sam-
bandi.
Samskipti við önnur fjölþjóðasamtök
eru nokkur og fara stöðugt vaxandi.
Samskiptin við Alþjóðasamband lýð-
ræðissinnaðrar æsku hafa lengstum
verið stirð, en hafa farið batnandi hin
síðari ár og er það ekki sízt að þakka
CENYC, en öll starfsemi þeirra sam-
samtaka eru með fullu samþykki WAY.
Gagnrýni á WAY.
Það fer ekki hjá því að gagnrýni
hefur verið höfð í frammi á starfsemi
samtaka sem WAY. Hefur sú gagn-
rýni í mörgu átt rétt á sér, en einnig
hefur hún verið af stjórnmálalegum
toga sprottin. Helztu gagnrýnispunktar,
og um leið þeir alvarlegustu, eru vegna
fjármögnunar á starfseminni.
Starfsemi WAY er að mestu rekin
fyrir fé, sem fæst hjá ýmsum alþjóða-
stofnunum og samtökum, einnig sjóð-
um einstakra þjóða.
I byrjun árs 1967 upplýstist að einn
af sjóðum þeim, sem styrkt höfðu
starfsemi WAY, Foundadon for Youth
and Student Affairs í Bandaríkjunum,
var sakaður um að hafa fengið fé sitt
beint frá CIA, bandarísku leyniþjón-
ustunni. Þess var krafist að athugun
færi fram á því, hvort þetta væri rétt,
en nefndin sem skipuð var komst ekki
10