Bæjarins besta - 19.12.1997, Side 7
FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1997 7
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jóla- og
nýárshátíð og þökkum árið sem er að líða.
Bolungarvíkurkaupstaður
Hafnargötu 90-96
Bolungarvík
Sendum Bolvíkingum sem og öðrum
Vestfirðingum okkar bestu jóla- og nýárskveðjur
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar sendir íbúum
sveitarfélagsins og viðskiptavinum sínum bestu
jóla- og nýárskveðjur með þökk fyrir hið liðna
Bæjarstjórinn
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
Landsbanki
Íslands
Útibúið á ÍsafirðiÍsafirði, Bíldudal, Patreksfirði
Óskum viðskiptavinum okkar, starfsfólki og
landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar
á komandi ári
Sparisjóður Bolungarvíkur
Bolungarvík og Suðureyri
Sendum Bolvíkingum, Súgfirðingum og öðrum
Vestfirðingum óskir um gleðileg jól, gott og
farsælt komandi ár með þökkum fyrir viðskiptin
-LÍF
Sextíu
menn
í lífs-
hættu
sjóinn bárust ekki niður í
vélarrúm. Ólafur Pálsson
yfirvélstjóri hafði verið niðri í
stjórnrúmi að horfa út um
kýrauga þegar hann sá fyrsta
skaflinn koma.
Bátsmaðurinn hafði þá ver-
ið með honum.
Þegar stóra brotið kom sá
Ólafur sitt óvænna og tókst
að skella blindhleranum yfir
kýraugað og loka með því að
tessa hlerann aftur. Ólafur
hékk síðan á tessanum og
handriði þar fyrir neðan á
meðan skipið fór veltuna.
Þegar skipið rétti sig af varð
Ólafur þess áskynja að tals-
verður sjór var kominn á
göngupall milli aðalvélanna.
Hann taldi fyrst að kælivatns-
rör hefði sprungið. Svo var þó
ekki heldur var þetta sjór sem
hafði flætt inn um skorsteins-
húsið og niður í vélarrúm
þegar skipið var á hliðinni.
Nú heyrði Einar skelfingar-
óp í kallkerfi skipsins:
„Nú var eins og stöðin
opnaðist hjá Jakobi yfirstýri-
manni aftur á. Ég heyrði
skyndilega óp og öskur í hon-
um – sársaukaóp.
Það var hræðilegt að heyra
þetta. Nú vissi ég að eitthvað
alvarlegt hafði gerst.
Á sama augnabliki og ég
heyrði þetta skaut Guðmund-
ur annar stýrimaður línu yfir í
Vikartind. Ég tók samstundis
ákvörðun um að hætta þessum
aðgerðum. Keyra bara skipið
út úr þessum ósköpum. Ég
hugsaði ekkert um línuna,
hvort hún náði yfir í Vikartind
eða hvert hún fór. Ég lét menn-
ina skera á línuna. Það var
ekkert annað að gera en að
bjarga okkar skipi og okkar
fólki.
Ég beygði skipinu í stjórn-
borða til að forðast akkeris-
keðjurnar frá Vikartindi. Nú
hringdi annar síminn í brúnni.
Ég tók tólið upp. Það var
Ólafur yfirvélstjóri. Hann
sagði mér að yfirstýrimaður-
inn væri fótbrotinn og báts-
maðurinn týndur – hann hefði
þó verið í vélarrúminu einni
mínútu áður.
Þetta voru lamandi fréttir.
Þær verstu sem ég hafði
fengið á ævinni. Skelfilegast
fannst mér að vita að við gát-
um ekkert aðhafst til að hjálpa
manninum ef hann hefði farið
útbyrðis.
Ólafur kvaðst ekki vita
hvort bátsmaðurinn hefði
hlaupið út eða fram í skip. Í
sama mund hringdi hinn
síminn í brúnni. Það var
Jóhann Sigurjónsson háseti
sem var aftur á. Hann sagði
að allt væri farið fjandans til
hjá þeim. Ég lét alla vita og
bað áhöfnina að svipast um
eftir bátsmanninum.
Menn voru að leita út um
allt skip en líkur bentu til að
hann hefði farið fyrir borð.
Ég lét Vikartind vita í talstöð-
inni að við værum hættir
aðgerðum, maður hefði fót-
brotnað hjá okkur og að lík-
indum hefði einn maður farið
útbyrðis. Ég óskaði eftir að
þeir litu vel í kringum sig
stjórnborðsmegin.“
Bensínstöðin á Ísafirði
Opnunartímar
um jól og áramót
Þorláksmessa, 23. desember kl. 07:30 - 23:00
Aðfangadagur, 24. desember kl. 07:30 - 15:00
Jóladagur, 25. desember LOKAÐ
Annar í jólum, 26. desember kl. 12:00 - 16:00
Gamlársdagur, 31. desember kl. 07:30 - 15:00
Nýársdagur, 1. janúar LOKAÐ
Gleðileg jól og
farsælt nýtt ár
Bensínstöðin á Ísafirði
Flugeldamarkaður
Hjálparsveitar skáta Ísafirði
Sama lága verðið og í fyrra
Vinsælu fjölskyldupakkarnir
Tertutilboð - Flugeldatilboð
Trítill - Tralli - Troðni - Trausti
Opið:
Aðalsölustaður:
Skátaheimilið, Mjallargötu
Sunnudaginn 28. des. kl. 13-22
Mánudaginn 29. des. kl. 13-22
Þriðjudaginn 30. des. kl. 13-22
Gamlársdag 31. des. kl. 10-16
Sölustaður við Ljónið er opinn:
Þriðjudaginn 30. des. kl. 16-19
Gamlársdag 31. des. kl. 10-12
Flugeldasýning verður við Pollgötu,
sunnudaginn 28. desember kl. 20:00
Ykkar stuðningur - Ykkar hagur
Hjálparsveit skáta, Ísafirði