Gisp! - 01.12.1991, Page 3
Jólagóði lesandi.
Enn komum við siglandi í Gispl-bátnum beint í
hátíðarhendur þínar og bjóðum þér að kíkja í pokann okkar.
Frá sumarlokum hefur ritstjórnin stundað skipasmíðar með
aðstoð rauðklædda gerviskeggjakallsins og hugsað sem svo að
ekki veiti af jólastjörnuskini í svartnætti þjóðálsmissisins. Því
flögra englar og framliðnir jólasveinar um í bland við dauða og
djöful, allt samkvæmt gisplegri jólaglögg. Nýir höfundar gera
vart við sig, eldri herða róðurinn og ritstjórn er sönn ánægja að
taka með sem heiðursháseta kómikskallinn Erró frá París og
hreyfimyndasmiðinn S0B frá Hafnarfirði. Úrslit í Mynda-
sögukeppninni eru kynnt og Hetjuþjónustunni hleypt af
stokkunum sem og Unglingasíðunni.
Svo eru að koma áramót. Síðasti fjórðungur ársins og fjórða
tölublaðið: ætti ritstjórnin að líta niður og kanna barnstærnar,
athuga skóslitið? Er kannski komið að endurnýjun á skó-
fatnaði? Fullorðinstær kalla á fullorðinsskó.
Gisp! hefur víða komið við á liðnu ári. Höfundar blaðsins
hafa lesið uppúr blaðinu á diskótekum og á torgum
Reykjavíkur og staðið að þremur myndasagnasýningum. Hin
fyrsta var í Djúpinu um síðastliðin áramót, önnur í Ásmundarsal
í febrúar í boði Arkítektafélags íslands. Þar hélt Bjarni
Hinriksson fyrirlestur um arkítektúr í myndasögum og var sá
fyrirlestur fluttur í MHÍ. í júní og júlí héngu myndasögur á
vegum Gisp! á göngum Menntamálaráðuneytisins í boði þess
og er óhætt að segja að sú sýning hafi vakið viðbrögð hjá
ráðamönnum þjóðarinnar.
Það sér ekki fyrir endann á Gisp!-bylgjunni, því margt er á
döfinni. Á nýju ári komum við sjaldnar út en talsvert stærri og
örugglegra vandaðri. Til viðbótar við birtingu myndasagna er
ætlunin að halda áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið í
tveimur síðustu blöðum; að birta greinar og fréttatengt efni,
einnig um skyld málefni s.s. tölvugrafík og myndbönd, sem og
að kynna teiknara með viðtali og birta þýddar sögur erlendra
höfunda. Einnig viljum við hvetja lesendur til að senda okkur
efni: myndasögur, lofrullur, níðbréf, o.s.frv. Flaggskipið er og
verður Gisp! en sérhefti og bækur eru í undirbúningi. Auk þess
er von til að verk fremstu höfunda Frakka (Moebius, Bilal...)
komi hingað til sýningar í eitt af listhúsum borgarinnar og það
fyrir tilstilli Gisp!
Að lokum: Myndasögur fyrir fullorðna eiga sér ekki breiðan
lesendahóp hérlendis, en ritnefnd Gisp! er þess fullviss að
hópurinn sé stærri en sölutölur blaðsins gefa til kynna og að
blaðið sé orðið rótgróið í hérlendri tímaritaflóru. Því óskum við
hér með eftir liðsinni lesenda í áskrifendasöfnun. Áskriftar-
beiðnir má senda til Gisp! á Laufásvegi 20 eða hringja í síma
25659 eða 623413.
Gisp! lofar lesendum sínum geispalausum jólum.
2
MADE IN KOCHI • ERRÓ
4
JÓNASAGA • Ólafur J. Engilbertsson
9
HÁDEGI íHAFRADAL • Bjarni Hinriksson
18
DAUÐI OG DJÖFULL • Jóhann Torfason
22
GISP! FRÉTTIR
25
JÓLANÓTT • Þorri Hringsson
28
S0B í VIÐTALI
30
BÍSI OG KRIMMI • S0B
36
NANÓ Á ÍSLANDI • Laura Valentino
39
MADURINN SEM SEFUR EKKI • Halldór Baldursson
40
NÚMER 9 • Halldór Baldursson
47
JÓL íSKRIÐUHLÍÐ • Finnur Malmquist
52
VERÐLAUNASAGAN FRÍÐA FRÍÐA • Þórólfur Eyvindsson
54
KLIKK • Stígur Steinþórsson
63
UNGLINGASÍÐAN
64
STULLI íMINNISBÓK GUÐS • Gunnar Hjálmarsson
67
RÉTTARHOLTSSKÓLI ,69-,72 • Guðjón Ketilsson
68
IT TAKES ALL KINDS • S0B
Utgefandi: GISP! útgáfufélag, Laufásvegi 20, 101 Reykjavík og
Langagerði 21, 108 Reykjavik, sími 25659 og 681955. Ritnefnd:
Þorri Hringsson, Ólafur J. Engilbertsson, Jóhann L. Torfason,
Halldór Baldursson, Bjarni Hinriksson. Ábyrgðarmaður: Bjarni
Hinriksson Útlitshönnun: Grafít Forsíðumynd: Bjarni
Hinriksson. Litgreining: Heimir B. Janusson Filmugerð: Repró
Prentun innsiðna: Prentsmiðjan Run Prentun kápu og
jólakorta: Svansprent Sérstakar þakkir: Finnur og Hilmar
©oppíræt áskilið höfundum, en Ijósritun er heimil ef tilkynninga-
skyldan er látin vita.