Jólablaðið - 15.12.1934, Blaðsíða 11
i "mni - ■",iiiii.‘'iiin.................................................................................................................................................................................................................................... "tiitiii»-"iiiiii» i
JOLABLAÐIÐ
••'*ilnii.-"Uiiii.. "'iiiiii..“iiiiiii, . ...................... ‘«uuii..* “iiiiii..' “iiiiii.-........ ...................... ....... •Httui^ 'miiin ^iiDit^ "Miiik., .»iiiiu.h .miiiiip'iiiiih^ .'1111111.^ ..........................................................'«
ólin hafa undarleg töfrandi áhrif sem hrífa okkur öll. Við
höfum oft fundið þetta áður og nú þegar jolin nálgast,
finnum við það á ný. I rökkrinu, þegar kirkjuklukkurnar
byrja að hríngja tú tíða á aðfangadag jóla, þá enduróma
þær í hjarta hvers manns. Hvað er það sem fyllir okkur
hrifni í djúpi sálar okkar og kemur okkur til að standa sem börn full
lotningu fyrir hinu guðdómlega.
Pað eru ómar, sem færa okkur boðskap frá upphæðum, frá föðurnum
á himnum, sem elskar okkur öll hér á jörðu. Það eru þeir ómar, sem
endurhljóma í sá'u okkar. Það er eins og jólin flytji okkur nær himninum,
það er eins og þau byggi brú milli hins jarðneska og hins eilífa, himneska
staðar. Ef maður hefir hið hreina, barnslega sinni, þá mun Guð Iíta í
velþóknun til manns, og friður færast yfir mann, og jólin verða ánægju-
legri en nokkru sinni fyr.
Nú eru aftur jól: Gleðileg jól. Ánægjuleg jól. Aftur heyrum við
boðskapinn: »Nú barn er fætt í Betlehem«, það er lofsöngur sem við
höfum elskað frá því fyrsta er við heyrðum hann. I huga vorum sjáum
við hirðana undir stirndum himni nóttina helgu. Við göngum að jötunni
og sjáum Jesúbarnið í hinu fátæklega umhverfi, og við heyrum englaraddir, og það er eins og við
könnumst við þær sem vinaraddir, sem hafa fylgt okkur gegnum hið langa ár, fylgt okkur og bægt frá
okkur hættum, hughreyst okkur, huggað og glatt. Og nú, þegar við heyrum jólasálmana, þá eru þeir
allt í einu svo nálægt okkur, að okkur finnst við sjá þá, og hjarta okkar fyllist gleði og við biðjum þá
að gefa okkur blessunarríkan frið.
\\. //
/ / \ \ \
\
........... '“.lllh"' .......... "'lllHn"'"llllli" ""UIIIi.""HI#i» ....................... ‘"Illlli'" .......................... '"IIIHk "lllll.......... "Hlll.............. ...................................................................................'"Hllli".....................Hlll