Stefnir - 01.02.1970, Side 12

Stefnir - 01.02.1970, Side 12
FÉLAGSMÁL Ekkert lnxuslíf Þegar framfærslumál höfuðborgar- innar ber á góma láta margir í ljós þá sannfæringu sína, að fjöldi manns lifi kóngalífi á útsvörum borgaranna. Þess er getið að meðan Jón Jónsson striti í sveita síns andlits við að sjá fjölskyldu sinni farborða, lifi fjöl- skylda Sigurðar Sigurðssonar áhvggju- laust á framlögum frá borginni, hús- næði, matarpeningum og fatnaði. Og það sem verra er, að Sigurður Sigurðs- son reyni ekki að fá vinnu á meðan hann hefur það svona gott. Það er ekki ósjaldan sem menn þvkj- ast bafa orðið varir við, að Sigurður Sigurðsson rússi um fullur í leigubíl og láti skrifa hann hjá borginni. Að kona Sigurðar kaupi á sig föt í dýrustu verzlunum bæjarins, að vísu ekki nokkr- um tilteknum tízkuverzlunum — og þó. Og svo heyrist gjarnan að þessir sveita- ómagar bregði sér út fyrir landstein- ana í sól og sumar á fjölsóttum bað- ströndum. Ekkert af þessu er nærri veruleikan- um. Meðalupphæð beinna framfærslu- styrkja er um 20 þúsund krónur á mann árlega. Langstærsti hluti þessar- ar upphæðar er húsaleiga, sem borgin greiðir og afhendir ekki styrkþegum. ■Nokkur hluti er skrifleg heimild til fatakaupa, sem miðast við meðalverð á fatnaði á hverjum tíma. Fjölskylda Sigurðar Sigurðssonar fær að vísu matarpeninga í beinhörðu, en því að- eins að hún sé fær um að meðhöndla þá peninga. Ofdrykkjumenn, sem ekki þola að fá peninga í hendurnar sjá aldrei grænan eyri af því fé, sem Reykjavíkurborg Ieggur þeim til fram- færslu. Höfuðviðfangsefni framfærslunnar eru einstæðar mæður með börn, lang- flestar með 1—4 börn og yfir helming- ur þeirra með 2—3 börn, barnmörg hjón, sem geta ekki framfleytt sér og sínum vegna örorku eða veikinda og aldrað fólk, sem getur ekki lengur unnið. Af 437 fjölskyldum, sem nutu fram- færslustyrkja hjá Reykjavíkurborg ár- ið 1968 (nýrri tölur eru ekki tilbúnar) voru 239 einstæðar mæður með sam- tals 602 börn og 197 hjón með 646 börn og einn karlmaður með börn. — Það leikur yfirleitt enginn vafi á því, að þessar fjölskyldur voru aðstoðar- þurfi, þegar þær leituðu á náðir borg- arinnar. Hins vegar má vera að ástæð- ur einhverra 'batni, án þess að starfs- menn framfærslunnar verði varir við það undir eins. Enda er eftirlitið ekki jafnmikið og þeir vildu hafa bað. En svo mikið er eftirlitið þó, að aldrei geta liðið nema tveir, þrír mánuðir þar til framfærslan kemst að hinu sanna. Og Sigurður Sigurðsson gerir ekki mikið fyrir peninga framfærslunnar á meðan. Alls notaði Reykjavíkurborg um 30 milljónir króna til beinnar framfærslu árið 1968, sem voru 2.8% af heildar- útgjöldum 'hennar 'það árið. Styrk- þegum hafði fjölgað nokkuð frá árun- um á undan vegna atvinnu'leysisins. En meðan vinna var næg hafði fólki á fram- færslu fækkað hlutfallslega um skeið. Sennilega mætti fækka fólki á fram- færslu ef nauðsynleg atvinna væri fyrir 'hendi og að hinu leytinu að til væri þjálfað starfsfólk, sem gæti hiálpað þeim sem hafa orðið undir í lífsbar- áttunni til að rétta sig við. En á meðan þessu er ekki til að dreifa, hlýtur fram- færslan að halda uppteknum hætti, — ekki fyrst og fremst vegna fólksins sem fer halloka heldur veena barnanna, sem geta annars litla eða enga björg fengið. Dagsverkið A3 segja þaS lygi eda sannleika í dag, er sagl var í gœr þvert á móli, þaS verSur aS endingu vanajag í veraldar baráttu og róti. 1 . ■ l En dýrSlegt er ekki dagsverk mitt til drauma, er ég loka hvarmi. Ó, lof sé þér Stalin, en steinbarniS þitt — á stundum er þungt undir barmi. KVEUJUIt Útvegum allar fáanlegar erlendar bækur og tímarit. BÓKAVERZLUN SNÆBJARNAR JÓNSSONAR & CO. Hafnarstrœti 4 - Sími 11936 Hafnarstrœti 9 - Sími 13133 L U K T I N H F. Snorrabraut 44 - Sími 16242 KaupiS TRABANT! Ingvar Helgason heildverzlun Vonarlandi, Sogamýri 6 Símar: 84510 - 84511. STEINDÓRSPRENT H F. er flutt í Ármúla 5 - Sími 11174. Stœrsta bókband landsins! FÉLAGSBÓKBANDIÐ H F. SíSumúla 10 - Reykjavík - Sími 30300. DÓSAGERÐIN H F. Borgartúni 1 - Símar: 12085 - 14828. BJÖRGVIN SCHRAM UMBOÐS- OG HEILDVERZLUN Hafnarhvoli, Tryggvagötu - Sírni 24340. STURLAUGUR JÓNSSON & CO. Vesturgötu 16 - Sími 14680. Falur til allra ferSa! BIFREIÐALEIGAN FALUR HF. RauSarárstíg 31 - Sími 22022. FISH & CHIPS Fish & chips, djúpsteiktir kjúklingar, síldarréttir. Kaffi, kakó, smurt brauð, yfir 15 teg. HeimabakaSar kökur. Höfum fast fœSi. Sendum. — PantiS í síma 34780. SMÁRAKAFFI - Laugaveg 178. ALMENNAR TRYGGINGAR HF. Pósthússtræti 9 - Sími 17700. 12

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.