Fréttablaðið - 17.02.2021, Síða 26
Þegar maður
tek ur fleiri skref í
átt að hindr un um þýðir
það að verk efnið
verður þá stærra,
að af nema það
að nýju.
Þórdís Kolbrún
Gylfadóttir, ferða-
málaráðherra
16.02.2021
MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is
Miðvikudagur 17. febrúar 2021FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
Helgi Vífill
Júlíusson
SKOÐUN
Hollenski bankinn ABN Amro verður stjórnendum Íslandsbanka til ráðgjafar við undirbúning á sölu á 25 til 35 pró-
senta hlut í bankanum í gegnum hlutafjárút-
boð og skráningu á markað síðar á árinu.
Með ráðningu á ABN Amro er meðal ann-
ars horft til þess að Bankasýslan, sem heldur
utan um 100 prósenta eignarhlut ríkisins í
Íslandsbanka, hefur talið skynsamlegt að líta
til reynslu systurstofnunar sinnar í Hollandi
– NFLI – þegar hollenski bankinn var skráður í
kauphöllina í Amsterdam í nóvember 2015, með
sölu á 23 prósenta hlut.
Hollenska ríkið yfirtók ABN Amro í kjöl-
far alþjóðlegu fjármálakreppunnar en eftir
skráningu á markað hefur ríkið haldið áfram
að minnka eignarhlut sinn í bankanum – með
sölu á 6,9 prósenta hlut í þrígang á árunum
2016 og 2017 – og er enn í dag stærsti hluthaf-
inn með rúmlega 56 prósenta hlut. – hae
Fær ABN Amro sem ráðgjafa við sölu
Birna Einarsdóttir,
bankastjóri Ís-
landsbanka.
Hugmyndir um sam-félagsbanka hafa fengið byr í seglin að undan-
förnu. Sannast sagna minna
þær á hugljúfa drauma, að
bankar án hagnaðarsjónar-
miða muni þjóna samfélaginu
með betri hætti.
Ef til vill ýta rangfærslur
undir þá drauma á borð við
þær sem Indriði H. Þorláksson,
fyrrverandi ríkisskattstjóri
og aðstoðarmaður fjármála-
ráðherra um tíma, bar á torg í
greinaskrifum, að hámörkun
hagnaðar einkabanka hafi í för
með sér hámarkskostnað fyrir
almenning. Sú fullyrðing er
einfaldlega röng. Hagræðing í
rekstri og samkeppni um við-
skiptavini, lykilatriði í einka-
rekstri, virðist ekki hafa náð
til hans. Þessi atriði skipta líka
sköpum á litlum mörkuðum.
Reynt hefur verið að reka
samfélagsbanka hérlendis
með ýmsu sniði. Annars vegar
hefur Íbúðalánasjóður, sem
var umsvifamikill áður en
viðskiptabankarnir yfirtóku
húsnæðislánamarkaðinn á
árunum fyrir hrun, valdið rík-
inu ómældu tjóni. Hins vegar
urðu sparisjóðir að lúta í lægra
haldi um viðskiptavini fyrir
viðskiptabönkunum. Þetta er
þróun sem átt hefur sér stað
alþjóðlega. Til að mæta þeim
áskorunum var sparisjóðum
á Ítalíu breytt í hlutafélög og í
Frakklandi var reynt að koma á
samvinnulýðræði í sparisjóða-
kerfinu en gekk illa.
Samfélagsbankar geta ekki
keppt við einkabanka. Stjórn-
endur þeirra skortir aðhald frá
eigendum. Því verður rekstur-
inn óhagkvæmari og lánskjör
verri, sem leiðir til þess að við-
skiptavinir leita annað. Réttir
eigendur að fyrirtækjum geta
skipt sköpum fyrir rekstur,
enda hafa mörg fyrirtæki
gengið í gegnum endurnýjun
lífdaga þegar nýir hluthafar
koma að málum.
Það væri bjarnargreiði ef
ríkisbönkunum yrði breytt
í samfélagsbanka. Eigið fé
Íslandsbanka og Landsbank-
ans er samanlagt 444 milljarð-
ar króna. Mun skynsamlegra er
að selja þá og nýta fjármunina
til að byggja innviði og greiða
niður ríkisskuldir. Ríkið er
ekki góður eigandi að bönkum,
heldur er slíkt eignarhald upp-
skrift að stöðnun, hnignun og
loks miklu tapi. Almenningur
mun sitja eftir með sárt ennið.
Hugljúfir
draumar
Suðurlandsbraut 20
Val á flísum sem standast tímans tönn krefst útsjónarsemi
og þekkingar. Flísar frá Ítalíu og Spáni, brenndar, rétt
skornar og í fyrsta flokki, skipa sér þar með í flokk bestu
fáanlegu flísa. Það skilur á milli famleiðanda þegar
kröfurnar eru miklar. Kynntu þér flísarnar í verslun okkar
Suðurlandsbraut 20.
108 Reykjavík Sími: 595 0500 www.egillarnason.is Opnunartímar: mán–fös kl.9–18Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000
Sterkari saman
í sátt við umhverfið