Gisp! - 01.12.1995, Blaðsíða 13

Gisp! - 01.12.1995, Blaðsíða 13
Þorri Hringsson Hátt og lágt Hugleiðing um menningu, myndlist og myndasögur. Þegar lagt er upp meö sýningu sem fjallar um birtingu myndasagna í myndlist er ekki úr vegi að reyna að átta sig á hvaða forsendur liggja að baki þess konar sýningu. Hvað er svona merkilegt við að sjá skrípófígúrur í mál- verkum, teikningum og skúlptúrum alvarlegra myndlistar- manna? Hversvegna leggjast fullorðnir myndlistarmenn svo lágt að nota tákn, ímyndir og stíl úr tjáningarformi, sem er ekki bara ómerkilegt heldur að sumra mati bein- línis mannskemmandi og er það yfirhöfuð eitthvað forvitnilegt? Flestir gera sér einhverja grein fyrir því að það er mikill munur á myndasögum og myndlist en til að skilja hvernig sá mismunur er tilkominn er mikilvægt að gera sér grein fyrir menningarumhverfinu sem heild og hvernig mynda- sögur og myndlist falla inn í það umhverfi. Eitt af því sem vakið hefur forvitni margra þeirra sem fjalla um listir er hvernig hægt er að raða tjáningarform- um [og formbrigðum} í ákveðina virðingarröð og fá þann- ig fram fyrirbæri sem nefnt hefur verið annarsvegar hámenning og hinsvegar lágmenning. Landamærin þarna á milli eru í einhverjum tilfellum dálítið á reiki en þrátt fyrir það er það ótrúlegt hvað flestir, jafnvel þeir sem ekki eru virkir menningarneytendur eru vissir í sinni sök hvaða form eða formbrigði falla í hvorn flokkinn. Lágmenning getur einnig gengið undir öðrum nöfnum svo sem fjölda- menning [mass-culturej og vinsældamenning Cpopular culture] en í meginatriðum er um sama inntakið að ræða; samspyrða af tjáningarformum sem njóta ekki jafn mikillar virðingar og önnur. Forvitnilegasta spurningin er auðvitað sú hvaðan þessi skipting í há- og lágmenningu er komin? Hvers vegna er þörf á þess konar aðgreiningu-því það má heita öruggt að hún þjónar mjög ákveðnum tilgangi-að hún sé ekki komin innanfrá formunum sjálfum heldur utanfrá og e.t.v. frá öflum sem tengjast þessum formum aðeins að litlu leyti. Kannski verðum við að hverfa aftur til þeirra tíma þegar forfeður manna og apa voru uppi, fyrir nokkrum tugum miljóna ára og reyna að finna hliðstæður þar við þessa skiptingu í há- og lágmenningu. Menn hafa það nefni- lega sameiginlegt með forfeðrum sínum og flestum öðr- um dýrategundum að keppast við að komast af. Darwin kallaði það „survival of the fittest" eða „þeir hæfustu komast af“ sem er einn lykillinn að þróunarkenningu hans. Dýr sem hafa ákveðna eiginleika til brunns að bera s.s. kunnáttu, afl eða útlit voru líklegri, að hans mati, til að ná þeim þroska að geta af sér afkvæmi og borið hina jákvæðu eiginleika til næstu kynslóðar og þannig koll af kolli þar til ný Cog jafnframt hæfari) tegund leit dagsins Ijós. Þessa eiginleika mætti draga saman í eitt orð, vald. Þeir sem hafa völd, hvort sem þau völd snúast um meiri kunnáttu, meira afl eða betra útlit þá eru það eiginleikar sem gera viðkomandi valdameiri og af þeim sökum standa þeir betur að vígi en hinir sem ekki hafa þá í jafn ríkum mæli. í heimi dýranna virðast þetta vera augljósar staðreyndir en í raun og veru breytist þetta í fáum atriðum þegar maðurinn kemur fram sem sjálfstæð dýrategund. Meðal manna, rétt eins og dýra, er það þeirra megin keppikefli að tryggja sér völd, viðhalda þeim eða auka. Það sem greinir þó menn frá dýrum að einhverju leiti er hvernig samfélagsstaðan er er sýnd, því umfram þau spendýr sem lifa í hópum þá eru samfélög manna oft á tíðum grfðar- lega stór og flókin og þörfin fyrir að skilja á svipstundu hvar nýr einstaklingur er í valdaröðinni miklu meiri. Maðurinn var líka mjög fljótur að læra að sú leið sem dýr viðhafa, til að kanna hvort nýr einstaklingur sé valdamikill eða ekki, er alltof tímafrek og ógnar undirstöðum hins mannlega samfélags; þ.e. menn gátu hreinlega ekki verið að slást við alla nýja einstaklinga sem á vegi þeirra urðu enda kom það íljótlega á daginn að líkamlegur styrkur var ekki eins mikilvægt valdatæki og hjá frændum okkar dýrunum. Það sem maðurinn hafði einnig umfram dýrin var að hann gat notað tákn til að koma til skila samfélagsstöðu sinni og jafnvel svo auðþekkjanleg tákn að þau eru skilin án þess að menn þurfi að talast við Csvo er heldur ekkert tryggt að allir innan sama samfélags tali sama tungumál] og geta jafnvel verið greinanleg af löngu færi. Þessi hjálpartæki köllum við gjarnan stöðutákn. Til þess að sýna að til sé valdaröð í samfélaginu koma einstaklingarnir innan þess sér saman um að ákveðin tákn standi fyrir ákveðna andlega eða veraldlega eigin- leika og þá sér í lagi völd þess einstaklings sem þau til- heyra. Táknin geta svo verið með ýmsu móti s.s. líkams- skraut, klæðnaður, híbýli, menntun og einnig ógrynni af 11

x

Gisp!

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gisp!
https://timarit.is/publication/1525

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.