Bæjarins besta - 11.06.1997, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
○
3 SPÓLAN10TOPP
http://www.americascup
2000.org.nz/
Ameríkubikarinn er sú sigl-
ingakeppni sem hefur mesta
athygli fengið. Á heima-
síðunni getur þú fundið
upplýsingar um sögu hennar,
skoðað myndbönd og fleira.
http://www.mammothcave
.com/
Á heimasíðu Mammoth
Cave Online er hægt að
skoða þessa frægu mammúta
hella og leiðir.
http://www.bluelagoon.is/
Á glæsilegri heimasíðu Bláa
lónsins við Svartsengi er
hægt að skoða myndir frá
lóninu og vörur frá þeim
1. The Long Kiss...
2. Jingle all the Way
3. Courage Under Fire
4. Dragonheart
5. Black Sheep
6. Chain Reaction
7. Jack
8. Twister
9. Fear
10. Phenomenon
í
TÆKINU
HELGAR
veðrið
góðará
NETINUht
tp
:
ókeypis smáauglýsingar
kaup & sala
Horfur á fimmtudag:
Hæg vestlæg átt.
Sumsstaðar smáskúrir
vestanlands en annars
þurrt og víða léttskýjað.
Hiti 5 til 14 stig, hlýjast
austanlands.
Horfur á föstudag:
Vestlæg átt með smá
skúrum vestanlands
en annars þurrt og
léttkýjað. Hiti 5 til 14
stig.
Á laugardag, sunnu-
dag og mánudag:
Hæg breytileg eða
vestlæg átt. Skýjað
með köflum um vest-
anvert landið, en víða
léttskýjað í öðrum
landshlutum. Hiti 6 til
16 stig yfir daginn,
hlýjast suðaustan-
lands.
The Rich Man's Wife
Josie Potenza sem leik-
in er af Halle Berry,
tilheyrir forréttindastétt
og lifir í vellystingum
ásamt sínum auðuga
manni Tony Potenza. En
dag einn sundrast veröld
hennar þegar Tony er
myrtur og allt bendir til
þess að hún sé morðing-
inn.
MYNDBÖND
HJÁ
VÍDEÓHÖLLINNI
Það er gleðiefni að nú skuli vera haldin
atvinnuvegasýning Vestfjarða í Íþróttahúsinu á
Torfnesi. Þrátt fyrir langvinn verkföll hafa
aðstandendur haldið sínu striki alveg ótrauðir.
Vestfirðingum er mikil nauðsyn á því að bæta mjög
ímynd Vestfjarða. Hér er gott að búa og mörg
tækifæri eins og Forseti Íslands benti á í opinberri
heimsókn sinni vestur í ágústlok í fyrra. Tæknin á
að geta tryggt okkur að við höldum okkar hlut ef við
viljum.
Einmitt þess vegna er hollt að taka saman á
einum stað það sem verið er að gera í atvinnulífi
Vestfirðinga. Margt mun þar vafalaust koma
mönnum kunnuglega fyrir sjónir en annað vera
framandi. Auk þess mun heimsókn á sýninguna
vafalaust hafa vakið margan gestinn til umhugsunar.
Það er svo einkennilegt að hugsa til þess að
Vestfirðingar virðast ávallt standa í deilum hver við
annan ef þeir eiga til þess einhver
tækifæri. En er það svo í raun? Sennilega
er það ekki meining nokkurs að troða
illsakir við náungann. Það bara
verður svoleiðis einhvern veginn.
Ein ástæða þess er auðvitað
sú að menn gæta þess ekki
nægilega að finna verkefni
til að leysa í samvinnu,
sameiginlega í stað þess
að hver bauki í sínu
horni. En návígið er
auðvitað frekar erfitt
viðureignar.
Trúnaðarbrestur
Verkfallið sem staðið
hefur vikum saman er
glöggt dæmi um það
sem gerist þegar trún-
aður rofnar milli þeirra
sem verða að standa saman um fjöregg fjórðungsins.
Kjaradeilan hefur sennilega snúist meira um
það, að verkafólk lýsti andúð sinni á því að horfa
upp á það gerast á skömmum tíma að fjármunir
streymdu til fárra vegna þess kvótakerfis sem er nú
við lýði í sjávarútvegi.
Vissulega er full þörf þess að skoða núverandi
skipulag fiskveiða. En það er líka nýtt í íslensku
samfélagi að einstaklingar verði ríkir ef svo má að
orði komast vegna ævistarfs síns og enn frekar
þykir furðu sæta að afkomendur hljóti eignir fyrir
tilstuðlan foreldra sinna. Kannski er að skapast
stéttskipt þjóðfélag eins og út í hinum stóra heimi,
þar sem skiptingin ræðst af eignum en ekki
einhverjum þeim atvikum, sem fremur hafa verið
notuð til þess að draga fólk í dilka á Íslandi, eins og
menntun svo dæmi sé tekið.
Það smáa samfélag sem þrífst á Vestfjörðum
hefur verið fremur samstætt og ekki borið mikið á
auðmönnum þótt þeir hafi verið til hér sem annars
staðar. En þegar dæmið snýst um fiskinn í sjónum
og arðinn af honum er verkafólki nóg boðið. Það
telur á sinn hlut gengið.
Því er eitt brýnasta verkefnið að loknu verkfalli
að skapa trúnað milli vinnuveitenda og verkalýðs,
þann trúnað sem oft hefur verið talinn einkenna
samskipti vinnuveitenda og verkafólks á Vest-
fjörðum. Sameiginlegir hagsmunir eru miklu meiri
en það sem skilur að.
Tækifæri framtíðar
Atvinnuvegasýning Vestfjarða er einmitt eitt
margra tækifæra til að opna augu íbúa á Vestfjörðum
fyrir möguleikum fjórðungsins og þeirra sjálfra til
þess að fást við ný verkefni í sameiningu og stíga
fram á veginn og líta enn lengra eftir verkum og
tekjum, ná til annarra landsmanna og útlendinga.
Hinu er auðvitað ekki að leyna að framsýni kallar
á breyttan hugsunarhátt hér um slóðir. Menntun
er nauðsyn til að takast á við framtíðina. Aukin
verkmenntun er einna brýnust, auk þess að fylgjast
vel með öllum nýjungum í samskiptatækni og
fjölmiðlum. Snerpa er gott dæmi um það hvað hægt
er að gera áVestfjörðum ef viljinn er fyir hendi
Til hamingju með atvinnuvegasýninguna. Hún
er góð tilbreyting og hristir vel upp í okkur. Þar
byrjar hinn nýi hugsunarháttur.
- Stakkur.
Atvinnuvegasýning
Vestfjarða
Nýlegt Samick píanó til sölu
ásamt píanóbekk. Upplýsingar
í síma 456 3970, á kvöldin.
Móholt 9, á Ísafirði, sem er
einbýlishús ásamt bílskúr er til
sölu. Upplýsingar í síma 456
3629
Gul dúnúlpa var tekin í mis-
gripum í Sjallanum s.l. laugar-
dagskvöld. Sá sem veit um
úlpuna hafi samband í síma
456 4230 og í vs. 456 5280
Til sölu reiðhjól fyrir 3-7 ára.
Upplýsingar í síma 456 7251
Til sölu Combi Camp tjald-
vagn. Verð kr. 50 þúsund.
Upplýsingar í síma 456 3392
Til sölu Amiga 1200 heimilis-
tölva. Hún er með innbyggðu
turbo hröðunarkorti, 6 Mb
RAM minni og 600 Mb hörðum
diski. Ýmsir fylgihlutir, tilbúin
fyrir Internetið. Upplýsingar í
síma 456 4621, eftir kl. 19.
Haukur.
Aðalfundur íþróttafélagsins
Ívar verður haldinn á morgun,
12. júní, kl. 20:30 í íþrótta-
húsinu á Torfnesi, efri hæð.
Venjuleg aðalfundarstörf og
kaffiveitingar. Stjórnin.
Sendiþjónusta Gulla! Gulli
sendill óskar eftir að sendast
fyrir fyrirtæki og einstaklinga á
Ísafirði. Er með stóran vagn
aftan í reiðhjóli. Upplýsingar í
síma 456 4184 eftir hádegi og
845 3626 á kvöldin.
Til sölu falleg VW bjalla árg.
´76. Einnig nýleg Philco þvotta-
vél, Philips ísskápur með sér
frystihólfi, nýlegt rúm 1½
breidd, iðnaðarloftpressa, Sub-
aru ́ 87, Chevrolet Van innréttaður
m/ díselvél og Toyota Celica árg.
´80. Upplýsingar í síma 456 3454
Fuglar ásamt búri fást gefins.
Upplýsingar í síma 456 7892, eftir
kl. 17.
Til sölu nýr kanó með 2 árum.
Upplýsingar í síma 456 5055, eftir
kl. 19. Kristján.
Til sölu 14" álfelgur undir Nissan
með glænýjum Low Profile sumar-
dekkjum. Upplýsingar í síma 456
4675 eftir kl 18, eða í síma 894
0975.
Við erum 12 og 13 ára og okkur
langar til að passa börn í sumar
sem eru í kerru eða vagni. Upp-
lýsingar í síma 456 3696, Erla
Dögg og Inga Sigga.
Hann bröndóttur og hún kol-
svört. Bæði 9 vikna og kassavön
óska eftir framtíðarbúsetu hjá
kattargóðu fólki. Upplýsingar í
síma 456 4317
Göngufók - skokkarar! Til sölu
á góðu verði ónotaðir Meindl
Island goretex gönguskór nr. 8 og
Misuno hlaupaskór nr. 42. Upp-
lýsingar í síma 456 4181, eftir kl.
18.
Átta mánaða tík fæst gefins, skosk
íslensk. Upplýsingar í síma 456
3286
Til sölu Sega Megadrive leikja-
tölva, mjög lítið notuð, ásamt
tveimur leikjum. Verð kr. 10
þúsund. Upplýsingar í síma 456
3392
Til sölu Silvercross barnavagn á
kr. 10.000, bílstóll fyrir 0-9
mánaða á kr. 2.500, baðborð á kr.
3.500. Einnig fæst gefins góð
svalakerra og rimlagardínur í
nokkrum stærðum. Upplýsingar í
síma 456 4254
Case grafa 680, árgerð ´82, án
framdrifs til sölu. Verð kr. 450
þúsund. Einnig KR baggatína árg.
´89 á kr. 60 þúsund. Upplýsingar
í síma 456 8195
Til sölu Alfa Romeo 4x4, árg. ́ 86.
Góður bíll, verð kr. 160 þúsund.
Upplýsingar í síma 456 8173
Óska eftir notuðum tjaldvagni.
Staðgreiðsla. Upplýsingar í síma
456 7424
Til leigu fjögurra herbergja
kjallaraíbúð á besta stað á Eyrinni
á Ísafirði. Laus nú þegar. Upp-
lýsingar í síma 456 5905, á
kvöldin.
Óska eftir notuðum ísskáp,
sjónvarpi og rúmi í nothæfu
ástandi. Upplýsingar í síma 896
6763
Tveir páfagaukar óska eftir góðu
heimili. Búr fylgir með. Upp-
lýsingar í síma 456 4110
Óska eftir 2ja sæta sófa eða
svefnsófa, fyrir lítinn pening.
Upplýsingar í síma 456 4423
Tólf ára stelpa óskar eftir að
passa börn hálfan daginn.
Upplýsingar í síma 456 4118
Til sölu Canon 240 litaprentari
á kr. 12.000, Boomerang golf-
sett á kr. 35.000. Einnig Suzuki
TS-50, tilboð óskast. Upp-
lýsingar í síma 456 3421
Til sölu lítið einbýlishús að
Tangagötu 21, sem 3ja her-
bergja á tveimur hæðum,
85,4m². Góður garður. Upp-
lýsingar í síma 456 3881
Til sölu Lada Sport árg. ´89,
ekinn 73.500 km, nýleg 15"
dekk. Þarfnast lagfæringar, selst
ódýrt. Upplýsingar í síma 456
4552 eða 846 1733, Guð-
mundur.
Til sölu nýjar 15" álfelgur,
fjögurra gata. Einnig hátalara-
hilla í Nissan Sunny GTI 2000
með tveimur bössum og fjórum
hátölurum. Upplýsingar í síma
557 8173, eftir kl. 20.
Til sölu vel með farinn kerru-
vagn. Upplýsingar eru veittar í
síma 456 5128
Óska eftir að kaupa notað
hjólhýsi. Upplýsingar í síma
456 3528.
Til sölu grár Silvercross barna-
vagn ásamt Simo kerrupoka.
Upplýsingar í síma 456 4430
Til sölu Mitsubishi L-300,
árgerð 1981. Upplýsingar í síma
456 7869.