Gisp! - 01.12.1991, Blaðsíða 29
haustið 1983, undir yfirskriftinni „It takes all kinds", mér fannst ekki hægt að þýða þá yfirskrift yfir á íslensku."Ég spyr þig þá
eins og popparana. Átti kannski að meika það í útlöndum? „Nei, alls ekki!" Hafa þessar myndir birst einhvers staðar? „Auglýs-
ingastofa Kristínar keypti útgáfuréttinn til sex ára en ekkert varð úr útgáfu. En ég hef sýnt þær víða erlendis, m.a. í Finnlandi."
Blaðamanni GISP! hlýnar um hjartaræturnar þegar hann heyrir minnst á Finnland. Finnlandsævintýri GlSPara ættu að vera hörð-
ustu GISP lesendum kunn og verða ekki tíunduð hér. En af hverju að sýna það sem flestir myndu kalla skrípómyndir í listagaller-
íi? „Ég er ekki á því að skipta listinni í hálist og láglist. Ég sé engan mun. Menn fá hugmynd sem þeir framkvæma á myndrænan
hátt. Það getur legið djúpt pæld hugmyndafræði á bak við sakleysislega myndasögu jafnt sem flottasta minimalisma." Nú köf-
um við enn aftar í fortíð S0B. Þú hefur nátt-
úrulega teiknað frá blautu barnsbeini? „Ég
hef nú aldrei skilið af hverju er talað um
barnsbein sem eitthvað blautt." Kynlegar
hryllingsmyndir taka nú að sveima fyrir hug-
skotssjónum blaðamanns, sem ákveður að
hlaupa yfir nokkur ár. Þú byrjar ungur í MHÍ,
en þar hafa svona skrípómyndir ekki átt neitt
sérstaklega upp á pallborðið. Hvernig gekk?
„Ég varð að lifa tvöföldu teiknilífi vegna hót-
ana kennara. Skrípóið lifði heima en alvaran
í skólanum. Torfa Jónsson, þá kennara í auglýsingadeild grunaði eitthvað og lét mig sýna sér heimavinnuna og leist vel á þegar
til kom." Þú ert kannski aðallega þekktur fyrir teiknimyndagerð, fannstu smjörþefinn af henni í MHÍ?„iá, ég og Bóbó (Hilmar
Helgason) komumst yfir bók um teiknimyndagerð og það var svo nokkrum árum síðar að ég var beðinn um að gera teiknimynd,
auglýsingu, þá hringdi ég í Bóbó og fékk hjá honum bókina." Var þetta auglýsingin með Jóakim? Blaðamaður tekur að syngja:
„íkistu minni geymi ég gullið", hástöfum. „Nei, það var seinna. Þessi var um líftryggingar og var tekin úr umferð eftir 2-3 sýn-
ingar." Af hverju? „Hugmyndafræðin í myndinni fór eitthvað fyrir brjóstið á fólki. Myndin sagði frá manni sem varð fórnarlamb
hræðilegs skrímslis. Kona hans syrgir hann auðvitað nema svo kemur allt í einu Púff! og peningapoki birtist og hún verður voða
glöð." Blaðamaður ygglir sig. „En ég hélt að þetta væri það sem líftryggingar gengu út á," segir S0B alltaf jafn saklaus. Við
stiklum á stóru, alveg yfir í framtíðina, yfir Þrymskviðu og smámyndir unnar í samvinnu við Svía og Ungverja. Framtíðin S0B,
hvað ber hún í skauti sér? „Ég er nú að fara að vinna myndir í samvinnu við Litháa og Eistlendinga. Ég mun semja handrit og
stjórna gerð myndanna en þeir sjá um að animera, þeir eru svo flinkir í því." Er kannski draumurinn að gera mynd í fullri lengd?
„Nei, því eins og ágætur maður sagði: „life's too short for a long animation". HB