Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.12.1997, Page 8

Bæjarins besta - 19.12.1997, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1997 Hótel Ísafjörður sími 456 4111 Jóla- og áramótadansleikur verður á Hótel Ísafirði laugardaginn 27. desember. Glæsilegur fimm rétta matseðill og skemmtiatriði Dansleikur eingöngu fyrir matargesti Vinsamlegast pantið borð í síma 456 4111 Gleðilega hátíð! Jólaveisla Sr. Agnes M. Sigurðardóttir, sóknarprestur í Bolungarvík skrifar hugvekju í tilefni jólahátíðar Eitthvað koma þessi orð kunnuglega fyrir sjónir, a.m.k. nú á jólaföstunni. Þau tengjast þeirri hátíð sem í hönd fer innan skamms. Þau standa í jóla- guðspjalli Lúkasar og eru lesin á hverj- um jólum í kirkjunni og oft heyrast þau líka á aðventunni, á jólafundunum svokölluðu eða á helgileikjum, sem oft eru hafðir á þessum tíma árs. En koma þessi orð okkur við, okkur sem nú erum uppi í lok 20. aldarinnar? Voru þau ekki sögð við hirða úti í haga í fjarlægu landi fyrir 2000 árum? Jú, þau voru boð frá himnum. Þar sem hirðarnir sátu í myrkrinu yfir kindunum sínum og ornuðu sér við eldinn, stóð allt í einu engill Drottins hjá þeim og dýrð Drottins ljómaði kringum þá og þeim voru flutt þessi himnesku boð um fæðingu frelsarans. Þeir fóru og fundu Maríu og Jósef og ungbarnið, sem lá í jötu. Þeir snéru aftur, væntanlega til hjarðar sinnar, en varla hafa þeir verið samir á eftir. Lífsreynslan hefur áhrif á okkur og mikilvægt er að vera eins og hirðarnir. Að fara og sjá. Að leita lausna sinna mála við jötuna, hjá því barni, ,,sem er Kristur Drottinn”. Fæðing hans mark- ar tímamót í lífi heimsins, enda er tíma- tal okkar miðað við hana. En fæðingin getur líka markað tímamót í lífi þess sem meðtekur boðin. Þegar hjartað fær að ráða en ekki eingöngu skyn- semin. Þá gerist eitthvað innra með okkur sem knýr okkur til að líta öðrum augum á lífið. Líta á hlutina út frá því að ,,Guð er með oss”. En það þýðir ekki það að við drögum okkur út úr skarkala heimsins og leggjumst með tærnar upp í loft og bíðum átekta. Það þýðir það að við verðum eins og hirð- arnir. Förum aftur á okkar stað, mörkuð af þeirri reynslu sem trúin veitir, þegar við áttum okkur á því að hin himnesku boð ,,yður er í dag frelsari fæddur” eru líka töluð til okkar. Okkar, sem nú erum uppi, um 2000 árum síðar. Guð gefi þér gleðileg jól í Jesú nafni. ,,Yður er í dag frelsari fæddur”

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.