Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.02.1998, Page 11

Bæjarins besta - 04.02.1998, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1998 11 Högni Sturluson, íbúi á Hlíf var ánægður með þorramatinn, enda hin besta fæða að mati eldra fólksins. Þórður Einarsson og Ágúst H. Guðmundsson mættu til blótsins ásamt vinkonu Ágústar, Guðrúnu Sigurjónsdóttur. Bjarney Ólafsdóttir og Sigríður Kristjánsdóttir kunna vel að meta þorrablótin á Hlíf. Vestfjarða en árshátíð skólans verður haldin á föstudags- kvöld,” sagði Kristján Freyr. Hann sagði að til stæði að kynna félagið í skólum sveit- arfélagsins sem og í fjölmiðl- um og vildi hann hvetja ungt listafólk í sveitarfélaginu til að hafa samband við sig, Kristinn Hermannsson eða Smára Karlsson til frekari kynningar á listsköpun þeirra. Eiríkur Örn Nordahl, Bjarni Valdimarsson, Páll Janus Hilmarsson og Hálfdán Bjarki Hálfdánarson voru ánægðir með stofnun félagsins. Kristján Freyr Halldórsson, Valdimar Jóhannsson og Ásgeir Sigurðsson tóku nokkur lög á stofnhófinu en þeir hafa komið fram opinberlega undir nafninu Vonarbræður Þar voru einnig þeir Björn Teitsson, skólameistari Framhaldsskóla Vestfjarða og Kristinn Jón Jónsson, annar tveggja bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar. Prófkjör og sjó- mannaverkfall Þá er það yfirstaðið, prófkjör Reykjavíkurlistans. Miðað við aðstæður tókst það nokkuð vel. Fáir eru sárir að frátöldum borgarfulltrúum sem ekki komust að vegna skipulags prófkjörsins. Þannig féllu Pétur Jónsson krati og Árni Þór Sigurðsson allaballi úr öruggu sætunum. Guðrún Ágústsdóttir er einnig ósátt við árangur sinn, en hún hafnaði í fimmta sæti. Framsóknarmenn leiða ekki lengur listann heldur Alþýðubandalagið. Helgi Hjörvar var óumdeildur sigurvegari. Hrannar Björn Arnarsson náði efsta sæti í hólfi Alþýðuflokks. Helgi Pétursson fyrrum framsóknarmaður náði hinu sæti kratanna. Fróðlegt er að rifja upp að þeir félagar Helgi Hjörvar og Hrannar Björn eru forsvarsmenn Grósku og báðir áttu sín fyrstu skref í Alþýðubandalaginu. Nú yfirtaka þeir Reykja- víkurlistann eins og ekkert sé. Reyndar vekur það efasemdir um hólfuð prófkjör. Prófkjör ættu að miðast við það að einstaklingar geti keppt á jafnréttisgrundvelli en ekki í flokkahólfum eða landsvæða eins og sums staðar hefur verið gert. Loðna leiðin Engin leið er að spá fyrir um úrslit kosninga, en takist R listanum að svæfa óánægju borgarfulltrúanna sem töpuðu gæti hann flotið á bylgju eigin ánægju yfir úrslitunum. Sjálf- stæðisflokkurinn á að minnsta kosti nokkurt starf fyrir höndum til að hafa betur. Athyglisverðust er þó sú staðreynd að prófkjörið núna sýnir kannski best að skil milli flokka á vinstri væng stjórnmál- anna og á hægri vængnum eru orðin óskýr. Ef eitthvað skilur í pólitík eru það skil milli kynslóða. Þau skil eiga eftir að verða gleggri og renna upp innan skamms á ný. Því er spáð hér að tími manna í pólitík mun reynast skemmri hér eftir en hingað til. Þar ræður hið sterka kastljós fjölmiðlanna ef til vill mestu. Áður en umhugsunarfrestur gefst í átakamálum eru fjölmiðlarnir mættir og krefja svara. Mörgum reynist erfitt að halda áttum þegar svara er krafist strax án undanbragða. Hér er þó ekki við fjölmiðlana að sakast, að minnsta kosti ekki eingöngu. Þeir sem verða fyrir svörum bera ábyrgðina. Það er athyglisvert að skoða ummæli ungu mannanna í þessu ljósi. Svörin eru mjúk og ekki afgerandi. Það er kannski nýi stílinn, hæfilega mjúkur og loðinn. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið fremur afgerandi en hitt. R listinn hefur hitt á loðnu leiðina. Spurningin er því sú hversu lengi kjósendur eða meirihluti þeirra sættir sig við hana. Ef umburðarlyndið nær fram yfir kosningar þarf ekki að spyrja að leikslokum. Vélstjórar á villigötum Sjómannaverkfallið er vont. Ekki endilega vegna þess að samúð landkrabbana sé horfin í þeirra garð. Sjómannaverkfallið er vont vegna þess að það hefur áhrif á allt þjóðlífið og kemur niður á allri þjóðinni án þess að hún fái nokkru um það ráðið og hún hafi til þess unnið. Það er líka vont vegna þess að það kemur niður á sjómönnum sjálfum þegar til lengri tíma er litið. Yfirleitt tapa allir á verkföllum og þetta verður ekki undantekning nema síður sé. Það sem vekur athygli nú er sá hnútur sem samningaviðræður hafa hlaupið í vegna sérstöðu og sérkrafna vélstjórafélagsins. Fyrir mörgum árum klufu vélstjórar sig út úr Faramanna- og fiskimannasambandinu. Vélstjórafélag Íslands taldi sig ekki eiga samleið með FFSÍ. Nú hafa þeir valið að undirstrika þessa sérstöðu og vilja brjóta upp hlutaskipti áhafnar, sem hafa gilt í átta áratugi. Öllum má vera það ljóst að slík krafa á engan hljómgrunn nema meðal vélstjóra, ef hún á þar almennan hljómgrunn á annað borð. Ekki verður annað séð en vélstjórar undir forystu Helga Laxdal séu á algerum villgötum. Samtök þeirra virðast villuráfandi án nokkurs skynsamlegs markmiðs í þessum efnum. En auðvitað eiga þau ein ekki alla sök. En varla verður samið meðan ekki næst að kalla fulltrúa allra sjómanna að samningaborðinu í einu. Sjómenn eiga mikið verk fyrir höndum, að ná saman og ná samstöðu. Vélstjórar eru ekki öfundsverðir í þessari stöðu. Þeir munu verða kallaðir blórabögull í þeim hnút sem samningaviðræðurnar eru nú í. Hærra verð? En það sem vekur sérstaka athygli er krafa sjómanna um það að útvegsmenn semji um hærra fiskverð. Kannski er sú krafa réttmæt, en hinu má ekki gleyma að seljandi vöru getaur ekki samið um það við starfsfólk sitt, til dæmis í verksmiðju, að ganga skuli út frá ákveðnu verði fyrir vöru, sem enn hefur ekki verið framleidd og seld. Hitt þarf að skoðast sérstaklega, að kvótakerfið er að sögn sjómanna undirrót verkfallsins, það er að segja svokallað kvótabrask. Um hvað var þá deilt og hver var orsökin í fyrri verkföllum? -Stakkur

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.