Fjarðarfréttir - 14.11.1970, Blaðsíða 11

Fjarðarfréttir - 14.11.1970, Blaðsíða 11
FJARÐARFRÉTTIR 11 Ur fundargerðum bæjarráðs Meirihluti bæjarráös, Árni Gunnlaugsson og Hörður Zóp- haníasson, samþykkja eftirfar- | andi: „Áður en tillaga þessi verður afgreidd í bæjarráði telur bæj- arráð rétt að fela bæjarstjóra að kanna grundvöll málsins m. a. hvort þurfi til að koma laga- setning, svo að 1. veðréttur í skipinu verði bindandi og end- anleg trygging gagnvart ríkis- valdinu. - Skal þessari könnun hraðað, sem kostur er og bæjarstjóra falið jafnframt að fylgjast fyrst um sinn með væntanlegri samn- ingagerð um togarakaupin, og kanna vilja annarra kaupenda um samstarf við samnínga- . gerðina til að tryggja, sem bezt hagsmuni kaupendanna. Samkvæmt framangreindu leggjum við því til, að af- greiðsla tillögunnar til bæjar- stjórnar verði frestað.“ Minnihluti bæjarráðs, Árni Grétar Finnsson, óskar eftir- farandi bókað: „Tel nauðsynlegt, að af- greiðsla tillögunnar fari fram hið allra fyrsta, sérstaklega með tilliti til þess, að það sam- starf við önnur sveitarfélög, sem tillagan gerir ráð fyrir | komist á hið bráðasta. Ég legg því til, að bæjarráð mæli með því við bæjarstjórn, að tillagan verði samþykkt á næsta fundi hennar.“ Frestunartillaga meirihluta bæjarráðs samþykkt með 2 at- kv. gegn 1 atkv. Árni Grétar Finnsson óskar bókað: „Ég óska eftir því að eftir- farandi verði bókað, um af- greiðslu þessa máls. Formaður bæjarráðs hafði þann hátt á við afgreiðslu þessa máls, að lýsa því yfir að tillaga hans hefði verið samþykkt með tveim atkvæðum gegn einu, án þess að bera tillöguna undir atkvæði. Þessari fundarstjórn for- manns mótmæli ég.“ Árni Gunnlaugsson mótmæl- ir bókun Árna G. Finnssonar, sem rangri. Árni G. Finnsson óskar bók- að. „Ég tek þá, sem eru hér á fundinum til vitnis um það, að Árni Gunnlaugsson bar tillög- una ekki undir atkvæði, en lýsti úrslitum atkvæðagreiðslu engu að síður, en lét fram fara formlega atkvæðagreiðslu eftir að ég mótmælti fundarstjórn lians.“ Hörður Zóphaníasson óskar bókað: „Ég vil taka fram vegna bókunar Árna G. Finnssonar, að í fyrsta lagi var ég flutn- ingsmaður að nefndri tillögu og hafði auk þess tjáð mig fylgjandi henni. Árni G. Finns- son liafði einnig tjáð sig um málið, þannig að afstaða bæj- arráðsmanna til málsins fór ekki milli mála. I öðru lagi vil ég taka fram, að slíkt hefur þótt nægilegt hér í bæjarráði hingað til, frá þvi ég fór að starfa í bæjarráði, og enginn haft neitt við það að at- huga fyrr en nú.“ Árni G. Finnsson óskar bók- að: „Bókun Harðar Zóphanías- sonar staðfestir bókun mína hér að framan um afgreiðslu- liætti formanns bæjarráðs. Ég lýsi jafnframt mótmælum for- manns bæjarráðs, sem mark- leysvi.“ Árni Gunnlaugsson óskar bókað: „Vísa til bókana á fundinum um gang málsins og að við Hörður Zóphaníasson, stóðum báðir að tillögunni.“ Fyrirtækjakynning Fasteignasalan Hamranes og Hagtryggingarumboðið fluttu í nýtt og skemmtilegt húsnæði að Strandgötu 11 (Venusar- húsið) 3. hæð. Fréttamenn blaðsins komu að máli við Jón Rafnar sölu- stjóra hjá Hamranesi og um- boðsmann Hagtryggingar. Kvað hann starfsemina hafa gengið vel, Hafnarfjörður væri í örri uppbyggingu og kvaðst hann hafa veitt því eftirtekt að til Hafnarfjarðar hefði flutzt mik- ið af dugmiklu fólki sem hann kvað ánægjulegt að eiga við- skipti við. Gat hann þess að við tilkomu hins nýja húsnæðis liefðu skapazt aðstæður til að veita betri þjónustu við við- skiptavinina. Bað Jón blaðið fyrir kveðjur til sinna mörgu viðskiptavina í Hafnarfirði og nágrenni. Blaðið óskar Jóni til ham- ingju í nýja húsnæðinu og fyr- irtækinu velfarnaðar. Simar skrifstofunnar eru 51888 og 52680. Mengun? Nokkur uggur er í Hafnfirð- ingum vegna þess orðróms, að flúormengun sé þegar komin á hættulegt stig. Heilbrigðisráð hefur þegar haldið allmarga fundi um málið, og strax 1966 beindi þáverandi heilbrigðis- nefnd því til landlæknis að gæta yrði fyllstu varúðar i sambandi við álverksmiðjuna í Straumsvik. Hér er sannarlega á ferðinni alvarlegt mál, sem nauðsynlegt er að taka föstum tökum. Skoðanir manna eru nokkuð skintar um álit Ingólfs Daviðs- sonar viðvíkjandi byrjunarein- kennum flúarmengunar. Telja sumir, að flúornefndin svokall- aða, sem í eru Pétur Sigurjóns- son, nrófessor, Axel Lvdersen, norskur prófessor, báðir af hálfu íslenzku rikisstjórnarinn- ar, og auk þeirra tveir menn af hálfu álverksmiðjunnar, geti ein dæmt um flúormagnið, en aðrir hallast fremur að því. að álit Ingólfs Davíðssonar eigi við veigamikil rök að styðjast. TTvnð sem því Iíður hefur þetta vakið flesta til umhugsunar um þessi mál, og allir eru á einu máli um það að koma i veg fyrir þann skaða, sem af meng- un lilýtur að leiða. Komið hef- ur fram, að hreinsunartæki eru fyrir hendi, og þvi eðlilegt að þau séu sett upp hið fyrsta. Nú nýlega v/ar þetta mál rætt i bæjarstjórn, og kom þar fram vilji fyrir því, að allra ráða væri beitt til hindrunar meng- unarhættu. Eins og fyrr segir eru í flú- ornefndinni 4 menn, tveir skip- aðir af íslenzka ríkinu og tveir af álfélaginu. Sjónarmið þess- ara tveggja aðila hlýtur að vera mjög ólíkt, og þeir eru ekki alltaf sammála um niðurstöð- ur rannsókna. Starfstilhögun er þannig háttað, að komi ágrein- ingur upp, verður að endurtaka rannsóknina og taka nýtt sýni. Þannig getur tafizt mjög, að þær niðurstöður fáist, sem báð- ir aðilar sætta sig við. Ekki hafa enn borizt niður- stöður af því sýni, sem tekið var af gróðri nú í sumar, en prófessor Pétur Sigurjónsson kvaðst vonast eftir þeim fyrir áramót. Fjarðarfréttir munu fylgjast náið með þessum niðurstöðum og flytja bæjarbúum fregnir af framvindu þessa þýðingarmikla máls. Nú er sá tími kominn, aS börn og unglingar fara aS safna í áramóta- og þrettánda- brennurnar. Gefst þá mörgum tilvaliS tækifæri aS losna viS hitt og annaS dót, sem safnast hefur fyrir á háaloftinu eSa í kjallaranum. Er því hægt aS slá tvær flugur í einu höggi; hreinsa dáltíiS í kringum sig og einnig aS stuSla aS því, aS þessi ágæti siSur meS áramóta- og þrettándabrennur leggist ekki niSur.

x

Fjarðarfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.