Bæjarins besta - 19.12.1997, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1997
Fyrirætlanir nýs meirihluta bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar um ráðningu nýs bæja
Jónas og Kristinn Jón verða b
vors og fá 170 þúsund krónur
Meirihluti bæjarstjórnar
Ísafjarðarbæjar samþykkti um
helgina að Kristinn Jón Jóns-
son, forseti bæjarstjórnar, og
Jónas Ólafsson, formaður
bæjarráðs, myndu áfram geg-
na í sameiningu starfi bæjar-
stjóra Ísafjarðarbæjar fram til
vors.
Hinn nýi meirihluti bæjar-
stjórnar hafði lýst því yfir að
heimamaður yrði ráðinn bæj-
arstjóri og að hann yrði ekki
úr röðum bæjarfulltrúa. Þessar
fyrirætlanir gengu ekki eftir
og var Kristinn Jón Jónsson
spurður hverju sætti.
Hann vildi ekki upplýsa við
hverja var rætt um að taka að
sér bæjarstjórastarfið, en
sagði að menn hefðu sett fyrir
sig að þurfa að fórna núver-
andi starfi sínu fyrir stuttan
starfstíma í bæjarstjórastóln-
um. „Það voru einnig aðilar
sem spurðust fyrir um starfið,
en þegar til átti að taka voru
þeir ekki reiðubúnir fyrir svo
stuttan tíma. Ég held að úr
þessu taki því ekki að nefna
þá sem um var að ræða, auk
þess sem sumir þeirra óskuðu
nafnleyndar.“
Að sögn Kristins hefur ver-
ið ákveðið að hann sinni
viðveru bæjarstjóra á bæjar-
skrifstofunni fyrir hádegi en
Jónas Ólafsson eftir hádegi.
Þeir tveir muni síðan skipta
með sér öðrum verkum eftir
því sem henta þætti.
Aðalglíman við gat
á fjárhagsáætlun
Launakjör bæjarstjóranna
tveggja til samans verða nokk-
uð lægri en laun fyrirrennar-
ans, Kristjáns Þórs Júlíusson-
ar. Greiðsla fyrir störf þeirra
miðast við formennsku í
bæjarráði og á að samsvara
tólf fundum í mánuði til hvors
þeirra. Í krónum talið þýðir
þetta að hvor bæjarstjóri hefur
um 170 þúsund krónur í laun
á mánuði og er um heildar-
greiðslu að ræða þar sem allt
er innifalið, t.d. bæði orlof og
lífeyrissjóður.
Að sögn Kristins Jóns
leggst bæjarstjórastarfið ágæt-
lega í hann. „Ég er búinn að
vera lengi í bæjarpólitíkinni
og þekki í stórum dráttum vel
til flestra málaflokka þannig
að ég held að þetta verði ekk-
ert vandamál. Jónas hefur
einnig mikla reynslu þannig
að þetta á allt saman að
ganga.“
- Mega bæjarbúar eiga von
á einhverjum áherslubreyting-
um í rekstri sveitarfélagsins
með tilkomu nýrra bæjar-
stjóra?
„Nei, ég á ekki von á því.
Aðalglíman er við gat sem er
á fjárhagsáætlun þessa árs.
Um hundrað og fimmtíu millj-
ónir skortir á að endar nái
saman og ég sé ekki fram á
annað en að vandanum verði
mætt með lántöku. Verkfallið
í vor með tilheyrandi sam-
drætti í tekjum er ein ástæðan
fyrir fjárlagagatinu. Einnig
hafa sölur eigna ekki gengið
eftir samkvæmt áætlun og
skortir 30 milljónir króna þar
upp á. Síðast en ekki síst eru
launahækkanir til kennara nú
í haust áhrifaþáttur ásamt at-
vinnuleysi á Þingeyri og um-
framútgjöldum til snjóflóða-
varna upp á 20 milljónir
króna.“
Hættir Rúnar
við að hætta?
- Nú var samþykkt á fundi
bæjarstjórnar um daginn að
viðræður færu fram við Rúnar
Vífilsson, skóla- og menning-
arfulltrúa og Þórunni Gests-
dóttur, aðstoðarbæjarstjóra,
um uppsagnir þeirra?
„Þórunn hefur óskað eftir
starfslokasamningi, en ég er
að vona að Rúnar endurskoði
sína afstöðu. Við óskuðum
Lionsklúbbur Ísafjarðar
Endurhæfingardeild FSÍ
fært lasertæki að gjöf
Á mánudag færði Lions-
klúbbur Ísafjarðar endur-
hæfingardeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Ísafirði
höfðinglega gjöf í tilefni 40
ára afmælis klúbbsins fyrr á
árinu. Um er að ræða laser-
tæki sem býður upp á marg-
víslega notkunarmöguleika
við endurhæfingu sjúklinga.
Sigurveig Gunnarsdóttir,
yfirsjúkraþjálfari endurhæf-
ingardeildarinnar, veitti tæk-
inu viðtöku og færði Lions-
mönnum þakkir, en í máli
hennar kom fram að þetta er
ekki í fyrsta eða eina skiptið
sem þeir koma færandi hendi
á Fjórðungssjúkrahúsið.
Sigurveig greindi frá not-
kunarmöguleikum tækisins
og sagði það aðallega notað á
stoðkerfi líkamans til að
minnka verki, bæði vegna
bráðameiðsla og krónískra
verkja, en einnig væri hægt
að vinna á ýmsum húð- og
taugavandamálum með tæk-
inu. Hún sagði tækið vera
orkugjafa sem yki blóðflæði
til þeirra staða líkamans sem
því væri beint að.
Að sögn Heiðars Guð-
mundssonar, formanns fjár-
öflunarnefndar vegna kaupa
á lasertækinu, var tækið tekið
í notkun í vor á endurhæf-
ingardeildinni, þótt það væri
núna fyrst sem formlega
afhending færi fram. Tækið
var valið í samráði við starfs-
fólk endurhæfingardeildar-
innar og kemur í stað eldra
tækis sem orðið var gamalt
og úrelt.
Sigurveig Gunnarsdóttir, yfirsjúkraþjálfari endurhæfingardeildar FSÍ, tók við lasertækinu
frá Heiðari Guðmundssyni, formanni fjáröflunarnefndar Lionsklúbbs Ísafjarðar vegna
tækjakaupanna.
Heiðar vildi koma á fram-
færi þökkum til allra sem stutt
hafa Lionsklúbb Ísafjarðar
vegna tækjakaupanna, en
hann vildi jafnframt hvetja
menn sem vilja komast í góð-
an félagsskap og styðja góð
málefni, til að ganga í klúbb-
inn. Stjórnarskipti fóru fram í
Lionsklúbbi Ísafjarðar á dög-
unum, en í nýrri stjórn eru;
Guðmundur Marínósson for-
maður, Garðar Einarsson
ritari og Grétar Sigurðsson
gjaldkeri. Fyrri stjórn var
skipuð þeim; Kristjáni Krist-
jánssyni, Salmari Jóhanns-
syni og Kristjáni Pálssyni.
Sex heilbrigðisstofnanir í Ísafjarðarbæ sameinaðar undir einni yfirstjórn
Tvö sveitarfélög íhuga sölu eignarhluta í FSÍ
Ingibjörg Pálmadóttir, heil-
brigðisráðherra, skipaði með
bréfi, dagsettu 28. nóvember,
nýja stjórn fyrir sameinaða
„Heilbrigðisstofnun, Ísafjarð-
arbæ“, en tilskipunin er gerð
að undangenginni tilnefningu
heimamanna og mun gilda
fram yfir komandi sveitar-
stjórnarkosningar. Þar með er
staðfest sameining sex stofn-
ana; Fjórðungssjúkrahússins
á Ísafirði, Heilsugæslustöðv-
ar Ísafjarðar ásamt útibúum á
Suðureyri og í Súðavík,
Sjúkraskýlisins og Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Þingeyri,
Öldrunarstofnunar Önundar-
fjarðar og Heilsugæslustöðv-
arinnar á Flateyri. Sameining-
in tekur gildi 1. janúar.
Nýja stjórnin leysir af hólmi
þrjár stjórnir og fækkar stjórn-
armönnum því úr 21 í 7 til 9.
Formaður stjórnar er Magda-
lena Sigurðardóttir, en aðrir í
stjórn eru; Sverrir Hestnes,
Steinþór Bjarni Kristjánsson
og Birkir Friðbertsson. Að
auki situr Ingibjörg Sveins-
dóttir í stjórninni, tilnefnd af
starfsmannaráði.
Eins og greint var frá í blað-
inu fyrr í haust, höfnuðu Bol-
víkingar hugmyndum um
sameiningu heilbrigðisstofn-
ana á norðanverðum Vest-
fjörðum. Þeir og Súðvíkingar
munu vera mjög óhressir með
að eiga ekki stjórnarmann í
hinni nýju stjórn og benda á
að þrátt fyrir allt eigi þessi
sveitarfélög enn aðild að
Fjórðungssjúkrahúsinu og
taki þátt í stofnkostnaði þess.
Á fundi bæjarráðs Bolungar-
víkur 2. desember s.l. var eftir-
farandi bókun samþykkt:
„Bæjarráð Bolungarvíkur
mótmælir harðlega afstöðu
Heilbrigðisráðuneytisins þar
sem tekin er af Bolungarvík,
sem er eignaraðili að FSÍ,
stjórnarseta í stjórn FSÍ.“
Í rökstuðningi Ólafs Krist-
jánssonar bæjarstjóra í bréfi
til ráðuneytisins, kemur fram
að hann telur að verði ekki
breyting á ákvörðun ráðuneyt-
isins um skipan í stjórn FSÍ
verði sveitarfélögin Bolungar-
vík og Súðavík að leita réttar
síns m.t.t. eignaraðildar.
„Því verður ráðuneytið ann-
að tveggja að hlutast til um að
Ísafjarðarbær kaupi eignarhlut
Bolungarvíkur (og Súðavík-
ur), eða endurskoða stjórnar-
skipun,“ segir Ólafur í bréfinu.
Með sameiningunni væntir
heilbrigðisráðuneytið þess að
stjórnsýslueiningar verði
sterkari og að sameiginlegur
kostnaður, svo sem við fjár-
reiður og innkaup, lækki.
Að sögn Guðjóns Brjáns-
sonar, framkvæmdastjóra
hinnar nýju sameinuð heil-
brigðisstofnunar, eru mark-
mið stjórnenda að stuðla að
áreiðanlegri og aðgengilegri
heilbrigðisþjónustu á svæðinu
og að unnið verði að tengingu
heilsugæslunnar innbyrðis
þannig að hún verði hæfari og
hagkvæmari rekstrareining.
Jafnframt á að tryggja fagfólk
til starfa og stuðla að stöðug-
leika í mannahaldi m.a. með
sköpun starfsumhverfis sam-
kvæmt nútímakröfum. Guð-
jón segir að síðast en ekki síst
verði unnið að því að fjárfram-
lög til rekstrar heilbrigðis-
þjónustunnar verði ekki skert
umfram það sem orðið er.