Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.12.1997, Qupperneq 25

Bæjarins besta - 19.12.1997, Qupperneq 25
FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1997 25 Úrval jólagjafa fyrir dömur og herra Sloppar Náttföt Veski Slæður Ilmir Undirföt í öllum stærðum Gl eð ile g j ól! TILBOÐ Hettupeysa kr. 3.990.- TILBOÐ Rennd hettupeysa kr. 4.990.- Það er hægt að skipta um dekk á hjólunum, og það er auðvelt að skipta um aftanívagn, þannig að vörubíl verður tankbíll á augabragði. Bílarnir eru liðstýrðir, sem þýðir að bíl- húsið beygir allt, en ekki bara framhjólin. við.“ - Útlitið er samt ágætt í leikfangasmíðinni, er það ekki? Jú, og það er vegna þess að ég stend alfarið í þessu sjálfur. Ég næ að halda utan um fjár- hagshliðina á því dæmi, en það hefði ég ekki getað með sorpverksmiðjuna eða snjó- þjöppunarvélina, segir Örn- ólfur Guðmundsson. Ef til vill eiga menn eins og Örnólfur sér viðreisnar von í framtíðinni þótt hugmyndir þeirra falli í grýttan jarðveg eins og er. Eitt er víst að Vest- firðir hafa ekki, eins og sakir standa a.m.k., efni á að kasta frá sér hugmyndum að óat- huguðu máli, hugmyndum sem átt gætu þátt í að styrkja byggð sem á undir högg að sækja. Hugmyndaauðgi er kostur sem meta þarf mönnum til tekna, því hvað er hægt að kalla samfélag hugmynda- snauðra og dofinna íbúa? Orðið sem kemur fyrst upp í hugann sem svar er, - stein- gelt! e.t.v. skapa svigrúm til fjölg- unar starfsmanna. Örnólfur hefur unnið einn við alla þró- un og smíði leikfanganna til þessa, en draumur hans er að framleiðslan verði atvinnu- skapandi í Bolungarvík og að hann geti þá t.d. boðið mönn- um sem farnir eru að reskjast, vinnu við samsetningu leik- fanganna, til að mynda hluta úr degi. Leikföngin hafa til þessa eingöngu verið til sölu í verslun Örnólfs og verður svo áfram fyrst um sinn a.m.k. „Þetta er í rauninni þróunar- starf enn og ég vil ekki ausa einhverju út fyrr en ég er orð- inn fyllilega ánægður sjálfur. Ég hef verið að prufa mig áfram og er nú kominn niður á ákveðna stefnu sem mun marka framleiðsluna. Ég hef leitast við að hafa bílana þannig úr garði gerða að þeir endist lengi og að það sé auðvelt að skipta um stykki sem eyðileggjast. Það er t.d. hægt að skipta um dekk á hjól- unum, og það er auðvelt að skipta um aftanívagn, þannig að t.d. má breyta vörubíl í tankbíl á augabragði. Bílarnir eru liðstýrðir, sem þýðir að bílhúsið beygir allt, en ekki bara framhjólin. Ég notaði risavörubílana sem t.d. eru notaðir við virkjanagerð, sem fyrirmynd, en þeir eru kallaðir búkollur.“ Örnólfur segist ætla að flýta sér hægt í leikfangasmíðinni. „Ég ætla ekki að fara út í neitt ævintýri. Ég ætla að reyna að koma á vöruna gæðastimpli þannig að hún verði eftirsótt og til þess að svo megi verða verð ég að prófa hana vel.“ Sorpverksmiðja og vél sem gleypir snjó - En skyldi Örnólfur mæta skilningi heimamanna við framtakinu? „Byggðastofnun veitti mér 200 þúsund króna styrk í haust og það var auðvitað ákveðinn hvati að áframhaldandi starfi. Annars hefur mér fundist að hér fyrir vestan, í Bolungarvík t.d., sé æði lítill stuðningur við svona lagað. Mönnum finnst þetta ekki spennandi fyrr en vel fer að ganga og eru lítið hvetjandi á meðan verið er að þróa hugmyndir. For- svarsmenn bæjarins hafa t.d. vitað af þessari vinnu minni og þess vegna hefði ég talið eðlilegt að bæjarfélagið sýndi stuðning sinn og áhuga á framtakinu með því að kaupa leiktæki fyrir leikskólann. Það hefði verið mjög góð auglýs- ing, en því miður virðast menn ekki sjá þýðingu svona verk- efna. Ég gaf hins vegar leik- skólanum eina gröfu og vona að börnin njóti vel.“ En hugðarefni Örnólfs eru fleiri. Hann hefur farið á fund Iðntæknistofnunnar með hug- mynd að verksmiðju sem á, hvorki meira eða minna, að taka allt heimilissorp, flokka það og steypa síðan úr nýtan- legum hluta þess, massa sem nota má á margvíslegan hátt, t.d. til smíða. „Ég vildi fá Iðntæknistofn- un til að framkvæma fyrir mig ýmsar mælingar á ferlinu sem ég hafði náð fram. Þeim leist mjög vel á það sem ég var að gera, en sögðu að ég þyrfti að borga þeim fyrir hverja rann- sókn svo og svo miklar fjár- hæðir. Ég kvaddi þá við svo búið, en þeir hirtu hugmynd- ina og útfærðu hana á Akur- eyri. Ég var hins vegar hepp- inn, því ég sagði þeim ekki alveg alla söguna þannig að þeir fengu ekki efnið sem ég hafði náð fram. Ég er ekki sá fyrsti sem fer illa út úr við- skiptum við Iðtæknistofnun. Örnólfur hefur einnig viðr- að hugmyndir sínar við Iðn- tæknistofnun um vél sem gleypir snjó og þjappar honum í klakastykki. Allir þekkja vandamál sem skapast þegar snjóþungt er og háir snjóruðn- ingar myndast eftir moksturs- tæki. Snjóruðningarnir taka mikið pláss og eru til óþæg- inda fyrir ökumenn og gang- andi vegfarendur. Vélin hans Örnólfs myndi leysa vanda- málið, en hún myndi skilja eftir sig snjóbagga, svipaða heyböggum bænda, en þeir yrðu síðan tíndir upp með vél sem kæmi í kjölfar snjóbagga- vélarinnar. Örnólfur fékk þau svör frá Iðntæknistofnun að vélin yrði of dýr í framleiðslu fyrir þann litla markað sem er hér á landi. „Þar með var sagan búin. Ég hef sem sagt farið til þeirra svona annað slagið, en því miður hefur niðurstaðan engin orðið. Það var einhver at- vinnuráðgjafi á Ísafirði, sem var nú kona síðast þegar ég vissi, sem kom á sínum tíma á fund okkar Ólafs Kristjáns- sonar, bæjarstjóra, út af sorp- vélinni. Við fórum í gegnum allt málið með henni, en hún tók með sér sýnishorn og ætlaði m.a. að láta rannsaka á hvað hátt væri hægt að nýta efnið sem úr vélinni kom. Ég hef hvorki heyrt eða séð þessa konu síðan. Þetta skeður held ég allt of oft með hugmyndir sem þarfnast frekari þróunar Bílarnir eru dregnir með léttri stöng, en ekki með bandi. Það er auðvitað til að hægt sé að bakka. Já, Örn- ólfur hugsar fyrir minnstu smáatriðum.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.