Fjarðarfréttir - 07.04.1969, Side 3
Fjarðarfréttir
3
UllllllllllllllllllllMlllllllliri.il I IIIIIIIIIIMIMIlllMllllllllliri II I I I IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIMl
Ljósmyndastofa Hafnarfjarðar
| Strandgötu 35 C |
{ FERMINGARBÖRN HAFNARFIRÐI! I
1 Ljósmyndastofan er opin þá daga, sem fermt er,
1 og þau kvöld, sem gengið er til altaris.
I Pantanir í síma: 50232 — Heimasími: 52520 ' *
= lnllil l iiiii I I l l 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 i'ir II i l l iiiilllllllilllllllllllll -
Hafnfirðingar!
Munið að greiða gjaldfallin brunabótaiðgjöld nú þegar, 1
| svo komizt verði hjá aukakostnaði vegna frekari |
| innheimtuaðgerða. |
Brunabótafélag íslands
| Hafnarfjarðarumboðið Strandgötu 45 |
1 SÍMI 51103 |
■ lllllll I’II IIMIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIMIIII IIIIMIIIIIIIMII I. lllllllllllllllllil.il I I I lllli:illlllllllllllll il 11111111111111 =
Talstöðvabílar
í Hafnarfirði og Garðahreppi
Fljót og örugg þjónusta
NÝJA BÍLSTÖÐIN
Sími 50888
i I .I:I■ 111111 I IIIIIMIIIIIIIIII II lllllllllllllllllllllllill I I I. I I I llll II I II I I 1:1. I. I I I IMI I I I I I. II IMIlTÍ
V E RÐTRYGGÐ
L. f FT RYG G I N G
Tryggingafræðingur Andvöku hefur útbúið nýja verðtryggða líftryggingu, sem er
algjör nýjung hér á landi.
Gamla líftryggingaformið, sparilíftryggingin, sem flestir kannast við, kemur nú, því
miður, ekki að tilætluðum notum.
Þessi nýja trygging, sem er hrein áhættulíftrygging, er sérstaklega sniðin fyrir lönd,
þar sem ör verðbólga hefur komið í veg fyrir eðlilega starfsemi líftrygginga, eins og
t.d. hér á landi. í tryggingunni hækkar tryggingarupphæðin og iðgjaldið árlega
samkv. vísitölu framfærslukostnaðar.
Dæmi: Hefði Sigurður Sigurðsson, sem var þrítugur 1962, líftryggt sig fyrir
kr. 222.000.00 og greitt þá kr. 1.000.00 í iðgjald, væri hann tryggður í dag fyrir
kr. 317.000.00 og greiddi kr. 1553.00 í iðgjald.
Vér hvetjum alla fjölskyldumenn, sem hafa velferð
fjölskyldu sinnar í huga, að hafa samband við Aðal-
skrifstofuna Ármúla 3 eða umboðsmerin vora og
fá nánari upplýsingar um þessa nýju líftryggingu. ÁRMÚLA 3 - SÍMI 38500
LJFTRYGGirVGAFÉLAGIÐ AVDVAK.V
Framkvœmdum við Straums-
vík miðar vel ófram
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið fékk hjá íslenzka Álfélag-
inu, ganga framkvæmdir fylli-
lega samkvæmt áætlun, nema
nokkrar tafir hafa orðið í sam-
bandi við höfnina, af ófyrirsjá-
anlegum ástæðum. Framleiðsla
mun geta hafizt seinni hluta
þeissa árs, eins og ráð var fyrir
gert.
♦ Hafnfirðingar hafa miklar
beinar tekjur af ÍSAL.
Ef framleiðslu-afköst verða sam-
kvæmt því, sem uphaflega var
ákveðið, mun framleiðslugjald það,
er Hafnarfjarðarbær fær til jafnað-
ar frá ISAL nema álíka upphæð og
helmingur allra útsvara í bænum
er nú. Nú eru einnig miklar líkur á
því, að verksmiðjan verði stækkuð
og ný tæki, sem beitt er við vinnslu
málmsins, geta valdið því, að fram-
leiðslan verði mun meiri en upphaf-
lega var áætlað. Þetta þýðir það,
að tekjur okkar geta orðið mun
meiri en hér er talað um. Samið er
um gjaldið í dollurum, þannig, að
verði gengisbreytingar, breytist
krónutalan í samræmi við það. Auk
þess eru óbeinar tekjur geysimiklar.
♦ Vinnulaun um 90 milljónir
króna á ári.
Við verksmiðjuna munu starfa að
staðaldri 350 manns. Óhætt er að
gera ráð fyrir, að verulegur hluti
þess mannafla verði búsettur í
Hafnarfirði. Nú nýlega hafa verið
auglýstar um 50 stöður, sem ráðið
verður í í sumar. 36 Hafnfirðingar
sóttu um þessar stöður og munu
flestir þeirra verða ráðnir, því að
öðru jöfnu mun ISAL leitast við að
láta Hafnfirðinga ganga fyrir. Á
tímum lítillar atvinnu hefur þetta
mjög mikla þýðingu fyrir okkur
Hafnfirðinga.
♦ Höfnin.
Efnið, sem notað er til álfram-
leiðslu, er flutt með stórum skip-
um, aðallega frá Afríku. Þessi skip
eru það stór, að þau koma aðeins
nokkrum sinnum á ári. Að því leyti,
sem ISAL þarf ekki að nota höfn-
ina, geta Hafnfirðingar notfært sér
þetta aukna hafnarrými.
ISAL greiðir allar afborganir og
vexti af þessum hafnarframkvæmd-
Almennar Tryggingar h.f.
Skrifst.: Linnetsstíg 3, Hafnarfirði
Sími 50960
Umboðsmaður heima: Sími 51066
„Traustir skulu hornsteinar hárra sala.“
um, og að 25 árum liðnum eiga
Hafnfirðingar höfnina skuldlausa,
og eru þessi mannvirki upp á
hundruðir milljóna.
♦ Þjálfun starfsmanna.
Milli 30 og 40 starfsmenn hafa
nú hlotið sérþjálfun á vegum ÍSAL.
Þjálfun þessara manna kostaði um
kr. 15.000.000,00. Má af þessu sjá,
hve mikla áherzlu fyrirtækið legg-
ur á að búa starfslið sitt vel undir
starfið. Er það önnur og veigamikil
hlið á þessu máli. Ný verkmenning
heldur innreið sína og frá henni
mun síast tækni, kunnátta og hug-
vit, sem mun skjóta frjóöngum í
atvinnulífi okkar Islendinga, þjóð-
inni til framdráttar.
♦ Stöndum vörð um risann í
bæjarlandi Hafnarfjarðar.
Engir eiga meiri hagsmuna að
gæta en við Hafnfirðingar, að vel
takist til með framleiðslu og rekst-
ur þessa mikla fyrirtækis. Við þurf-
um því að vera vel á verði um
hvað eina, bæði í stóru og smáu, er
eflt getur og aukið afköst þessa
mikla risa. Þeim mun stærri verð-
ur okkar hlutur.
- Sorpeyðingarmólin
(Framhald af bls. 1)
hjá fara, svo ekki sé minnst á
ódauninn, sem lagzt getur yfir ná-
læg hverfi. Þó það sé staðreynd, að
sorpbrennsla verði mun dýrari en
sú aðferð, sem við notum nú, þá
getur það líka verið dýru verði
keypt að hafa þá framkvæmd á að
eyðileggja fallega staði í nágrenni
bæjarins. Þessi mál verður að leysa
af framsýni.
FjarðaefrÉttir munu fylgjast
vel með þessum málum, og heitir á
bæjarbúa að leggja orð í belg.