Nýtt land-frjáls þjóð - 21.05.1971, Page 5
s
NfTT LAND
Staöreyndir, áróður og skoöanir
Mðrgwm verðnr það íhug-
unarefni, hvernig á því
standi að sú ríkisstjórn, sem
nú sífcur við völd, skuli vera
orðin eins gömul og raun ber
vitni. Menn leita að þeim af-
rekum, sem réttlæti þessa
löngu setu, en finna hvergi.
Orsakimar eru margar.
Þeirra er að nokkru að leita
hjá duglítilli stjórnarand-
stöðu og þeirri venju-hugsun
eða hugsunarleysi sem mótar
viðhorf almennings til stjórn-
málaflokkanna. Mikill fjöldi
fólks lætur sig þjóðmál engu
varða. Þetta fólk lætur sér
nægja, ef það hefur neyzlu-
fé í verðbólgunni. Fólkið er að
visu óánægt með flokkana og
stjórnmálin, sem um leið eru
þeim framandi og fjarlæg.
Almenningur telur oft á tím-
um að stjórnmál séu karp,
sem gott fólk eigi að forðast.
Þeir sem slyngir séu í deil-
um, eigi að snúa sér að þess-
um málum, aðrir ekki. Or-
saka þessa hugsunarháttar er
að leita í þeirri staðreynd, að
hlutlæg fræðsla um stjórn-
mál er varla til hér á landi.
Vald flokkanna yfir stjórn-
málunum er slikt að hér á
landi hefur enginn aðili kom-
ið fram sem heldur uppi stöð
ugri og víðtækri fræðslu um
stjórnmál, eðli þeirra og til-
gang. Þó má geta þess, að
Samvinnan undir ritstjórn
Sigurðar A. Magnússonar
hefur fjallað um ýmsa þætti
íslenzka þjóðfélagsins af
djörfung og hreinsklini. Af-
leiðing þessa hefur orðið sú,
að almenningur á mjög erfitt
með að mynda sér hlutlæga,
persónulega skoðun um ein-
stök mál stjórnmálanna. Erf-
itt er að greina, hvað eru
staðreyndir og hvað áróður
og skoðanir. Allar pólitískar
umræður á íslandi mótast af
þessu. Deilt er oft á tíðum um
upplýsingar og staðreyndir
sem hlutlaus aðili gæti veitt.
Skoðanir og umræður mót-
ast því oft af því, að rangtúlka
staðreyndir, fella brott úr
þeim ákveðna þætti og gjör-
breyta þeim þannig. Dag-
blöðin sýna þetta hvað skýr-
ast. Hvenær gerist það, að
dagblöðin gagnrýni stjórn-
málaflokka sína? Blöðin og
flokkarnir hafa gengið í trygg
ingabandalag pólitísks hug-
leysis og markmiðið er að
móta sljóa og venjubundna
hugsun kjósenda. Þúsundir
launþega kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn, því að þeir trúa
þeim áróðri að hann sé flokk
ur allra stétta, þótt hann sé
andstæðingur launafólks í
allri kjarabaráttu. Þúsundir
kjósenda kjósa Alþýðuflokk-
inn, því að „hann berst fyrir
tryggingum", þótt þær haldi
ekki í horfinu við verðbólg-
una, sem flokkurinn magnar,
og og þótt hann skerði kjara-
samninga með lögum og gerð
ardómum. Þúsundir kjósa
Framsóknarflokkinn, þótt fyr
irtæki þau, sem Framsóknar-
menn stjórna, beiti sér jafn-
an gegn kröfum launþega í
kjaradeilum. Þúsundir laun-
þega kjósa jafnvel Alþýðu-
bandalagið, þótt fulltrúar
þeirra hverfi síðan af lista
flokksins og honum sé stjórn
að af mönnum,sem beita að-
ferðum austur-evrópskra
starfsbræðra í stjórnmálum.
Launþegar um allt land
verða að taka sína pólitísku
ákvörðun eftir því, hvernig
þjóðfélag þeir vilja. Þeir
verða að krefjast þess að fá
hlutlægar, greiðar upplýsing
ar um hag fyrirtækjanna,
sem þeir starfa hjá. Þá kom-
ast þeir að því, að goðsagan
um greiðsluþol atvinnuveg-
anna er hin argasta blekking
og til þess eins hugsuð að
halda launakröfum launa-
fólks niðri. Launþegar mættu
minnast þess, að á gróðaár-
inu 1970, þegar flest fyrir-
tæki sýndu tugmilljóna gróða
fy/rir árið 1969, sýndi hið op-
inbera greiðsluþol atvinnu-
veganna innan við 10% kaup
hækkun.
Samtök frjálslyndra setja
sér það markmið að sameina
launþega í einum og sama
flokki og brjóta þar með ríkj-
andi flokkaskipan. í því mark
miði hlýtur krafan um hlut-
læga pólitíska fræðslu að
vera ofarlega á baugi. Það er
ein bezta aðferðin til að
þroska pólitíska vitund al-
mennings og brjóta á bak aft
ur þá venjuhugsun, sem ríkj-
andi er um stjórnmál hér á
landi.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiinniiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiuniiiiiiiiii iiiimiimmmmmiimiiimiimimmiimmmmmmmmui
Framboðslistar í Vestfjarðakjördæmi
til alþingiskosninga 13. júní 1971
A
Listi Alþýðu-
flokksins:
1. Birgir Finnsson,
alþingismaður,
ísafirði.
2. Ágúst H. Pétursson,
skrifstofnmaður,
Patreksfirði.
3. Kristmundur Hannesson
skólastjóri,
Reykjanesi.
4. Emil Hjartarson,
skólastjóri, Flateyri.
5. Lárus Þ. Guðmundsson,
sóknarprestur, Holti.
6. Ingibjörg Jónasdóttir,
frú, Suðureyri.
7. Kristján Þórðarson,
bóndi, Breiðalæk.
8. Jóhann R. Símonarson,
skipstjóri, ísafirði.
9. Páll Jóhannesson,
húsasmíðameistari,
Patreksfirði.
10. Bjarni G. Friðriksson,
sjómaður,
Suðureyri.
B
Listi Framsóknar-
flokksins:
1. Steingrimur Hermanns-
son, verkfræðingur,
Garðahreppi.
2. Bjarni Guðbjörnsson,
alþingismaður,
ísafirði.
3. Halldór Kristjánsson,
bóndi, Kirkjubóli.
4. Ólafur Þ. Þórðarson,
skólastjóri, Suðureyri.
5. Ólafur H. Ólafsson,
kaupf élagsst j óri,
Króksf j arðarnesi.
6. Gunnlaugur Finnsson,
bóndi, Hvilft.
7. Svavar Júlíusson,
kaupfélagsstjóri,
Móbergi.
8. Torfi Guðbrandsson,
skólastjóri,
Finnbogastöðum .
9. Svavar Jóhannsson,
bankastjóri,
Patreksfirði.
10. Jón A. Jóhannsson,
skattstjóri,
ísafirði.
D
Listi Sjálfstæðis-
flokksins:
1. Matthías Bjarnason,
alþingismaður,
ísafirði.
2. Þorvaidur Garðar Krist-
jánsson, framkv.stj.
Reykjavík.
3. Ásberg Sigurðsson,
alþingismaður,
Reykjavík.
4. Arngrímur K. Jónsson,
skólastjóri, Núpi.
5. Hildur Einarsdóttir,
húsfrú, Bolungarvík.
6. Jón Kristjánsson,
stud. jur., Hólmavík.
7. Engilbert Ingvarsson,
bóndi, Mýri.
8. Ingi Garðar Sigurðsson,
tilraunastjóri,
Reykhólum.
9. Jóhanna Helgadóttir,
húsfrú, Prestsbakka.
10. Marsellíus Bernharðs-
son, skipasmíðameistari,
ísafirði.
F
Listi samtaka frjálslyndra
og vinstri manna:
1. Hannibal Valdimarsson,
Selárdal.
2. Karvel Pálmason,
Bolungarvik.
3. Hjördís Hjörleifsdóttir,
ísafirði.
4. Hjörleifur Guðmundsson
Patreksfirði.
5. Einar Hafberg,
Flateyri.
6. Jónas Karl Helgason,
Hnífsdal.
7. Ragnar Þorbergsson,
Súðavík.
8. Steingrimur Steingríms-
son, ísafirði.
9. Halldór Jónsson,
Hóli,
V-Barðastrandarsýslu.
10. Guðmundur Jónsson,
Hólmavík.
G
Listi Alþýðu-
bandalagsins:
1. Steingrímur Pálsson,
alþingismaður,
Brú.
2. Aage Steinsson,
rafveitustjóri,
ísafirði.
3. Guðmundur F. Magnús-
son, verkamaður,
Þingeyri.
4. Guðrún Unnur Ægis-
dóttir, kennari,
Reykjanesi.
5. Gestur Ingvi Kristinsson
skipstjóri, Súgandafirði.
6. Einar Gunnar Einarsson
hrl., ísafirði.
7. Unnar Þór Böðvarsson,
kennaranemi,
Tungumúla.
8. Gísli Hjartarson,
skrifstofumaður, ísafirði
9. Davíð Davíðsson,
oddviti, Tálknafirði.
10. Skúli Guðjónsson,
LjótunnarstöSum.
ísafirði, 13. maí 1971.
YFIRKJÖRSTJÓRN VESTFJARÐAKJÖRDÆMIS
SllllttlHtllllllllllllllllllllltMllllHIIIIIIIHIIIUIIIMIIIIIIIIIUIHIIIUIIIIIIUIIHIIUUUIUIIIIIIIUIIUUIIIUIIIIIUIIUIIIIIHUIIIIIIIIIIIIUUIIIIIIIIUUUIIIIUIillllllllUIIIIUUUIUUIUUIIIIUIIIUUUIUIIIIUIIIIIIUIIUUIIUUUUIUIIIHIUUIUIUUUIUIIIIllllHIIIIIIIIIUIIIIIHIHIIIUIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIUUUIIUIUIIIIimil
HUHIHHIIIIHUHIIIIIHHIHHHHHHIIIIIIHHHHHHHHIHHHIHHUIHHHIIIHHHHHIIHIHUUHIHHIHIIIHIHHHHHHIIUHHHHHIIIHUIUHHUIHIIHHH IIIIIIIIHIIHIIIIIIIIIIIIIIIlHIIIIIUIIIIIIUIIIIMtllllllllllllllllllllllllllii