Bæjarins besta - 19.12.1997, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1997 19
ingu vegna viðtals í síðasta tölublaði Bæjarins besta
s við Kristján Þór
inn Hermannsson, séu nú
eitthvað að ranka við sér um
að sennilega væru nú ein-
hverjir annmarkar á breyting-
arhugmyndinni, því nú leggja
þeir ofurkapp á að húsin verði
keypt og rifin og síðan byggt
upp á lóðinni.
Megi sá sem öllu ræður
forða því að Ísafjarðarbær
eignist fleiri slíka hugsuði, í
bæjarstjórnir framtíðarinnar.
Tillaga Óðins Gestssonar,
fyrrverandi formanns fræðslu-
nefndar á fundi 10. desember
sl., um að kaupa upp Austur-
veg 13 og 15, Tangagötu 29
og Sundstræti 36 og 45, rífa
húsin og byggja þar skóla,
krefst nánari skýringa. Það
skyldi þó aldrei vera að það
hafi runnið upp fyrir honum
ljós, að hugmyndirnar um
fullkomnun og kostnaðarhlið
Norðurtangaleiðarinnar í
skólamálum væru hjóm eitt.
Eða má af þessu draga þá
ályktun að hann hafi loks áttað
sig á því að frá í júní í sumar
hafi hann sem formaður
fræðslunefndar þeytt flautuna
í hlutverki ,,Rottuveiðarans
frá Hameln” meðvitað eða
ómeðvitað og eftir honum
rölti öll fræðslunefnd, auk
fleiri áhangenda.
Tillögugerð hans ber aftur
á móti með sér, að hann sé
fullmeðvitaður gjörða sinna
og því gengur hann erinda
þeirra óþekktu afla, sem hafa
allan tímann unnið markvisst
að notkun bæjarsjóðs Ísafjarð-
arbæjar, með eigin hagsmuni
að leiðarljósi og þau mál
krefjast hreinlega frekari
rannsóknar.
-Sigurður R. Ólafsson.
,,Kristján Þór Júlíusson býður ekki börnum sínum
upp á þá framtíðarsýn, sem hinn nýi meirihluti
í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar boðar,
því hann vill koma börnum sínum til manns
og flytur því norður á Dalvík"
,,Það er gott að geta hallað sér að nútímalegri skóla-
uppbyggingu og vonandi fagna norðanmenn honum
með lúðrablæstri, þá er hann kemur til átthaganna"
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á ÍSAFIRÐI
FSÍ óskar að ráða
Ræstitækna
(starfsfólk til ræstinga)
í fastar stöður frá 1. febrúar 1998
Um er að ræða ræstingar:
Á endurhæfingardeild í 50% stöðu í dagvinnu.
Á heilsugæslustöð í 57% stöðu í dag- og álags-
vinnu.
Í kjarnabyggingu 2. og 3. hæðar i 100% stöðu
frá kl. 11-19 virka daga.
Við ýmsar ræstingar í húsinu (ræstingar,
hreingerningar, afleysingar, aðstoð við aðra
ræstitækna, o.fl.) í 60-100% stöðu í dag-
vinnu.
Einnig við ræstingar og býtibúrsvinnu:
Á bráðadeild í 140-160% stöðum í dagvinnu
(hlutastarf fyrir tvo starfsmenn).
Á öldrunarlæknideild í 70-80% stöðu í dagvinnu.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 1998.
Gert er ráð fyrir fræðslu og sýnikennslu í
meðferð ræstingaráhalda, skúringar- og
bónvéla og reglna um ræstingar á sjúkra-
stofnun fyrir þá sem ekki hafa fyrri reynslu.
Umsóknum skal skila til hjúkrunarforstjóra
FSÍ á eyðublöðum sem fást í afgreiðslu
spítalans.
Nánari upplýsingar veita hjúkrunarforstjóri
eða ræstingarstjóri í síma 450 4500.
Jóladansleikur
Jóladansleikur verður haldinn á 2. í jólum kl.
15 í íþróttahúsinu á Torfnesi. Miðaverð er kr.
2.000 fyrir manninn. Allir eru velkomnir.
Kiwanisklúbburinn Básar.
Frá ritstjóra
Þar sem Kristján Þór
Júlíusson, fyrrverandi bæj-
arstjóri Ísafjarðarbæjar er
á förum frá Ísafirði og þar
sem þetta er síðasta tölu-
blað ársins, ákvað ritstjóri
í samráði við Sigurð R.
Ólafsson, að gefa Kristjáni
Þór tækifæri á svara skrif-
um Sigurðar í sama tölu-
blaði og grein Sigurðar birt-
ist og fer það hér til hliðar.
þetta böl á samfélaginu eins
og mara. Blessunarlega fyrir-
finnast þó þeir staðir enn hér
á landi, sem þetta fyrirbæri
hefur ekki enn drepið í dróma.
Því fyrr sem ísfirskt samfélag
kemst upp úr þeirri lágkúru
og stóryrðaflaum, sem fylgir
þessu háttalagi, því fyrr mun
ísfirsk sól rísa á ný.
Um innihald ,,hugleiðing-
ar” SRÓ, að öðru leyti, vil ég
sem minnst segja, en öðru vísi
mér áður brá. Í ljósi samstarfs
okkar SRÓ á liðnum árum
komu kveðjur hans mér nokk-
uð á óvart og við lesturinn
komu í hugann eftirfarandi
vísuorð eftir Bólu-Hjálmar:
Nú eru fögru orðin geymd
neðst á botni gleymsku,
Gleðileg Jól
Jólahátíðin gengur í garð að nokkrum dögum liðnum. Í
hraða nútímans er hlutverk jólanna, hátíðar ljóss og friðar,
eins og þau eru nefnd, mikið. Asinn sem ríkir hjá hjá flestum
er slítandi. Þótt margir hafi þá trú, að mikill hraði skili betri ár-
angri í lífinu, má ekki gleyma að manninnum er innri ró nauð-
synleg. Sé innri friður og rósemd fjarri manni er hætt við því,
að líf hans verði slitrótt og tætingslegt.
Jólum fylgja áramót, gamalt ár kveður og nýtt tekur við.
Þau minna okkur á hverfulleik lífsins. Það stendur ekki kyrrt
heldur hreyfist stöðugt. Hreyfanleikinn gerir það að verkum
að nauðsynlegt er að gleyma ekki sjálfum sér í miðri hringið-
unni. Boðskapur jólanna beinist inn á við jafnt og út.
Liðið ár
Á þessum tímamótum rifja menn upp atburði liðins árs,
þessa skamma skeiðs í tilverunni, sem liðið er hjá eins og ör-
skot. Árið 1997 hefur verið nokkuð gjöfult Íslend-
ingum, þótt enn beri deilur um um fiskveiðar og
stjórnun þeirra nokkuð hátt í umræðunni. Til
verkfalla hefur verið boðað á togaraflotanum.
En með þjóðinni eða öllu fremur stjórnmála-
mönnum hefur skapast samstaða um stóriðju
og auknar framkvæmdir í því sam-
bandi. Samstaða sýnist ríkja um
virkjun vatnsfalla til raforku-
framleiðslu og uppbyggingu
stóriðjuvera. Helst er á fulltrúum
landsbyggðarinnar að heyra, að
þeim þyki hún afskipt hvað þessa
starfsemi varðar. Ekki heyrast
lengur þær mótmælaraddir, sem
voru háværar fyrir rúmum þremur
áratugum, við upphaf stóriðju í
Straumsvík. Jafnframt er ljóst,
að umsvifin á suðvestur-
horninu ýta enn undir straum
fólks þangað af landsbyggð-
inni.
Hún má búa við þá stað-
reynd að að kvótakerfið hefur
reynst henni þungt. Kvótinn hverfur frá henni, að minnsta
kosti frá Vestfjörðum. Stór skip gera það einnig. Þó er margt
annað að gerast sem augað fær ekki greint skýrt fyrr en síðar.
Samstaða íbúa landsbyggðarinnar er nauðsynleg. Sundrung
er vísasti vegurinn til að ýta undir fækkun. Því miður hefur
hún verið meira áberandi á Vestfjörðum en skyldi. Sveitar-
félögum hefur fækkað mikið í fjórðungnum fyrir tilstilli sam-
einingar. Þau eru nú 12 en voru 32 fyrir rúmum áratug eða 20
fleiri. Af þessum 12 eru 6 hreppar í Strandasýslu. En stóru
sameinuðu sveitarfélögin, Vesturbyggð og Ísafjarðarbær, bera
því miður nokkur merki uppdráttarsýki og enn fremur
sundrungar, sem er kannski merki um hið fyrrnefnda. Því
miður eru þessi sýnilegu einkenni slæm auglýsing fyrir Vest-
firði og Vestfirðinga.
Þær miklu pólitísku deilur og hræringar, sem gengið hafa
yfir Vesturbyggð á undanförnum árum og eru nú áberandi í
Ísafjarðarbæ, hafa vond áhrif á íbúana. Ókunnum áhorfanda
sýnast þessar deilur fremur vera um persónulegan metnað
einstakra manna en pólitísk átök, sem snúast um grundvallar-
atriði. Mjög er áberandi hve bæjarstjórar eiga stóran þátt að
málum. Skyldi mönnum hafa gleymst að bæjarstjórar eru
ekki pólitískir leiðtogar. Þeir eru aðeins framkvæmdastjórar
kjörinna fulltrúa. Líf bæjarstjóranna snýst að því er best
verður séð um að stjórna bæjarstjórnum og tryggja laun sín.
Fróðlegt væri að skoða fjárhæð biðlauna til bæjarstjóra í
sveitarfélögunum tveimur. Þeir fjármunir væru vafalaust betur
komnir í skólamálum eða öðru þarflegu. Ljóst er að
bæjarstjórnir byggðanna tveggja verða að breyta vinnubrögð-
um sínum. Bæjarfulltrúar bera ríkar skyldur og ein þeirra er
sú, að þeir sem pólitískt kjörnir fulltrúar í beinni lýðræðislegri
kosningu geri sér grein fyrir því, að þeir eru yfirmenn bæjar-
stjóra, ekki undirmenn. Hin pólitíska ábyrgð er þeirra. Að
nokkrum árum liðnum spyr enginn um ábyrgð bæjarstjóra,
sem látið hefur af starfi að eigin ósk. Bæjarfulltrúar verða
kallaðir til ábyrgðar.
Nokkur harka var í verkfallsátökum í sumarbyrjun og
kannski eimdi eftir af henni í deilum um húsnæði grunnskóla.
Gleðilegt ár
Hver og einn á sínar góðu minningar frá liðnu ári, ef til vill
einnig slæmar. Allir gera sér vonir um farsæld á komandi ári,
árinu 1998. Svo sannarlega er þess óskað, að þú lesandi góður
hafir átt gott ár og það sem vel gekk beri hærra en það sem
miður fór. Öllum lesendum er óskað gleðilegra jóla og gleðilegs
nýs árs. Á Vestfjörðum er gott að búa og íbúar almennt góðir
talsmenn héraðsins. Það er eins og hvert annað slys að óein-
ingu skuli bera hærra, en það sem vel gengur. Sú ósk er sett
fram, að betri tíð sé framundan og íbúar Vestfjarða og pólitík-
usar stilli saman strengi sína til framfara fyrir fjórðunginn.
Komandi ár er kosningaár. Nú liggur mikið við að vel
takist til um val þeirra sem taka við stjórntaumunum í sveitar-
stjórnum. Tímabili þeirra vaxtarverkja sem gerðir voru að
umtalsefni hér að framan verður að linna. Megi nýtt ár færa
íbúum Vestfjarða gæfu og gengi á nýju ári, sem og Íslendingum
öllum.
Stakkur.
Óskum öllum skólabörnum á Ísafirði
og Hnífsdal, gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs,
með hjartans hlýhug og þökk fyrir
árið sem er að líða.
Hittumst öll hress og kát á nýju ári.
Einnig sendum við kennurum,
skólastjóra og öllum viðskiptavinum
okkar bestu kveðjur.
Geiri og Rúna
Kveðja frá strætó
kenndur er ég við kláða og eymd,
kulda, sult og heimsku.
Ef SRÓ telur nú, að það eitt
geti orðið málum ísfirsks
samfélags til heilla að kenna
undirrituðum um flest sem
miður fer hér um slóðir, og þó
víðar væri leitað, þá vænti ég
að honum hafi nú orðið að
ósk sinni við starfslok mín.
Líkast til mun því allt héðan í
frá ganga SRÓ og félögum
hans í haginn og fylgja þeim
frómar óskir.
Með ósk um friðsöm og
gleðileg jól. Megi nýju ári
fylgja farsæld og málefnaleg
umræða hér í bæ, bæjarbúum
öllum til hagsbóta.
Kristján Þór Júlíusson.