Fjarðarfréttir - 14.11.1970, Blaðsíða 9
FJARÐARFRÉTTIR
9
Á Reykjanesskaga eru fólgnar óþrjótandi auðlindir í orku hverasvæðanna. Ný-
lega var lokið við að bora 1800 m djúpa borholu í nánd við Reykjanesvita.
Úr þessari holu kom geysimikið gos, og náði gufustrókurinn 100 m í loft upp.
Umferðartalning
Fyrir skömmu fór fram
inikil umferðartalning liér í
Hafnarfirði. Var það Jóhann
Bergþórsson, verkfræðingur,
sem hafði umsjón með fram-
kvæmd þessarar talningar á
vegum verkfræðiskrifstofu
hæjarins. Er talningin liður i
skipulagðri gatnagerðaráætlun.
Var ieitað til nemenda 4. bekkj-
ar í Flensborgarskóla um að-
stoð, og alls voru við talningu
úr þeirra hópi um 90 teljarar.
Stóð könnun þessi yfir einn dag,
frá kl. 7 að morgni til 21 að
kvöldi. Talningu var þannig
háttað, að á 21 stað í hænum
voru settir teljarar og sums
staðar fleiri en einn á sama
stað. Alls voru 37, sem töldu í
einu i 14 tíma, þannig að vinnu-
stundir urðu samtals 518. All-
ir bílar, sem óku inn í bæinn
voru taklir, og þar sem númer
bílanna voru einnig skráð, var
hægt að rekja ferðir bílsins inn-
Höfðingleg gjöf
Kiwanisklúbburinn Eldborg í
Hafnarfirði hefur ákveðið að
gefa bæjarfélaginu tannlækn-
ingatæki fyrir um það bil 200
þúsund kr. — Eru þau ætluð
skólatannlæknaþjónustunni.
Hér er um mjög rausnarlega
gjöf að ræða, og ekki hægt
annað að segja, en klúbburinn
fari mjög vel af stað, en hann
var stofnaður fyrir tæpu ári.
Knattspyrnumót
Framhald af bls. 5.
ina í þessum flokki, þann fyrri með
2 mörkum gegn 1, og þann síðari
með 4 mörkum gegn 1. Báðir leik-
irnir voru jafnir framan af en
framlína F.H. var beittari, og réði
Það úrslitum.
3. flokkur: Haukar komu nokkuð
á, óvart með frammistöðu sinni í 3.
flokki. F.H.-ingum, sem unnu
Hauka með 21 marki gegn engu í
September mótinu, tókst nú aðeins
að skora 5 mörk samtals í báðum
leikjunum. Þann fyrri vann F.H.
*rieð 3 mörkum gegn engu, en þann
síðari með 2 mörkum gegn engu.
Astæður fyrir þessari óvæntu
frammistöðu Haukanna eru e. t. v.
rriargar, en líklega hefur það haft
rtiest að segja, að nú var lögð meiri
áherzla á að ná í alla tiltæka leik-
rnenn, auk þess sem nokkrir for-
ráðamenn og eldri leikmenn hvöttu
rrú drengina óspart.
4. flokkur: f þessum flokki átt-
r<st við jöfnustu lið félaganna.
ifaukar báru sigur úr býtum í
an Hafnarfjarðar. Sami bíll var
því skráður á mörgum stöðum,
og um leið var fyrirbyggt að
nokkur bíll, sem var á ferli
innanbæjar, væri ekki skráður.
Margs konar upplýsingar
fást úr þessari umferðarkönn-
un. Má t. d. nefna, að hægt er
að sjá hvenær dagsins umferð-
in er mest, einnig hvaða akst-
ursleiðir eru valdar frá ákveðn-
um hverfum að t. d. miðbæ. Þá
er könnunin nauðsynleg með
tilliti til staðsetningar umferð-
armerkja, hvar, t. d. tímabært
er að setja upp umferðarljós.
Þá má af könnuninni ráða
bvort heppilegt sé að setja ein-
stefnu á ákveðnar götur, hvar
banna eigi bílastöður, og svo
mætti lengi áfram telja.
Mjög mikil vinna er eftir við
úrvinnslu talningarinnar, en
miðað er við, að frumathugun-
um verði lokið fyrir áramót.
Fyrsta verkefni klúbbfélaga var
við lagfæringu á æskidýðs-
beimili bæjarins, og tóku flest-
ir klúbbfélaga þátt í því verki.
Er ekki að efa, að þessi höfð-
inglega gjöf Kiwanisfélaga flýt-
ir mjög fyrir að sköpuð verði
sú aðstaða, sem nauðsynleg er
fyrir skólatannlælcningar.
Iiafi klúbburinn þökk fvrir
hið ágæta starf sitt.
Hafnarfjarðar
fyrri leiknum, skoruðu 3 mörk
gegn 2, en síðari leiknum lauk með
jafntefli, 1 mark gegn 1. Með liði
Hauka léku nú nokkrir drengir,
sem ekki voru í bænum er Septem-
bermótið fór fram, m. a. bezti mað-
ur vallarins, Hilmar Knútsson.
5. flokkur: F.H. sigraði báða leiki
5. flokks örugglega. Þann fyrri með
4 mörkum gegn engu og þann síð-
ari með 3 mörkum gegn engu.
Samkvæmt þessum úrslitum hef-
ur F.H. sigrað Knattspyrnumót
Hafnarfjarðar 1970 með 15 stigum
gegn 5, skorað 25 mörk gegn 13.
Sá möguleiki er samt fyrir hendi,
að þessar stigatölur breytist eitt-
hvað, þar sem Haukar geta kært
síðari meistaraflokksleikinn vegna
þess að lið F.H. var ólöglegt. —
Nokkrir leikmenn liðsins voru of
ungir til að mega leika með meist-
araflokki.
Lítil reisn var yfir þessu móti,
framkvæmd þess slök, eins og und-
anfarin ár, og áhorfendur sárafáir.
SPORHUNÐUR...
Framhald af bls. 6.
undir 200.000,— kr. á ári, en
niargar liendur vinna létt verk
og það er vissulega ástæða fyr-
ir sem flest sveitarfélög og
fleiri að taka þátt i slíku starfi.
Sporbundur getur komið að
gagni hvar sem er á landinu og
bver veit livar og hvenær þörf-
in verður næst.
Sporbundar geta bjargað
mannslífum. Þeir geta stvtt eða
komið í veg fyrir langar og
fjölmennar leitir og sparað
jiannig þjóðfélaginu tugi eða
hundruðir þúsunda króna í
töpuðum vinnustundum og
öðrum kostnaði.
Hjálparsveit skáta í Hafnar-
firði þakkar bæjaryfirvöldum í
Hafnarfirði og öðrum þann
stuðning, sem henni hefur ver-
ið veittur á mörgum undan-
förnum árum. Án hains gæti
bún ekki sinnt hlutverki sínu,
að vera ávallt til taks, þegar
hjálpar er þörf.
F.H. REYKJANES-
MEISTARI
Framhald af bls. 5.
ember síðastliðinn var samt
ekki eins tvísýnn og menn höfðu
búizt við, því að reyndin varð sú,
að F.H.-ingar sýndu yfirburði og
unnu með 21 marki gegn 11. Lang-
bezti maður vallarins í þessum leik
var Hjalti Einarsson, markvörður
F.H., en stórskytturnar Geir Hall-
steinsson, Örn Hallsteinsson og Ól-
afur Einarsson áttu einnig mjög
góðan leik. Beztu menn Hauka voru
Viðar Símonarson og Stefán Jóns-
son. Mörk F.H. í leiknum skoruðu:
Ólafur Einarsson 6, Örn Hallsteins-
son 5, Geir Hallsteinsson 4, Jónas
Magnússon 2, Kristján Stefánsson
2 og Gils Stefánsson 2.
Mörk Hauka skoruðu: Viðar Sím-
onarson 5, Stefán Jónsson 3, Þórar-
inn Ragnarsson 1, Steingrímur
Hálfdanarson 1 og Sigurður Jóa-
kimsson 1.
F.H.-ingar eru vel að þessum
sigri komnir. Liðið er létt leikandi
og heildarsvipur þess ólíkt skemmti-
legri en síðastliðið vor, enda hafa
liðsmenn æft mjög vel að undan-
förnu undir stjórn hins nýja þjálf-
ara, Ingimars Jónssonar.
F.H.-INGAR í UNGLINGALANDSLIÐI
Eins og menn muna lék íslenzka unglingalandsliðið í knattspyrnu 2 lands-
leiki nýlega, gegn Wales og Skotlandi. Ungur Hafnfirðingur, Ólafur Dani-
valsson, F.H., lék með liðinu í báðum þessum leikjum og þótti standa sig
með prýði. Tveir aðrir F.H.-ingar, Hörður Sigmarsson og Viðar Halldórs-
son, sem ásamt Ólafi höfðu verið valdið í 16 manna úrvalshóp, voru vara-
menn í fyrrnefndum leikjum. Seint í þessum mánuði heldur unglinga-
landsliðið utan og keppir þá við Wales-menn og Skota á þeirra heima-
völlum, og verða þremenningarnir úr Hafnarfirði væntanlega með í þeirri
för.
VERÐUR ÍÞRÓTTAHÚSIÐ TILBÚIÐ í MARZ
Um þessar mundir er unnið af fullum krafti að byggingu íþróttahússins.
Nú er m. a. verið að setja gler í allt húsið og unnið að frágangi loftsins að
innan. f haust var ráðinn maður, sem fylgist nákvæmlega með öllum und-
irbúningi, útboðum og framkvæmdum varðandi húsið. Þá var einnig gerð
áætlun, sem gerir ráð fyrir að hægt verði að taka húsið í notkun í marz
nk. Enn hafa engar teljandi tafir orðið á framkvæmdum og þess vegna
óhætt að vona, að íþróttahúsið verði að einhverju leyti tilbúið fyrir vorið.