Nýtt land-frjáls þjóð


Nýtt land-frjáls þjóð - 21.05.1971, Qupperneq 4

Nýtt land-frjáls þjóð - 21.05.1971, Qupperneq 4
Smáílát úr plasti Fjölbreytni í framleiðslu smáíláta úr plasti eykst sífellt. Frá lyfsölu hefur notkun þeirra breiðzt ört út í matvælaiðnaðinum. Kaupmenn og framleiðendur finna hjá okkur ílátin sem þá vanhagar um. VINNUHEIMILIÐ AÐ REYKJALUNDI AÐALSKRIFSTOFA REYKJALUNDI, Mosfellssveit - Sími 91-66200 SKRIFSTOFA í REYKJAVÍK, BræSraborgarstíg 9 - Sími 22150 REYKJALUNDUR t'-T NYTT LAND Nú er það svo, að í Fríverzl- unarbandalaginu eru frænd- þjóðir okkar, og úrsagnafrest- ur er aðeins eitt ár. Einnig hlýtur að vera hagur að virkj- un Þjórsár og horfa'til fram- fara í landinu, jafnvel þótt illa hafi verið haldið á ýmsum málum, svo sem söluverði raf- magns til álverksmiðjunnar. Það furðulega er, að Alþýðu- bandalagið, sem leggur ofur- kapp á að teljast róttækur flokkur er í aðra röndina íhaldsflokkur. Þrátt fyrir alla alþjóðahyggju, er hann í raun og veru flokkur einangrunar, sem notar þjóðernishugtakið að hætti afturhaldsflokka. Hefur brugðizt rkalýðnum Alþýðubandalagið telur sig helzta málsvara verkalýðs og launþega, og verður því ekki neitað, að innan raða þess eru margir einlægir baráttu- menn. Allir vita, að Alþýðu- flokkurinn er ekki lengur verkalýðsflokkur, en því mið- ur verður ekki sagt, aö Al- þýðubandalagið hafi fyllt skarð hans. Þvert á móti hef- ur það stórum misnotað verka lýðsbaráttuna sér til fram- dráttar og á mikla sök á því, hversu illa er komið fyrir verkalýðshreyfingunni. Það hefur alið á sundrung í henni í pólitískum tilgangi,- og stefn an er sú, að verkalýðshreyfing in eigi að vera ambátt flokks- ins, þjóna honum. Hagsmun- ir verkalýðsins eru látnir víkja fyrir hagsmunum flokks Alþýðubandalagið lenzkur fræðimaðuf- annast hér þjóðfélagsrannsóknir styrktur með fé úr bandarísk- um vísindasjóði, hrópar Þjóð- viljinn: njósnir, njósnir. Þessi blöð &ru haldin sömu móðursýkinni, sömu öfgunum. Af þessu hefur leitt, að Al- þýðubandalagið hefur orðið óvirkt í utanríkismálum. Og varla er til neitt óheppilegra góðum málsstað en það komi þar við sögu, og er skemmst að minnast, hvernig fór fyrir bar áttunni gegn her í landi. Strax og þessi flokkur þóttist vera málsvari allra hernáms- andstæðinga, varð baráttan vonlaus. Afskipti flokksins bar með sér sjálfa feigðina. Róttækni — íhald Því skal sízt neitað, að stundum gustar hressilega frá Alþýðubandalaginu, þegar lognmollan hvílir yfir öðr- um flokkum, en oft efast mað- ur um heilindin. Dómgreind- in virðist svo sljó, að róttækri in verður stundum að íhalds- semi. Flokkurinn talar jafnan mikið um íslenzkt þjóðerni og íslenzka menningu, og skal það ekki lastað í sjálfu sér, en þetta veröur hvimleitt, þegar músarholusjónarmið ráða. Flokkurinn lagðist af alefli gegn inngöngu í Efta og virkj- un Þjórsár og taldi íslenzkt þjóðerni í hættu, ef að yrði. Framhald af bls. 1 flokkur eða ekki. Orðið sóslal- isti tala þeir sjaldan um. Og orðið jafnaðarmannaflokkur forðast þeir eins og heitan eldinn, að því er kratabragð. En í vígstöðvum Þjóðviljans þykir betra að ákalla skratt- ann þrisvar en nefna krata einu sinni. Alþýðubandalagið er komið á það pólitíska þroskastig, að engan má styggja. Það hefur enga grund vallarhugsjón. Þeir, sem bezt þekkja, telja, að flokkurinn sé svo sem ekki neitt. Tvíburar í öfgunum Þjóðviljinn og Morgunblað- ið mega heita tvíburar í öfg- unum. Annað blaðið sleikir skósóla kommúnistaríkja í ut- anríkismálum, hitt auðvalds- ríkjanna. Verður ekki séð, hvort blaðanna hefur betur. Á þessum tveimur sannleiks- bæjum eru aðeins til vondir menn eða góðir og litir ein- ungis tveir: svart og hvítt. Er von, að flestir skynibornir menn hafi skömm á slíkum málflutningi. Morgunblaðið ærist, þegar rússneskir togarar sjást í nánd við íslandsstrendur: njósnir, njósnir. Qg þegar ís- ins. Þetta hefur leitt m.a. til þess, að í verkalýðshreyfing- unni ríkir valdajafnvægi að- gerðaleysisins. Og nú er svo komið, að Alþýðubandalagið tryggir sér völd í verkalýðs- félögum með samstöðu við íhaldiö, og er Iðja þar gott dæmi. Því miður verður að segjast eins og er, að flokk- urinn hefur brugðizt verka- lýðnum. Pólitísk einangrun Óttinn við pólitíska einangr un hefur lengi hrjáð Alþýðu- bandalagið, hvílir eins og mara yfir því og skýrir ýmis vinnubrögð þess. Þetta er m.a. bert af framboðslista þess í Reykjavík. Þar er enginn sjó- maður, enginn verzlunarmað- ur og aðeins einn þiggur laun skv. Dagsbrúnartaxta. Þetta er að stofni til listi langskóla- manna, hálfgerður snobblisti, enda tekinn raunverulega saman af tveimur mönnum, efsta manni listans og Guð- mundi Hjartarsyni, enda al- kunnugt að lýðræðið er hvergi háþróaðra en í Alþýðubanda- laginu. En hér er vikið að einni helztu meinsemd flokks ins. Hann treystir ekki til framboðs mönnum úr eigin röðum, sem hafa borið bar- áttuna uppi og eru reiðubún- ir til að falla fyrir málstað- inn, heldur er sótzt eftir kuniru fólki á listann, sem hefur ekki tekið neinn þátt i félagslegri baráttu. Má segja, að þetta hafi nær undantek«- ingarlaust reynzt illa, en á þennan hátt hefur Þjóðvilja- klíkan ráðið þeim hlutum, sem henni sýnist. I samvinnutryggingum Alþýðubandalagið er full- gildur aðili að tryggingar- kerfi gömlu flokkanna bæði í verkalýðshreyfingu, ríkis- bákni og fjármálastofnunum. Þjóðviljinn er líka gersamlega hættur að deila á fjármagnið og auðmagnið í landinu, og læðlst sá grunur að manni, að Alþýðubandalagið hafi mikinn hug á að gerast flokk ur allra stétta líkt og Sjálf- stæðisflokkurinn, enda engin baráttumál lengur til, sem hindra stjórnarsamstarf við hann. Veslings Alþýðubandalagið. Þrír þingmenn hafa yfirgefið það á kjörtímabilinu. Verður sterklega dregið í efa, að stíl- snilld og illkvitni Austra geti stöðvað upplausnina. Frétt frá borgarlækni Fyrir og um s.l. áramót voru á vegum heilbrigðiseftirlitsins Ný vinstri hreyfing Framhald af bls. l sem hafi bolmagn til að móta þjóðfélagið eftir hugsjónum sínum og taka þannig fyrir, að Sjálfstæöisflokkurinn ráði ferðinni. En jafnframt kemur þá nýr flokkur fram á sjónarsviðið, sem fær aðstöðu til að berj- ast með nýjum mönnum gegn flokksræöi, ofurvaldi stj órnmálanna á öllum svið- um þjóðlífsins og misrétti. Það er því til mikils að vinna, að F-listinn fái mann kjörinn í Reykjavik. Allir þeir, sem vilja breyta til, hljóta að styðja hann. Er nú skorað á alla, sem vilja gengi listans sem mest, að koma nú til starfa í kosningabarátt- unni. Sigur F-listans merkir straumhvörf í íslenzkri póli- tík. í Reykjavík tekin til kvika- silfursrannsóknar sýni af öll- um þeim tegundum af tún- fiski, sem þá voru á boðstólum í verzlunum í borginni. Enn- fremur voru þá í sama til- gangi tekin sýni af algengustu íslenzku neyzlufisktegundun- um, þ.e.a.s. ýsu, þorski og heilagfiski. Rannsóknir þessar hafa ver ið mjög tímafrekar og það er ekki fyrr en nú, að endanleg- ar niðurstöður liggja fyrir. Ákvæði vantar hér á landi um leyfilegt hámark kvika- silfurs í neyzlufiski, en vitað er um að í Svíþjóð og Japan er óheimilt að selja fisk, ef kvikasilfurmagn hans fer fram úr 1,0 mg/kg. Samsvar- andi mörk fyrir Bandaríkin og Kanada eru hins vegar 0,5 mg/kg. Eitt ofangreindra sýna reyndist hafa 0,95 mg/kg. af kvikasilfri, en í öllum hinum sýnunum var kvikasilfurmagn ið undir 0,5 mg/kg. Sala á túnfisktegund þeirri sem mest kvikasilfur var I, hefur í samráði við innflytj- anda vörunnar verið stöðvuð.

x

Nýtt land-frjáls þjóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt land-frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/1529

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.