Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.06.1997, Page 8

Bæjarins besta - 11.06.1997, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 Einar K. Guðfinnsson á Atvinnuvegasýningunni Sýningin tákn um framfaravilja, fjölbreytileika og afl atvinnulífsins Við söfnumst saman vegna opnunar Atvinnuvegasýningar Vestfjarða í skugga afar sérkennilegra aðstæðna. Harð- vítugasta og lengsta vinnudeila hér um slóðir á seinni tímum hefur lamað atvinnulífið hátt á annan mánuð og haft gríðarleg og slæm áhrif á alla starfsemi og allt mannlíf hér vestra. Hvernig sem á málin er litið og hvar sem menn hafa staðið í þessum átökum, er víst að frá þessum hildarleik koma allir móðir og sárir. Borðleggjandi virðist að Vestfirðir muni tapa; örugglega í bráð en vonandi þó ekki í lengd. Það veltur þó mjög á okkur sjálfum. Oft er gests augað glöggt Það fer ekkert á milli mála að undanfarin ár hafa verið okkur ákaflega erfið. Efnahags- stefna fyrri ára keyrði sjávar- útveginn í botnlaust tap. Á árunum sem mikil tekjumynd- un varð í veiðum og vinnslu á botnfiskafurðum fyrir um áratug síðan, var efnahagslífið skipulagt þannig að tekjurnar urðu ekki eftir í greininni heldur veitt með rangri gengis- skráningu og erlendri skulda- söfnun út í þjóðfélagið í heild. Þetta er svipað og við byggjum við það ástand að loðnuveiðar og vinnsla væru nú reknar með tapi, þrátt fyrir að veiðin hefði aldrei verið betri. Okkur finnd- ist slíkt eðlilega fráleitt, en þannig gerðust hins vegar kaupin á eyrinni á síðasta áratug. Það var þessi stefna sem kom vestfirskum fyrir- tækjum á hnén. Þegar menn voru síðan að vonast eftir betri tíð, með batnandi skilningi á hagsmunum útflutningsgrein- anna hófst látlaus niðurskurður aflaheimilda, einkum í þorski sem linnti ekki fyrr en leyfi- legur hámarksafli var orðinn þriðjungur þess sem hann var þegar best lét. Inn í þennan samdrátt fóru því vestfirsk fyrirtæki á hnjánum. Það var þess vegna ekki von á góðu. Erlendur fréttamaður sem hingað kom til þess að gera heimildarmynd fyrir kanadíska sjónvarpið um íslenskan sjáv- annan stað á sviði ferðamála og loks við markaðsmál. Þetta er tvímælalaust verulegur stuðningur við atvinnuupp- byggingu hér vestra, sem á að geta skilað sér svo um munar á næstunni. Annars staðar á landinu þar sem vel hefur verið að verki staðið á sviði atvinnu- ráðgjafar hefur hún lagt grunn- inn að fjölmörgum nýjum og fjölbreyttum atvinnutækifær- um sem heimamenn hafa al- mennt haft frumkvæði að sjálfir. Tengja þarf betur starfsemi framhalds- skólans við atvinnulífið Í þessu sambandi vil ég leggja áherslu á að við reynum að þróa þessi mál frekar. Raunar er mér kunnugt um að undirbúningsstarf í þessa veru er þegar hafið. Það hníga vitaskuld öll rök að því að tengja með beinum hætti hina nýju atvinnuráðgjöf, starfsemi Fjórðungssambandsins, rann- sóknar og þróunarstarfsemi sjávarútvegsins á Ísafirði, Byggðastofnun og ráðunauta- starf landbúnaðarins hér á Vestfjörðum. Jafnframt þurf- um við að leita leiða til þess að tengja betur starfsemi Fram- haldskólans við atvinnulífið hér, mögulega með samstarfi við þá aðila sem hér hafa verið taldir upp. Síðan er eðlilegt að gera þá kröfu til háskólanna í landinu að þeir komi að slíku samstarfi með okkur og efli það og styðji þannig með beinum hætti við uppbygg- ingarstarf vestfirsks atvinnu- lífs. Það er enginn vafi á því að samhæfing kraftanna af þessu tagi getur skilað okkur miklum og góðum árangri. Góðir gestir. Nú er verkfallið loksins að baki sem betur fer. Framundan er þrotlaust starf þar sem við verðum öll að leggjast á eitt, allir íbúar Vestfjarða. Hvar í flokki sem menn standa, hvar sem menn búa, vinnuveitendur jafnt og launþegar, fólk úr öllum at- vinnugreinum. Nú gildir það að horfa fram á veginn, hafa trú á framtíðinni, möguleikum Vestfjarða og þeim krafti sem Vestfirðingar búa yfir. Hér er nóg um björg og brauð berirðu töfrasprotann. Þetta land á ærinn auð ef menn kunna að nota hann. (Jón Ólafsson, skáld) Með þessum orðum er mér það mikill heiður að opna þessa glæsilegu sýningu, sem tákn þess framfaravilja, fjölbreyti- leika og afls sem atvinnulífið hér býr yfir og mun skila okkur áfram inn í nýja og spennandi framtíð. Ræða flutt við opnun Atvinnuvegasýningar Vestfjarða 6. júní 1997. Fyrirsagnir og millifyrir- sagnir eru blaðsins. arútveg kvaðst fullur aðdáunar á þeim aðlögunarhæfileika sem atvinnulífið hér fyrir vestan hefði sýnt í ljósi þessara erfiðleika. - Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á því að þið séuð í vanda, sagði hann við mig. Miklu frekar er ástæða til þess að dást að þrautseigjunni og hörkunni. Mér hefur oft komið í hug þetta samtal við hinn erlenda gest þegar ég hef mátt hlusta á skot og ónot í garð okkar hér fyrir vestan fyrir meintan skort á aðlögunarhæfni og útsjónar- semi við rekstur atvinnufyrir- tækjanna. Fyrir mér hefur þetta fært sanninn heim um að oft er gests augað glöggt. Náttúruhamfarir þær sem við þekkjum alltof vel hafa líka höggvið stór skörð í okkar raðir og veikt byggðirnar okkar. Ekkert okkar veit með vissu hvaða áhrif þessar hamfarir hafa haft, þó okkur sé ljóst að þær hafa veikt okkur öll. Í ljósi alls þessa finnst sumum það nokkur bíræfni hjá At- vinnuþróunarfélagi Vestfjarða að efna til sýningar eins og þeirrar sem hér getur að líta. Kannski hugsar líka einhver með sér. Hvað eru þessir Vestfirðingar nú að vilja upp á dekk, eins og allt er í pottinn búið hjá þeim? Yfir hverju hafa þeir að státa og hvað þykjast þeir svo sem hafa að sýna öðrum landsmönnum? Vestfirðir álitlegur kostur til búsetu Ég fagna því að þessi sýning er haldin nú og er þess fullviss að hún muni sýna okkur sjálf- um en einnig öðrum lands- mönnum að vestfirskt atvinnu- líf hefur upp á margt að bjóða og því séu Vestfirðir álitlegur kostur til búsetu. Það fer ekkert á milli mála að við höfum verið að sjá ýmis teikn um það að vestfirskt atvinnulíf hafi verið að ná vopnum sínum að nýju. Endur- skipulagning fyrirtækja, sam- eining þeirra og sókn á ýmsum vígstöðvum er talandi tákn um það að hér um slóðir ætla menn ekki að leggja árar í bát þó í móti blási. Það er varlega áætl- Atvinna Óskum að ráða starfsfólk nú þegar í eftir- farandi störf: • Matreiðslustörf þ.m.t. bakstur • Afgreiðslu- og þjónustustörf. • Ræstingu- og hreingerningarstörf. Ekki yngra en 20 ára. Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 456 5367, eða á skrifstofu að Mánagötu 1 (2. hæð) daglega frá kl. 8:00 til kl. 17:00. Einar K. Guðfinnsson. að að þessi endurskipulagning muni leiða til þess að yfir einn milljarður muni koma inn í vestfirsk sjávarútvegsfyrirtæki á þessu ári, í formi aukins hlutafjár. Það er engum vafa undirorpið að sú innspýting mun gera vestfirskt atvinnulíf hæfara til þess að takast á við ný verkefni á næstunni. Þær breytingar sem eru nú að verða á vestfirskum sjávarútvegi leiða örugglega til þess að fyrirtækin hér verða umsvifa- mikil á hlutafjármarkaðnum og þær viðtökur sem þau hafa þegar fengið benda sem betur fer til þess að fjárfestar hafi trú á þessum atvinnurekstri. Og úr því að þessir aðilar, sem eru þekktari að öðru en því að kasta fjármunum sínum á glæ, eru reiðubúnir til þess að leggja þá til ávöxtunar í vestfirskum atvinnurekstri sýnist augljóst að við hljótum sjálf að hafa trú á framtíðinni. Sú ákvörðun sem nú hefur verið tekin um úthlutun afla- heimilda, er einnig skýr vís- bending um vaxandi tekjur í vestfirskum sjávarútvegi. Á næsta fiskveiðiári munu afla- heimildir í þorski og rækju aukast enn. Hvergi munu auknar aflaheimildir í þessum tveimur mikilvægu nytjateg- undum skila jafn miklum tekju- auka og einmitt hér. Það gefur auga leið að þessi ákvörðun ein og sér mun bæta afkomuna hér vestra jafnt hjá fólki og fyrirtækjum vegna aukinna umsvifa. Á mjög mörgum öðrum sviðum eru líka dæmi um sóknarhug og fjárfestingar. Þeirra sér stað í uppbyggingu á sviði loðnuvinnslu, ýmiss iðnaðar, ferðaþjónustu og nýsköpunar í sjávarútvegi. Stofnun Atvinnuþróunar- félagsins í fyrra er ennfremur til marks um það að menn ætla sér að brjótast út úr viðjum erfiðleikanna með því að leggja áherslu á þá nauðsynlegu nýsköpun sem verður að eiga sér stað hér sem annars staðar. Nú er verið að ganga frá samningi á milli Atvinnu- þróunarfélagsins og Byggða- stofnunar þar sem gert er ráð fyrir verulegu fjárframlagi til þessarar atvinnuþróunarstarf- semi bæði frá Byggðastofnun og heimamönnum. Á þeim grundvelli verður unnt að sinna þrenns konar atvinnuráðgjöf hér á Vestfjörðum. Í fyrsta lagi almennri atvinnuráðgjöf, í Almennur fundur um hvert stefnir í skattamálum Almennur fundur um hvert stefnir í skatta- málum verður haldinn á Hótel Ísafirði 12. júní kl. 20:30. Frummælendur: Vilhjálmur Egilsson for- maður efnahags- og við- skiptanefndar Alþingis. Sigríður Björk Guðmunds- dóttir, skattstjóri í Vest- fjarðaumdæmi. Gestir fundarins: Alþingismennirnir, Einar K. Guðfinnsson og Einar Odd- ur Kristjánsson. Fulltrúaráð Sjálfstæðis- félaganna í Ísafjarðarbæ. Ametyst Hár- og förðunarstofa Aðalstræti 22, 400 Ísafjörður Sími 456 3310 Verður lokuð vegna sumarleyfa dagana 30. júní - 15. júlí Jónmundur skipaður yfirlögregluþjónn Lögreglan í Reykjavík Jónmundur Kjartansson, fyrrverandi aðstoðaryfir- lögregluþjónn á Ísafirði, hefur verið skipaður yfirlög- regluþjónn við embætti lög- reglustjórans í Reykjavík frá og með 1. júlí næstkomandi. Hann mun taka við stjórn almennu deildar lögregl- unnar. Jónmundur er fæddur í Bolungarvík 1955 og starfaði þar sem afleysinga- og hér- aðslögreglumaður 1980- 1987. Hann var skipaður rannsóknarlögreglumaður hjá Rannsóknarlögreglu rík- isins í febrúar 1987 og í október 1988 var hann skip- aður aðstoðaryfirlögreglu- þjónn á Ísafirði. Þar starfaði hann til haustsins 1993 en þá tók hann við stöðu yfirlög- regluþjóns á Selfossi. Síðan 1. júlí 1996 hefur Jónmundur starfað sem yfirlögreglu- þjónn í dómsmálaráðuneyt- inu.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.