Bæjarins besta - 11.06.1997, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 3
Framsóknarflokkurinn fundar
Varnarbarátta þingmanna
hefur ekki skilað árangri
segir Gunnlaugur M. Sigmundsson, þingmaður Vestfirðinga
Í síðustu viku var vinnuhópur
sem þingflokkur framsóknar-
manna skipaði í vetur til að
skoða stöðu byggðamála, á ferð
um Vestfirði og hélt m.a. fundi
á Ísafirði og á Patreksfirði. BB
náði tali af Gunnlaugi M.
Sigmundssyni, þingmanni
Vestfjarða og spurði hann um
tilgang ferðarinnar og fund-
anna.
„Við ætlum að fara um Vest-
firði og heimsækja atvinnulífið
og það má segja að ég sé að
kynna svæðið hérna fyrir
félögum mínum. Fundirnir eru
hluti af byggðamálaprógrammi
sem við erum að fara með um
öll kjördæmin til undirbúnings
barátta sem þingmenn og þing-
heimur allur hefur verið að
reyna að halda uppi gagnvart
hinum dreifðu byggðum á
undanförnum árum hefur ekki
skilað árangri. Það er eitthvað
rangt sem við gerum, þannig
að nú erum við komnir til að
hlusta á þá sem hérna búa og
þiggja frá þeim góð ráð. Síðan
munum við reyna að draga
saman þau viðhorf sem við
fáum í þessum sex kjördæmum
og í framhaldinu móta þá stefnu
í byggðamálum sem við mun-
um leggja áhersla á, á Alþingi
næsta vetur,“ sagði Gunn-
laugur.
ráðstefnu sem við ætlum að
halda í haust. Þar ætlum við að
kryfja til mergjar hvað hægt er
að gera til að stemma stigu við
stöðugum fólksflótta frá hinum
dreifðu byggðum til höfuð-
borgarsvæðisins.“
Gunnlaugur sagði að á þeim
fundum sem þegar hafa verið
haldnir, hafi léleg afkoma hjá
landbúnaðinum í sveitahér-
uðum staðið upp úr í hugum
fólks ásamt fábreytni í atvinnu-
lífi. Hvað Vestfirði varðar þá
sagði Gunnlaugur tilgang ferð-
arinnar m.a. að hlusta á Vest-
firðinga og fá fram ráðlegg-
ingar þeirra.
„Það er alveg ljóst að varnar-
Dagskrá hátíðarhalda 17. júní
Dansleikir, trúðar, aflrauna-
keppni og söngvarakeppni
17. júní er á þriðjudaginn og
fer dagskrá dagsins á Ísafirði,
Bolungarvík og Hrafnseyri hér
á eftir:
Á Ísafirði sér Körfuknatt-
leiksfélag Ísafjarðar um skipu-
lagningu dagskrár sem spannar
yfir nokkra daga. Dagskráin
hefst á laugardaginn kl. 14:00
á Silfurtorgi með torgsölu,
körfuboltakeppni 2 á 2, pizzu-
átkeppni, Skátaklifri og kassa-
bílagóðakstri. Hlómsveitin
Sixties mun koma fram og
halda uppi stuðinu. Básar vegna
torgsölunnar eru fríir og er fólki
bent á að panta bása hjá
Guðjóni Þorsteinssyni í síma
456 4853 kl. 15-23.
Sunnudaginn 15. júní fer
Kvennahlaup ÍSÍ fram og að
kvöldi 16 júní verður 17. júní
dansleikur í félagsheimilinu á
Suðureyri en þar verður 16 ára
aldurstakmark.
Dagskrá 17. júní hefst kl.
10:00 með messu í Ísafjarðar-
kirkju. Kl. 13:20 verður safnast
saman á Silfurtorgi og haldið í
skrúðgöngu að hátíðarsvæðinu
á sjúkrahússtúninu þar sem
hátíðin verður sett. Þar verður
flutt hátíðarræða, Sunnukórinn
syngur og Fjallkonan kemur
fram. Þar verður jafnframt efnt
til söngvarakeppni en þátttaka
í hana tilkynnist í Gvendi á
Eyrinni. Þá verður einnig
aflraunakeppni, kökukast,
kassabílasýning, koddaslagur,
pokahlaup og nokkuð sem
kallast „bankað í tunnuna.“
Trúðar munu mæta á svæðið
og gefa börnum eitthvað gott.
Sýning á verkum Péturs Guð-
mundssonar verður í Djúpbátn-
um.
Kl. 21:00 að kvöldi 17. júní
hefjast dansleikir í Neðsta-
kaupstað. Harmonikkuball
verður í Turnhúsinu, Djass-
hljómsveit mun leika í Tjöru-
húsinu og Sægreifarnir munu
halda uppi brjáluðu stuði á
útisvæðinu. Ýmislegt annað
verður í boði og verður það
auglýst nánar í götuauglýs-
ingum.
Í Bolungarvík hefst dagskrá
17. júní með víðavangshlaupi
frá sparisjóðnum kl. 10:00. Kl.
13:30 verður safnast saman við
skólann og hlýtt á lúðrasveit
áður en gengið verður í skrúð-
göngu upp á Skeiði þar sem
hátíðin verður sett. Þar mun
Fjallkonan koma fram, kirkju-
kórinn syngur, sýndur verður
dans og verðlaun verða afhent
fyrir víðavangshlaupið. Þar
verðu einnig farið í leiki, flutt
verður ræða, kraftakarlar sýna
listir sínar og harmonikku-
leikarar munu þenja hljóðfæri
sín. Kl. 16:30 verður efnt til
ratleiks þar sem fjölskyldur
munu keppa.
Kl. 20:30 hefst svo útiball
þar sem kenndur verður línu-
dans meðal annars.
Á Hrafnseyri hefst hátíðar-
messa í Minningarkapellu Jóns
Sigurðssonar kl. 14:00. Séra
Guðrún Edda Gunnarsdóttir
sóknarprestur messar. Kl.
15:00 hefst hátíðardagskrá þar
sem Jón Baldvin Hannibalsson
flytur ræðu. Boðið verður upp
á hljóðfæraleik og mun Krist-
inn Níelsson leika á fiðlu og
Illugi Gunnarsson á píanó. Flutt
verða ljóð og veitingar verða í
boði. Burstabær Jóns Sigurðs-
sonar verður tekinn í notkun
og opnaður almenningi til
sýnis. Bærinn er hluti af safni
Jóns Sigurðssonar og verða
veitingar seldar þar í sumar, en
safnið verður opið frá 17. júní
til 1. september, eins og verið
hefur.
Vinnuhópurinn sem þingflokkur framsóknarmanna skipaði í vetur til að skoða stöðu
byggðamála, var á ferð um Vestfirði í síðustu viku og þá var þessi mynd tekin.
Á mánudaginn var gengið
frá kaupum Rauðsíðu ehf. á
eignum Fáfnis hf. á Þingeyri,
sem Byggðastofnun, Fisk-
veiðasjóður og Landsbanki
Íslands leystu til sín fyrir
skömmu.
Eigendur Rauðsíðu ehf. eru
Ingibjörg Vagnsdóttir, Eyþór
Haraldsson og Guðmundur
Franklín Jónsson og fram-
kvæmdastjóri er Ketill Helga-
son, sem jafnframt er fram-
kvæmdastjóri Bolfisks hf. í
Bolungarvík. Hlutafé fyrirtæk-
isins er 22 milljónir og á Guð-
mundur 10% og þau Inga og
Eyþór 45% hvort.
Að sögn Ketils var kaup-
verðið 64,5 milljónir, sem
greiddar verða á árinu, en
fyrirtækið kaupir frystihús
ásamt tækjum, beinamjöls-
verksmiðju og skreiðarhús.
Útborgun var 10 milljónir en
fyrirtækið lagði jafnframt fram
20 milljónir króna í banka-
ábyrgðum til tryggingar eftir-
stöðva. Sparisjóður Bolungar-
víkur er viðskiptabanki Rauð-
síðu ehf., en fyrirtækið er nefnt
eftir skipi Bárðar sem tók þátt
í Flóabardaga ásamt Þórði
Kakala.
„Bárður á Ströndum mann-
aði skip sitt Dýrfirðingum og
Arnfirðingum, en það hét
Rauðsíða og var mest allra
skipa Þórðar Kakala í Flóa-
bardaga,“ segir Ketill sem ætlar
að nú verði Rauðsíða aftur
mönnuð Dýrfirðingum. Hann
áætlar að vinnsla á Þingeyri
hefjist eftir hálfan mánuð og
að um 40-50 manns fái vinnu
hjá fyrirtækinu þegar starfsemi
verður komin í fullan gang.
Hann segir að hráefni sé tryggt
en áætlanir gera ráð fyrir að
unninn verði svokallaður rússa-
fiskur.
Aðspurður um hvernig rekst-
urinn legðist í hann, sagði
Ketill: „Það leggst mjög vel í
mig að vinna með Þingeyring-
um. Þarna er mikið af duglegu
fólki sem þarf að virkja og ég
vona að það standi með okkur
að uppbyggingunni sem er
framundan.“
Kaupverðið var
64,5 milljónir króna
Rauðsíða ehf. kaupir eignir Fáfnis
Frá Þingeyri.