Bæjarins besta - 19.12.1997, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1997
Sigurður R. Ólafsson, bæjarfulltrúi Alþýðuflokks í Ísafjarðarbæ skrifar hugleiði
Hugleiðing vegna viðtals
Kristján Þór Júlíusson
nennir ekki að rífast um
Norðurtangann eða Torfnes.
Hann kveður málin snúast um
Grunnskóla Ísafjarðar og það
umhverfi, sem við ætlum að
bjóða nemendum, starfsfólki
og foreldrum barnanna upp á.
Mikið var nú gott að fá fram
þessar upplýsingar, allir Ís-
firðingar vita hvaða óhrjálega
umhverfi hann og fylgisnatar
hans ætluðu sér að bjóða
bæjarbúum upp á til skóla-
halds, jafnframt sem þeir
harðneituðu að kynna sér
okkar tillögur um skólasetur í
vistvænu umhverfi, en á
fyllilega sambærilegum
kostnaðargrunni.
Sigurður R. Ólafsson.
Ísafjörður er víst ekki sama
og Dalvík, en tvískinningur
Kristjáns í skólamálum er svo
gjörsamlega út úr kortinu, að
ógerningur er að botna í því
hvert maðurinn er eiginlega
að fara.
Nú er gott að flytja heim á
Dalvík, því þar hefur bæjar-
stjórnin tekið þá ákvörðun að
hefja byggingarframkvæmdir
við nýja skólann, óháð nýt-
ingu gömlu skólahúsanna og
miða við að taka byggingarnar
í notkun haustið 1999.
Stefna Kristjáns í skólamál-
um þann tíma sem hann var
bæjarstjóri á Dalvík, var að
tjasla upp á gamla draslið,
þeirri stefnu hafa Dalvíkingar
nú góðu heilli hafnað, enda
var Kristján Þór Júlíusson
ekki þar á bæ lengur dragbítur
í skólauppbyggingu. Sem
betur fer hefur stefna hans
endanlega beðið skipsbrot,
ekki bara á Dalvík, heldur
einnig nú á Ísafirði.
Kristján Þór Júlíusson býð-
ur ekki börnum sínum upp á
þá framtíðarsýn, sem hinn nýi
meirihluti í bæjarstjórn Ísa-
fjarðarbæjar boðar, því hann
vill koma börnum sínum til
manns og flytur því norður á
Dalvík.
Það er gott að geta hallað
sér að nútímalegri skólaupp-
byggingu og vonandi fagna
norðanmenn honum með lúð-
rablæstri, þá er hann kemur
til átthaganna.
Það er því fyllilega sannað
að áhugi Kristjáns Þórs Júlíus-
sonar á uppbyggingu skóla-
mála í Ísafjarðarbæ byggist á
einhverjum annarlegum hug-
myndum, en samanburðar-
hæfni við sinn fæðingarbæ.
Það getur verið að fortíðin
sé komin til valda, en sú fortíð
hefur trú á framtíð Ísafjarðar
og skipuleggur sjóndeildar-
hring skólamála af festu og
víðsýni.
Hafi það verið framtíðin,
sem anaði áfram í villu og
svima, með að eitt að leiðar-
ljósi að breyta gömlu og úreltu
frystihúsi í skólahúsnæði,
húsnæði í óvistlegu umhverfi
og á kostnaðarhugmyndum
sem byggðust á óútfylltum
víxli, þá gef ég ekki mikið
fyrir þá framtíð.
Á þá framtíð hefur verið
slegið á fingurna á með þeim
afleiðingum, að sumir standa
enn og væla, en aðrir flýja af
hólmi.
Ég er þess fullviss að dómur
sögunnar um okkur sexmenn-
inganna verði sá, að okkur
hafi tekist að afstýra menning-
arlegu stórslysi í skólamálum
Ísafjarðarbæjar.
Í reyndinni tel ég ekki að
um draum hafi verið að ræða,
heldur martröð og ég er
fullviss um að tveir af nánustu
aðstandendum aulaleiðar-
innar, varabæjarfulltrúi D-
listans, Óðinn Gestsson og
bæjarfulltrúi E-listans, Krist-
ókeypis smáauglýsingar
kaup & sala
Kristján Þór Júlíusson, fyrrv. bæjarstjóri skrifar
Lastmáll og kjassmáll!
Ég þakka BB það tækifæri
sem mér gefst til að setja á
blað nokkur orð í tilefni
,,hugleiðingar” fyrrverandi
samstarfsmanns míns, Sig-
urðar R. Ólafssonar.
Vel þekkt er að til að forðast
málefnalega umræðu er að
koma á flot sögum um náung-
ann – koma höggi á helvítið,
að því virðist til þess eins að
upphefja sjálfan sig á annarra
kostnað og réttlæta gerðir
sínar fyrir sjálfum sér. Last-
máll og kjassmáll eru bestu
félagar þess er stundar slíkt
háttarlag. Þeir sitja á bekk
saman, taka að sér söguburð-
inn, og það sem frá þeim geng-
ur flýgur vítt og breitt – rekur
frið úr húsi.
Máltækið segir: ,,Hugur
minnir á en hönd og tunga
framkvæmir”. Víst er það að
hægur limur er tungan en hún
getur vegið vopna best. Laus-
mælgi og rógur hafa marg-
sinnis drepið gott verk í
dróma, ósjaldan er víðsýni
vant, en þetta er síður en svo
nýtt fyrirbæri hér á landi. Í
predikun Jóns biskups Vída-
líns (1666-1720) á þriðja
sunnudegi eftir Þrettánda
segir svo:
,,Munnurinn býr yfir högg-
ormaeitri. Hendurnar útrétta
menn til að ræna og stela, til
að slá og deyða. Fæturnir eru
skjótir til að hlaupa hinn
breiða veg, sem til glötunar
liggur. Eyrun daufheyrast við
Drottins orði, en klæja eftir
nýjum lærdómum, eftir róg
og bakmælgi, eftir náungans
óhróðri og nálega öllu því, er
menn vilja þar illt í bera.
Nasirnar hitna af fólsku, þegar
vér sjáum þann, er vér þykj-
umst eiga nokkrar heiftir að
gjalda.”
Því miður getum við heim-
fært þessa aldagömlu lýsingu
biskupsins að einhverju leyti
upp á þann veruleika sem
blasir við okkur í dag á Ísa-
firði. Mér liggur við að segja
að um þessar mundir liggi
Kristján Þór Júlíusson.
Vantar ísskáp fyrir lítinn
pening. Axel í síma 456-
3715.
Vantar lítið skrifborð.
Upplýsingar í síma 456-
4739.
Til sölu eldavél með kera-
mik helluborði. Einnig til
sölu þvottavél. Uppl. í
síma 456-7533 e. kl. 19
Fatamarkaður Salem.
Kjallari. Opið föstudag kl.
17-19 og laugardag kl. 10-
16. Ódýr föt fyrir jólin.
Til leigu 3ja herbergja
íbúð á Ísafirði, laus strax.
Upplýsingar í síma 564-
5045.
Burton snjóbretti til sölu!
Upplýsingar í síma 899-
3709. Biggi.
Til sölu Subaru station,
árgerð 1989, 4x4. Upplýs-
ingar í síma 456-4469.
Til sölu eða leigu Hjalla-
byggð 9 Suðureyri. Upp-
lýsingar í símum 567-
6217 og 897-6183.
Til sölu rauðbrún hillu-
samstæða, þrjár einingar.
Upplýsingar í síma 456-
8246 á kvöldin
Rjúpur til sölu. Upplýs-
ingar í síma 456-5484.
Til sölu MMC Galant, 4x4,
árgerð 1992. Skipti á ódýr-
ari. Upplýsingar í síma
456-8172.
Til sölu eru Rossingos
gönguskíði, án riffla.
Lengd 193 sm. Seljast
ódýrt. Uppl. í síma 553-6759.
BÆJARRITARI
Ísafjarðarbær auglýsir laust til um-
sóknar starf bæjarritara. Bæjarritari
er staðgengill bæjarstjóra og annast
stjórn bæjarskrifstofa.
Umsækjendur skulu hafa reynslu af
stjórnunarstörfum. Vakin er athygli á
5. grein jafnréttislaga um jafna stöðu
kynjanna.
Laun samkvæmt kjarasamningi
F.O.S.Vest.
Umsóknarfrestur er til 5. janúar nk.
Upplýsingar veitir formaður bæjar-
ráðs, Jónas Ólafsson.
ÍSAFJARÐARBÆR
Ísafjörður
Ný hárgreiðslustofa tekur til starfa
Guðbjörg Hannesdóttir hef-
ur opnað nýja hárgreiðslu-
stofu að Pollgötu 4 á Ísafirði,
við hlið Efnalaugarinnar Al-
berts. Samkeppni um nafn á
stofuna stendur yfir og verður
tilkynnt um úrslit hennar í
fyrsta tölublaði BB á nýju ári.
Að sögn Guðbjargar hafa
móttökur við nýju hárgreið-
slustofunni verið frábærar frá
opnun hennar fyrir viku. Hún
mun starfa ein við reksturinn,
til að byrja með a.m.k., og
segist vera sveigjanleg hvað
opnunartíma varðar nú fyrir
jólin, og kvöld og helgar séu
ekki heilagur tími í hennar
augum. Guðbjörg efast ekki
um að grundvöllur sé fyrir
þriðju hárgreiðslustofuna á
Ísafirði. Hún er mjög bjartsýn
á framtíðarhorfur og segir
aukna samkeppni hið besta
mál.
- En hvaða tískustraumar í
hárgreiðslu skyldu eiga upp á
pallborðið hjá Vestfirðingum
nú um stundir?
„Létt permanent er mikið í
tísku núna hjá kvenþjóðinni,
þ.e.a.s. stórir liðir, en hjá
herrunum eru óskirnir breyti-
legar, annað hvort vilja þeir
hafa hárið mjög stutt eða til-
tölulega sítt.“
Guðbjörg býður viðskipta-
vinum sínum upp á breiða línu
af hársnyrtivörum frá Fashion
Formula Ecoly. Einnig selur
hún náttúrulega ilmlínu frá
Back to Basics, herralínu frá
Icon og herra- og dömulínu
frá Montage.
Guðbjörg bað um að sím-
anúmeri hárgreiðslustofunnar
yrði komið á framfæri, en það
er 456 5191.
Guðbjörg Hannesdóttir
ásamt ungum viðskiptavini
á nýju hárgreiðslustofunni
að Pollgötu 4.