Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.06.1997, Blaðsíða 9

Bæjarins besta - 11.06.1997, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 9 Munið heimsend- ingarþjónustuna Síminn er 456 5267 Yngri kynslóðin kunni vel að meta þetta litla hús sem smíðað er af fyrirtækinu Ágústi og Flosa ehf. á Ísafirði. Sýningargestum var boðið upp á glæsilega tískusýningu, en Björn Garðarsson, verkefnisstjóri Atvinnuþróunarfélagsins var einn þeirra sem sýndi fatnaðinn. Atvinnuvegasýning Vestfjarða Sextíu fyrirtæki sýndu vörur og þjónustu Um helgina var Atvinnu- vegasýning Vestfjarða haldin í fyrsta sinn í íþróttahúsinu á Torfnesi á Ísafirði. Sýningin, sem haldin var á vegum At- vinnuþróunarfélags Vestfjarða þótti takast vel og er talið að um 5000 gestir hafi sótt hana þá tvo daga sem hún stóð yfir. Um 60 fyrirtæki kynntu þar vörur sínar og þjónustu með ýmsum hætti og kom fjöl- breytni í vestfirsku atvinnulífi mörgum sýningargesta á óvart. Ljósmyndari blaðsins var staddur í íþróttahúsinu á Torf- nesi um helgina og tók þá þessar myndir sem sýna brot af því sem í boði var. Um 5000 manns sóttu sýninguna þá tvo daga sem hún stóð yfir. Dagný Þrastardóttir eigandi Rammagerðar Ísafjarðar var að sjálfsögðu með bás á sýningunni og sýndi þar það sem hún hefur fram að færa í innrömmun, glerskurði, stimplagerð og fleira. Póls var eitt af athyglisverðari fyrirtækjum á sýningunni, en það sérhæfir sig m.a. í smíði á vogum til notkunar í fiskiðnaði. Ungfrú gæs var að halda upp á síðustu daga sína utan hjónabands og fékk af því tilefni nokkra sýningargesti til að stíga létt dansspor með sér. Vestfirski harðfiskurinn er eftirsóttur um land allt og hann rann ljúflega niður hjá þessum sýningargestum. Verslanirnar Leggur og Skel, Krisma og Jón og Gunna sameinuðust um sýningarbás og hér má sjá eigendur og starfsfólk við hann.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.