Nýtt land-frjáls þjóð


Nýtt land-frjáls þjóð - 21.05.1971, Síða 3

Nýtt land-frjáls þjóð - 21.05.1971, Síða 3
NYTT LAND 3 t NÝTT LAND FRJÁLS ÞJÓÐ Útgefandi: Huginn hf., Reykjavík Ritstjóri: Guðmundur Sæmundsson (ábm.) Ritnefnd: Einar Hannesson, Ingólfur Þor- kelsson, SigurSur Elíasson, Sig- urðui Guðmundsson, Sigurveig Sigurðardóttir, Þorvaldur G. Jónsson. Ritstjórn, afgr., anglýsingar: ingólfsstræti 8. símar 19215 og 19985. Askriftargjald kr. 600 árlega. — í lausasölu kr. 15 eint. Prentsmiðjan Edda hf. Peningalýðræði Hvað veldur því, að um 40% þjóðarinnar skuli fylgja Sjáif- stæðisflokknum að málum? Til þess liggja vafalaust margar ástæður aðrar en málefnin ein. Ein er sú, að meginþorrf ís- lendinga virðast fæðast inn í ákveðinn stjórnmálaflokk og fylgja honum frá vöggu til grafar. Menn, sem slíkt gera, mega segjast vera skoðunarlausir með öllu. Er þetta án efa afar slæmt fyrir stjórnmálalífið í landinu og lýðræðið al- mennt, því að fiokkum er þá í raun og veru hvorki umbunað fyrir gott starf né refsað fyrir skyssur. Þetta hefur leitt til þess, að flokkakerfið hefur staðnað, sömu menn fara með völd kosningar eftir kosningar, litlu máli skiptir, hvernig unnið er, og aimenningur er orðinn leiður á stjórnmálum og stjórnmálamönnum. En samfara þessum doða og stöðnun í íslenzku stjórnmála- lífi hefur risið upp nýtt afl, sem leggur alla áherzlu á að viðhalda óbreyttu valdajafnvægi í þjóðfélaginu: Hér er átt við fjármagnið. Sjálfstæðisflokkurinn er í sérflokki. Hann nýtur að sjálfsögðu, þótt ótrúlegt megi virðast, fylgis úr öll- 4 um stéttum þjóðfélagsins, en ráðamenn hans eru fyrst og fremst kaupmenn og stóratvinnurekendur í Reykjavík. Hjá þeim liggur fjármagnið. Má ætla, að Sjálfstæðisflokkurinn safni tugum milljóna f kosningasjóði með ýmsum ráðum. Sumir láta fé af hendi rakna af fúsum vilja, aðrir gera það hálfnauðugir eða beinlínis kúgaðir til þess. Eru til örugg dæmi, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur óbeint kúgað fé út úr mönnum í skjóli þess, að þeir hafa átt undir Reykjavík- urborg að sækja með ýmsa fyrirgreiðslu. Jafnframt tekst þessuln gefendum að bókfæra þetta fé á þann hátt, að þið verði frádráttarbært frá skatti. Má því segja, að hér sé beitt skattsvikum í þágu Sjálfstæðisflokksins eða fé stolið úr landssjóði. Morgunblaðið er, eins og kunnugt er, útbreiddasta og vold- ugasta blað landsins, kemur inn á flest heimili, og er um leið málgagn Sjálfstæðisflokksins. Fer ekki á miiii mála, að áhrifamáttur þess er gífurlegur. Þegar svona er málum kom- ið, er skiljanlegt, hvernig Sjálfstæðisflokknum tekst að halda 40% atkvæðamagns þjóðarinnar kosningar eftir kosningar. í raun og veru er tæpast lengur um frjálsa skoðanamyndun að ræða, og lýðræðið er að verða nánast nafnið tómt. Þetta kemur ekki sízt í ljós, þegar Samtök frjálslyndra og vinstri manna eru tekin til samanburðar. Þar er allt starf unnið af sjálfboðaliðum, og fé er nánast ekkert. Og hvernig geta þá Samtökin keppt við Sjálfstæðisflokkinn að koma skoð- unum sínum á framfæri? Því miður er þannig komið hjá okkur íslendingum, að málefnin ráða alltof litlu um kosn- ingaúrslit, en f jármagnið allt of miklu. Þetta felst í orðinu peningalýðræði. Það hlýtur að teljast eðlilegt, að allir stjórnmálaflokkar standi jafnt að vígi f járhagslega við lýðræðislegar kosning- ar og málefnin látin skera úr um gengi flokka. Þess vegna er það skýlaus krafa SFV, að sett verði lög um starfsemi stjórnmálaflokka, þannig að lýðræðið fái að þróast með eðlilegum hætti, en vcrði ekki til sölu á markaðstorgnm. iiiiiiiiiiiimiiiimiiiii ii iiiuiimiimiiiiiiiiiiimiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii 111111111111111111 tmn iii iimiiiimiiiiimimrmitmiiiiifiiiiiiiimtmiiiimiiiiiiii iii iiimiiiiiciliiiiiiiiiiiii KRD55GÚTUM í síðustu viku var haldin mikil ráðstefna í Reykja- vík. Það var ráðherrafund- ur EFTA samtakanna. ís- lenzka ríkisstjórnin bauð til þessarar ráðstefnu og er ekki gott að segja hvað hefur komið henni til þess, því að þessir fundir hafa alltaf verið haldnir í aðal- stöðvum samtakanna, í Genf. Kannski hefur þetta ver- ið eina ráðið til þess að fá meðlimaríkin til að taka eftir þessum nýliða í sam- tökunum; kannski er Gylfi orðinn leiður á þessum sí- felldu flugferðum; kannski er hann að vekja athygli þjóðar sinnar á því, að ráð- herrar hinna landanna, sumra a.m.k., ferðist í einkaþotum og mál sé til komið að íslendingar taki upp siðaðra manna háttu í þeim efnum. En án gamans. Þetta til- tæki hafði að sjálfsögðu enga p .aktiska þýðingu fyr ir íslendinga aðra en þá að eyða fé. Helztu tíðindin, sem fréttust af þessari ráð stefnu voru þau, að innan skamms minnkaði 100 milj óna markaöurinn,sem marg ir höfðu bundnar miklar vonir við, ofan í 40 milljón ir. Nýtt þorskastríð! Brezki markaðsmálaráð- herrann flutti þessi tíðindi til Reykjavíkur og Morgun blaðsmenn áttu auðvitað viðtal við þennan flokks- bróður sinn, íhaldsráðherr ann Ribbon, sem lét vel af þessum málalokum fyrir Breta. Nú mun þrengjast fyrir Bretum um fiskveiðar við strendur sínar, þegar meg- inlands togskipin fara að skafa fiskimið þeirra og lengi munu þau ekki una þar, eftir að þeim hefur verið eytt. Morgunbl.merm spurðu flokksbróður sinn, hvernig Bretar myndu taka útvíkk- un landhelginnar og kvað ráðherrann miklar líkur á nýju þorskastríði, þ. e. að Bretar sendi flotann til að vernda brezka togara fyrir íslenzkum varðskipum, að góðum og gömlum sið. Er nú komið í ljós, hvað íslenzki forsætisráðherr- ann á við, þegar hann tal- ar um „vináttu og skiln- ing“ í Bretlandi og Vestur- Þýzkalandi á málstað okk- ar í landhelgismálinu. Hon um ætti að vera um þetta kunnugt, enda hefur hann látið drýgindalega yfir því í sjónvarpinu, að við ætt- um „vinum‘"að fagna hjá brezkum ráðamönnum, enda eru þeir flokksbræður hans og skoðana. En eigum við ekki að reyna að gera hlut Jó- hans örlítið betri en þetta. Kannski er ástæðan fyrir því, að hann vill fresta á- kvörðun í landhelgismál- inu um óákveðinn tíma, sú, að hann vilji bíða eftir því, að flokksbræður hans fari frá völdum í Bretlandi og jafnaðarmenn taki við! Þessi mál leysast áreið- anlega ekki á friðsamlegan og viðunandi hátt fyrr en íhaldsmenn, bæði í Bret- landi og á íslandi eru farn- ir frá völdum. „Hvar á ég að sofa . . . .?“ Allir kannast við hús- ganginn um orðaskipti prestsins og konu hans, er gest bar að garði og mad- dömunni leyst betur til fylgilags en bónda sinn. Á prestsetrinu hefur maddaman greinilega bæði verið bóndinn og húsfreyj- an og svo hefur það einnig verið í ríkisstjórninni, og Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur ráðið bæði borði og sæng. Helztu ráðamenn Sjálf- stæðisflokksins búa sig nú undir að taka á móti nýj- um gesti, að vísu ekki alls- endis ókunnum. Maddam- an á því heimili hefur sæng að með honum fyrr. Nú hefur Alþýðuflokkur- inn, eða nánar tiltekið helztu foringjar hans á- hyggjur af því, hvar þeir eigi að sofa, eftir að gest hefur borið að garði. Lykil- aðstaða Alþýðuflokksins í íslenzkum stjórnmálum er nú í hættu — stórhættu. Missi flokkurinn sinn lyk il að stjórnarráðinu, mun honum verða vísað út í fjós, þar sem hann bíta bæði flær og lýs og ef hann kvartar yfir illri meðferð eftir langt og farsælt hjóna band, mun svarið verða líkt og hjá prestsmaddömunni! Haldi flokkurinn hinsveg lyklinum, mun maddaman kynbæta óveruna þegar, svo að hún valdi ekki meiri óþægindum; með öðrum orðum afnema alla tilburði þessa brúðguma síns til að láta á sér kræla í sænginni. Það er því ekki annað að sjá, en að Alþýðuflokkur- inn berjist nú gegn þeim örlögum prestsins í fyrr- greindum húsgangi. Pop-listinn. Húmor hefur aldrei ver- ið sterk hlið á íslending- um. Sé húmorinn ekki gróf ur, rætinn eða klæminn, þykir ekkert bragð að hon um. Nú hefur þó brugðið út af. Þeir, sem ekki hafa sjálfir verið á kafi í hinni svonefndu pólitík, hafa vel fundið hve íslenzk stjórn- mál hafa verið grútleiðin- leg undanfarna áratugi. Flestir íslenzkir stjórnmála menn taka sig svo hátíð- lega, að það er grátbros- legt; og það sem verra er, að þeir ætlast til að aðrir geri það líka! Gömlu flokkarnir hafa haslað sér völl Iíkt og belj- ur bása í fjósi, en eins og þeir vita, er til þekkja, vilja þær halda sínum bás fyrir lífstið. Jatan er þeirra heimur og út fyrir hana nær hug- ur þeirra ckki. Þeir bregðast ókvæða við nýjum gesti, sem hugs- anlega gæti hrakið þá af básunum, því að þeir, sem ráða fjármagninu, mjólka flokkana og gefa þeim í jötuna. Heyjanna er aflað í túni þjóðarinnar, en afrakstur- inn úr flórnum er ekki nægi legur til að viðhalda sprett unni. Þessa spaugilegu mynd hafa nokkrir ungir menn í Háskólanum séð í réttu ljósi og gera nú stólpa grín að öllu saman með því að bjóða fram lista við næstu Alþingiskosningar í þrem af fjölmennustu kjördæm- unum og innsiglahúmorinn með því að nefna listann „núll-Iista; aðrir liefna hann Pop-lista. Þessir akademísku grín- istar munu upphaflega hafa ætlað sér að draga framboðin til baka daginn fyrir kjördag, en nú hefur komið fram svo mikill ótti við þennan lista hjá gömlu flokkunum, og þá einkum fínu listunum Sjálfstæðis- flokksins og Alþýðubanda- lagsins, að ungu grínistarn ir hafa ástæðu til 'að ætla. að þeir eignuðust þingflokk á atkvæðum frá þessum flokkum, sem hafa akadem íska borgara í meirihluta á listum sínum. Vonandi halda þeir fram boði sínu til streitu og geta kjósendur bá valið um Pop-Iista, Blýhólk og Vlnar brauðslengju íhaldsins. R G. 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 iiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiÞ IHHIIIHIIMII»lll«lll*lllllll»lllllllllllllllllllllll«l*l*l*»,,*»M,,,*,,,,,Mn,á,,,t,< . Jiimiiiiiiiiii :

x

Nýtt land-frjáls þjóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt land-frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/1529

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.