Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.12.1997, Blaðsíða 15

Bæjarins besta - 19.12.1997, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1997 15 ðmi fjölskyldunnar frændur þína? Raunar virðist mér að hér vestra hafi löngum verið meira um vinstrisinnaða presta en gengur og gerist í þeirri stétt og kannski óþarfi að telja þá upp... „Mig minnir að Winston Churchill hafi komist að orði á þá leið, að eitthvað væri að þeim mönnum sem ekki væru vinstrisinnaðir fyrir þrítugt, en jafnframt væri eitthvað bogið við þá menn sem ekki yrðu hægrisinnaðir eftir þrítugt. Það er rétt að ég var mjög vinstrisinnaður þegar ég var í menntaskóla. Það voru árin mín með Karli Marx. Þá ríkti ákveðinn bóhem-lífsstíll og ég var upptekinn af bókmennt- um, jazztónlist og ýmsu fleiru. Síðan dofnaði þessi áhugi mjög í háskólanum. Upp frá því hef ég ekkert skipt mér af pólitík og get ekki talið mig neitt sérstaklega til vinstri, og reyndar ekkert að ráði til hægri heldur. Það er einhver sann- leikur í þessu öllu. En ég held að það sé ekki mjög heppilegt fyrir presta að vera áberandi í pólitík. Stjórnmálin eru oft óvægin og þar eru menn dregnir í dilka. Það er æskilegt að ekki sé hægt að draga prestinn á einhvern tiltekinn bás og eyrnamerkja hann einhverjum ákveðnum hópi sem er að takast á við aðra hópa í samfélaginu.“ Umbi á yfirreið um landið – Hvernig var svo mennta- vegurinn hjá þér og starfsfer- illinn eftir það? „Ég var í Menntaskólanum í Reykjavík og lauk þar stúdentsprófi árið 1979. Síðan lá leiðin í Háskóla Íslands. Ég hafði töluverðan áhuga á heimspeki, guðfræði og bók- menntum en sá það alls ekki fyrir mér á þeim árum að ég yrði prestur. Prestarnir í Reykjavík voru miklu eldri en ég sjálfur og það var einhvern veginn ekki svo auðvelt að setja sig í þeirra spor. Ég hóf nám í heimspeki og stundaði það fyrsta vetur- inn í háskólanum. Síðan vann ég um sumarið með Pjetri Maack, sem var útskrifaður úr guðfræðideildinni, og þá sá ég að vel væri hægt að sækja eitthvað af tímum í guðfræði án þess að í því fælist yfirlýsing um að ég ætlaði endilega að verða prestur. Þannig byrjaði ég í guðfræðideildinni. Síðan breyttist viðhorfið eftir því sem leið á námið. Og þá sá ég líka að prestar eru bara menn rétt eins og aðrir og hugsan- lega gæti ég alveg staðið í þeim sporum. Eftir að námi lauk réðst ég austur á land, starfaði sem aðstoðaræskulýðsfulltrúi kirkjunnar á Austurlandi og bjó á Reyðarfirði. Síðan fluttist ég aftur til Reykjavíkur og hóf störf á Biskupsstofu sem fræðslufulltrúi Þjóðkirkj- unnar. Félagar mínir sögðu þá að ég væri hinn eini sanni Umbi, svo vísað sé í Kristni- hald undir Jökli. Og rétt eins og Umbi í sögu Laxness, þá ferðaðist ég dálítið um og kynnti mér kristnihaldið í landinu, ásamt því sem ég flutti erindi og hélt fræðslu- fundi.“ Til Ísafjarðar „Á Biskupsstofu starfaði ég fimm ár. Það var ágætur tími. Á þessum árum kynntist ég konunni minni og við vorum farin að velta því fyrir okkur að flytjast út á land, jafnvel þótt við værum bæði Reyk- víkingar. Við hugleiddum nokkra staði sem þá voru lausir, staði eins og Odda á Rangárvöllum, Patreksfjörð og Ísafjörð. Okkur leist best á Ísafjörð til þess að búa á, þrátt fyrir ákveðna annmarka á starfinu hér, vegna þess að þá voru hér miklar deilur um kirkjubygginguna. En ég ég hefði sjálfur tekið í hæðina hefði ég búið hér þá. En mér þykir mjög vænt um gömul hús. Þau hafa ákveðna sál, ég tala nú ekki um hús eins og kirkjur. Þær eiga ekki aðeins sína eigin sögu, heldur tengist hún sögu svo margra og þess vegna eru kirkjur svo dýr- mætar í hugum þeirra. Það var að sjálfsögðu mjög erfitt fyrir marga bæjarbúa að sjá eftir gömlu kirkjunni sinni, bæði þegar hún skemmdist í eldsvoðanum og ekki síður þegar ákveðið var að taka hana ofan og byggja nýja í staðinn. En ég man vel eftir mönnum sem höfðu það á orði, eftir að þeir voru búnir að koma í fyrsta sinn í nýju kirkjuna og vera hér við eina athöfn, að nú væru þeir sáttir. Hugsan- lega tóku þeir þá ákvörðun að sætta sig við orðinn hlut.“ Ísafjarðarkirkja hin nýja – Hvernig líkar þér við ákvað samt að slá til og sjá til hvernig þessi mál myndu þróast og réð mig hingað í eitt ár. Sem betur fer gekk þetta allt vel og nú erum við búin að vera hér í sex ár.“ Öldurnar hefur lægt – Þú nefndir deilurnar um kirkjumálin hér á Ísafirði um það leyti sem þú réðst hingað. Er það ósætti úr sögunni? Einhvern veginn fannst manni þá að seint myndi gróa að fullu... „Þær öldur hefur alveg lægt. Ekki verð ég var við annað. Fólk vildi leysa málin og mál af þessu tagi verða ekki leyst nema einhverjir gefi eftir. Ólík sjónarmið voru uppi og tekist var á um þau í nokkurn tíma, eins og kunnugt er. Niður- staðan varð að byggja nýja kirkju á gamla staðnum. Auðvitað var mikil eftirsjá að gömlu kirkjunni. Ég fylgdist svolítið með þessu úr fjarlægð og veit raunar ekki hvaða pól

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.