Bæjarins besta - 19.12.1997, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1997 13
við strákarnir út
Jón notar í bátana efni sem
kallast ramin. Það er svo sem
ekkert sérstakur viður, segir
hann, en er kvistalaus og
mjúkur og því auðvelt að
sveigja hann til eftir þörfum.
Jón er húsvörður í Stjórn-
sýsluhúsinu á Ísafirði og þar
á viðtalið sér stað. Hann segist
nota bátasmíðina til að drepa
tímann þegar rólegt er, og er
með einn bát á borðinu sem
hann vinnur að þessa dagana.
„Þessi gæti verið svolítið
líkur bát úr Víkinni sem
upphaflega hét Andri. Seinna
hét hann Einar, en Gestur
Sigurðsson setti á hann byssu
og hóf hrefnuveiðar, en Gestur
þessi var upphafsmaður þeirra
veiða hér á Ísafirði. Enn síðar
keypti Hjörtur Stapi bátinn og
var á honum á rækju og á
skaki á sumrin. Á þessum tíma
var ég að læra járnsmíði í
Vélsmiðjunni Þór, en þá
sóttist maður eftir því að
komast á skak í sumarleyfum.
Ég fór einmitt fyrstu sjóferð-
ina með Stapanum á þessum
bát. Við sigldum sem leið lá
út með Ritnum að Aðalvík,
en þar drap Hjörtur á vélinni
og lét reka eftir sjávarföllum.
Það passaði alveg að fá svona
tvö rek vesturúr, þá var bátur-
inn orðinn smekkfullur. Bátur-
inn var 5 tonn að stærð og
með minnstu Bolvíkingun-
um.“
Pungapróf dregið af
Árnapungum
- Hvernig byrjar þú svo á
svona bátslíkani. Kannski
svipað og gert er í skipasmíða-
stöð?
„Já, ég byrja á því að leggja
kjölinn og kjölsíðuna, þá
koma böndin og síðan raðast
borðin utan á. Ég var í vand-
ræðum með að fá teikningar
af bátum sem ég hafði áhuga
á að smíða, en komst svo yfir
teikningar í bókinni Íslenskir
sjávarhættir sem hafa nýtst
mér vel. Þar eru myndir og
teikningar af öllum skektum
og allt upp í teinæringa. Þar
er t.d. teikning af Vigurbreið,
en hann er einmitt á sýning-
unni í Slunkaríki, þótt óklár-
aður sé.“
- Hvaða báta ertu með á
sýningunni?
„Ég var nú því miður ekki
alveg tilbúinn með bátana
þegar Elísabet Gunnarsdóttir
kom að máli við mig og bað
mig um að vera með á sýning-
unni, en ég ákvað samt að slá
til. Það vantar t.d. seglin, en
til bráðabirgða gerði ég þau
úr kartonpappa. Ég á fjóra báta
á sýningunni, Vigurbreið, sex-
æring, sem er skekta með
færeysku lagi, skútuna Bolla
og kútter Kalla. Bolli var af
þeirri tegund báta sem kallaðir
voru Árnapungar af því að
þeir voru svo breiðir, en orðið
pungapróf, er einmitt dregið
af Árnapungunum. Ásgeirs-
verslun keypti báta með þessu
lagi bæði frá Danmörku, Sví-
þjóð og Noregi, en þeir voru
vélarlausir. Ég man vel eftir
þremur þessara báta, Svanin-
um, Heklunni og Bolla, en sá
síðastnefndi var úr Súðavík.
Svo var einn á Flateyri sem
Garðar hét, en hann hafði
verið lengdur og sennilega
borðhækkaður. Þessi bátur var
svo því miður brenndur
seinna.“
Maður verður
alveg eins og barn
- Er einhver þessara báta til
í dag?
„Nei, því miður. Menn hafa
verið of fljótir að farga þeim.
Það er svo merkileg saga í
kringum þetta allt saman. Það
voru t.d. Samvinnubátarnir
sem kallaðir voru Rússar af
því að eigendur og skipstjórar
þeirra voru taldir svo vinstri
sinnaðir.“
- Hvað er erfiðast við báta-
smíðina?
„Það er mjög erfitt að útbúa
súgbyrðinginn, en annars er
það bara þolinmæðin sem
gildir.“
Áhöldin sem Jón notar eru
ekki flókin eða dýr. Hann
notar litlar þvingur, þvotta-
klemmur, bréfaklemmur,
venjulegt trélím og glært lakk.
En hann lætur ekki staðar
numið þótt báturinn sé full-
kláraður miðað við upphaf-
legu fyrirmyndina. Hann vél-
væðir nefnilega bátana og
siglir þeim með fjarstýringu á
Pollinum á blíðviðrisdögum
á sumrin.
„Ég prófaði þetta fyrst
þegar ég setti saman danskt
módel, sem var skólaskip.
Þegar ég hafði lokið við skút-
una að mestu leyti, þá datt
mér í hug að það væri nokkuð
sniðugt að setja í hana mótor.
Þetta tókst og ég lét hana sigla
um Pollinn. Maður verður al-
veg eins og barn, enda er þetta
hálfgerður barnaskapur í
manni.“
- Já blundar ekki barnssálin
í okkur öllum?
„Það er svo sem alveg rétt
og það er skemmst að minnast
Leós ljósmyndara, þegar hann
var hérna með flugmódelin
sín. Ég man hvað strákarnir
söfnuðust í kringum hann á
tímabili. Ég tók stefnuna frek-
ar á bátana, því það er hrika-
legt þegar flugmódelin hrapa
og eyðileggjast. Menn verða
þá að byrja alveg upp á nýtt.“
Rifjar upp sögu trébáta
Jón hyggst rifja upp sögu
trébátanna með bátasmíðinni,
frá upphafi fram undir 1930-
1940, allt frá skektunum og
þilskipunum, en hann segir
að þau hafi gert mönnum kleift
að komast í fyrsta sinn al-
mennilega út á hafið. Jón er
algjör sagnabrunnur þegar
kemur að sögu útgerðar á
Vestfjörðum og hann hefur öll
bátslög á hreinu.
„Það er mjög merkilegt lag
á Vigurbreið, en mönnum ber
nú ekki alveg saman um hvað-
an það er upprunnið. Lúðvík
Kristjánsson segir í bók sinni
að lagið á Vigurbreið sé hið
eiginlega djúplag, en eins og
menn hafa heyrt og séð þá er
Vigurbreiður alveg feiknalegt
burðarskip. Bolvísku sexær-
ingarnir voru hins vegar með
bognu stefni og miklu mjórri.
Bátarnir þurftu að vera léttir,
því þeir voru teknir upp á
Kamb eftir hverja sjóferð. Þeir
voru því fyrir vikið frekar
veikbyggðir.
Falur Jakobsson var frægur
bátasmiður í Bolungarvík og
bátar smíðaðir eftir hann voru
sagðir með Falslagi. Synir
hans tveir unnu með honum
og annar þeirra, Jakob Fals-
son, hélt svo áfram hérna hjá
Marsellíusi. Mér finnst synd
hvað lítið er eftir í Bolungar-
vík af minjum frá þessum
tíma. Það er búið að eyðileggja
Kambinn og Malirnar, beit-
ingaskúrinn er horfinn - það
er öllu rutt í burtu. Það hefur
enginn áhuga á þessu. Ef Geir
Guðmundsson hefði ekki far-
ið út í að varðveita áhöld og
aðrar gamlar minjar og stuðla
að uppbyggingu Ósvarar, þá
væri þetta allt horfið í dag.“
Seglskipið tók
gufuskip í tog
Einn þeirra báta sem Jón
langar til að smíða er „Ásgeir
litli“, en það var fyrsti gufubát-
urinn í eigu Íslendinga. Ásgeir
Ásgeirsson, sem Ásgeirs-
verslun er kennd við, keypti
bátinn og hafði hann í ferðum
með varning fyrir Djúpmenn.
„Árni Jónsson, faktor, sem
Árnapungarnir voru kenndir
við, sá um rekstur Ásgeirs-
verslunar og hafði mann úr
Bolungarvík, Ólaf Kárason að
nafni, sem formann hjá sér á
bát sem kallaður var „Kútter
Kalli.“ Ólafur hafði farið til
Kaupmannahafnar og náð sér
í skipstjórnarréttindi, en í
fyrsta úthaldinu hér á Vest-
fjarðamiðum lenti hann í því
að bjarga „Ágeiri litla“. Fakt-
orinn hafði látið Ólaf vita að
til væru fleiri hafnir en á
Ísafirði, ef leita þyrfti vars,
því hann vildi ekki að menn
kæmu í land nema þegar búið
væri að fylla.
Það brældi snögglega á Ólaf
og félaga í fyrstu veiðiferðinni
og hann er á leið inn Djúp
þegar hann kemur auga á skip
á reki með neyðarflaggið uppi.
Þetta var gufuskipið Ásgeir,
en skrúfan hafði losnað af öxl-
inum og skipið rak út Djúpið
í vondu veðri. Það var farið að
skyggja og Ólafur sá að hann
hefði engin tók á að bjarga
skipinu við þessar aðstæður,
og undir seglum. Þegar birti
aftur ákvað Ólafur að leita
gufuskipsins og fann það um
síðir. Veðrið hafði versnað til
muna, en Ólafi tókst að koma
enda yfir í Ásgeir og dró hann
á seglum inn á Dýrafjörð, við
mikinn barning. Ólafur þurfti
að sigla beitivind með hitt
skipið í togi og tók það tímann
sinn. Hann náði loks inn á
Haukadalsbót, en þar voru
fyrir einar 15-20 franskar
skútur. Menn ætluðu vart að
trúa eigin augum þegar þeir
sáu skútuna koma inn fjörðinn
í vitlausu veðri, með gufuskip
í togi. Ólafur hóf sem sagt
sinn skipstjóraferil á þennan
hátt. Faktorinn kallaði hann
fyrir sig og greiddi honum
þúsundkall fyrir björgunina
og annan þúsundkall sem
áhöfnin átti að skipta með sér.
Og Ásgeir litli var lengi við
líði eftir þetta,“ segir Jón, en
hann kann margar sögurnar
af svaðilförum vestfirskra
sjómanna frá liðnum árum.
Nýi tíminn ekki í uppáhaldi
Stálskip eru ekki í uppá-
haldi hjá Jóni og nýi tíminn í
skipasmíðum höfðar ekki til
hans. Hann er þó að vinna að
smíði skuttogara og notar til-
búið módel af síðutogara sem
grunn að honum. Hann hefur
enga sérstaka fyrirmynd í
huga við smíðina og hefur
bætt við búnaði sem honum
finnst henta. Vél er í togaran-
um og þurfti Jón að hanna og
smíða skrúfuhring til að tog-
krafturinn skilaði sér. Og af
því að enginn kvóti er á togar-
anum hefur Jón haft toggálg-
ann þannig að hægt er lækka
hann. Já ekki skortir á hugvit-
ið, og hver veit nema það nýt-
ist í fullvöxnu fiskiskipi.
Tvö verka Jóns á Jólasýningu Slunkaríkis „Bátar“. T.v. skútan Bolli sem var svokallaður „Árnapungur“, eitt fyrsta
þilskipið í eigu Ásgeirsverslunar. T. h. er „Kútter Kalli“, sem Jón getur um í viðtalinu.