Bæjarins besta - 04.02.1998, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1998
ókeypis smáauglýsingar
kaup & sala
Til sölu er Panasonic MS-
4, Super VHS myndbands-
tökuvél fyrir stórar spólur.
Upplýsingar í síma 456
5252 eftir kl. 19.
Til sölu eru 110 sm og 140
sm skíði með bindingum.
Á sama stað eru til sölu 90
sm og 130 sm skíði án bind-
inga, gönguskór nr. 36 og
stórsvigsgalli nr. 176. Upp-
lýsingar í síma 456 4121.
Til sölu eða leigu er 3ja
herbergja íbúð í Stórholti.
Verð kr. 5.900.000. Upplýs-
ingar í síma 456 4727.
Unglingastarf BÍ88 vant-
ar tölvu 386 eða 486 án
margmiðlunar og/eða prent-
ara ódýrt eða gefins. Upplýs-
ingar hefur Hermann í síma
456 3179 eftir kl. 19.
Til sölu er Nissan KingCab
árg. 1992, ekinn 71 þús.km.
Ásett verð kr. 890.000. Upp-
lýsingar í síma 561 8322
eftir kl. 19.
Til sölu er stuttur Toyota
Landcruiser, bensín, árg.
1988. Ekinn 140 þús. km.
Nýsprautaður. Engin skipti.
Upplýsingar í síma 456
5902.
Til sölu er húseignin að
Seljalandsvegi 68 á Ísa-
firði. Um er að ræða 200m²
einbýlishús sem er mikið
endurnýjað. Upplýsingar í
síma 555 4783.
Atvinna! Duglegan og sam-
viskusaman ungling vantar
vinnu eftir hádegi. Upp-
lýsingar í síma 456 3030.
Febrúarsýningin er Edin-
borgarhúsið, efni þess og
andi. Pétur G.
Til leigu er 3ja herbergja
íbúð að Stórholti á Ísafirði.
Laus strax. Upplýsingar í
síma 564 5045.
Er að leita að mjög gamalli
saumavél (fótstiginni),
gömlum dúkkuvagni og
gömlum ungbarnafötum
frá því um 1950.
Upplýsingar gefur Edda í
síma 456 8290.
Óska eftir að kaupa nýlegan
barnavagn á góðu verði.
Upplýsingar í síma 456
4277.
Okkur vantar skíðaskó nr.
39-40 á strák. Hafið sam-
band við Pálínu í símum
456 3222 eða 456 3598.
Til leigu er 2ja herbergja
íbúð við Túngötu á Ísafirði.
Upplýsingar í síma 456
3683.
Takið eftir! Tek að mér að
taka upp efni á myndbands-
spólur t.d. fyrir áhafnir
skipa o.fl. Upplýsingar
gefur Sigrún í síma 456
8142.
Til sölu er 3ja herbergja
íbúð að Túngötu 21 á
Ísafirði. Um er að ræða
þríbýlishús, sérinngangur,
bílskúr. Upplýsingar gefa
Elín eða Guðmundur í síma
456 4443.
Til sölu eru tvær frískar
skjaldbökur, 80 ltr.
skjaldbökubúr með hitara
og hreinsidælu fylgir með
fyrir kr. 7.000. Upplýsingar
gefur Sölvi í síma 456 4916.
Í fjáröflunarskyni getum
við tekið að okkur ýmis
verkefni. 3. bekkur Fram-
haldsskóla Vestfjarða. Nán-
ari upplýsingar í símum
456 5241 i hádegi og 456
7344.
Til sölu er Toyota 4Runn-
er árgerð 1991. Skipti á
ódýrari koma til greina.
Upplýsingar í síma 456
7564.
Óska eftir þvottavél, gefins
eða fyrir lítinn pening.
Upplýsingar í síma 456
4307.
Kettlingar fást gefins.
Upplýsingar í síma 456
7788 eftir kl. 19.
Arnar G. Hinriksson hdl.
Silfurtorgi 1 • Ísafirði • Sími: 456 4144 • Fax: 456 4243
Fasteignaviðskipti
Erum með til sölu
fasteignir víða
á Vestfjörðum
Allar nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu
Starfsfólk óskast
Vinnutími fyrir hádegi, eftir hádegi eða all-
an daginn. Möguleiki er á sveigjanlegum
vinnutíma.
Upplýsingar gefa Rósa eða María á staðn-
um.
Gamla bakaríið.
DHL-deildin í körfuknattleik
KR-ingar sigr-
uðu KFÍ-menn
KR-ingar sigruðu KFÍ-
menn með 89 stigum gegn 72
í leik liðanna sem fram fór í
íþróttahúsinu á Torfnesi á
sunnudagskvöld. Í upphafi var
jafnræði með liðunum en um
miðan fyrri hálfleik náðu KR-
ingar 15 stiga forystu sem var
of breitt bil fyrir baráttulausa
KFÍ-menn.
Í byrjun virtist stefna í
hörkuleik og jafnt var fram
undir miðjan fyrri hálfleik. Þá
var eins og leikmenn KFÍ
hefðu tekið sér frí um stund
og KR-ingar gengu á lagið og
nánast völtruðu yfir heima-
menn. Leiknum gegn KR vilja
KFÍ-menn að öllum líkindum
gleyma sem fyrst en ljóst er
að liðið verður að taka sig
verulega á ef liðið ætlar sér í
úrslitakeppnina. Líkt og í
öðrum leikjum KFÍ var David
Bevis yfirburðarmaður og
skoraði yfir þrjátíu stig.
KFÍ lék á móti Þór frá
Akureyri á fimmtudag í síð-
ustu viku og náðu að knýja
fram eins stigs sigur 72-71.
Líkt og í leiknum gegn KR og
í leiknum gegn Keflavík,
virtist áhugaleysið algjört hjá
leikmönnum KFÍ. KFÍ er nú í
fjórða sæti deildarinnar með
20 stig, jafnmörg stig og Kefl-
víkingar. Aðeins fjögur stig
skilja að lið KFÍ og þess liðs
sem er í sjöunda sæti og því
er ljóst að liðið verður að gera
mun betur ef stefnan er tekin
á úrslitakeppnina.
Frá leiknum gegn KR. Í þeim leik líkt og í öðrum leikjum
KFÍ var David Bevis yfirburðamaður á vellinum.
Vestfirðir - annað og meira
Góð þátttaka í
ljósmyndasamkeppni
Góð þátttaka var í
ljósmyndasamkeppninni
sem Atvinnuþróunar-
félag Vestfjarða og
Ferðamálasamtök
Vestfjarða efndu til á
síðasta ári. Rúmlega
þrjátíu myndir bárust í
keppnina og hefur
vinningshöfum verið
afhent verðlaun sín.
Keppt var í sex þema-
flokkum og voru alls átta
verðlaun veitt. Sex
verðlaun fyrir bestu
mynd í hverjum flokki og
í flokki 2 ,,Lífríki til sjávar
og sveita" fengu tvær
myndir verðlaun auk
þess sem besta mynd
keppninnar var valin. Í
dómnefnd voru þau
Árný Herbertsdóttir,
Halldór Sveinbjörnsson
og Pétur Bjarnason.
Bestu mynd keppn-
innar átti Eggert Magn-
ússon í Reykjavík. Í flokki
um ,,Náttúruperlur á
Vestfjörðum" sigraði Lilja
Magnúsdóttir á Tálkna-
firði, í flokki um ,,Lífríki til
sjávar og sveita" sigraði
Áslaug Þorvalsdóttir
Borgarnesi, í flokki ,,Vinir
veganna" sigraði Jóhann
Björn Arngrímsson
Hólmavík, í flokki ,,Saga
og minjar" sigraði
Steinunn Hjaltadóttir
Bandaríkjunum, í flokki
,,Samspil manns og
hafs" sigraði Níels
Ársælsson Tálknafirði og
í flokkinum ,,Líf og fjör á
Vestfjörðum" sigraði Lilja
Magnúsdóttir á Tálkna-
firði.
Verðlaunin voru bækur
sem gefnar voru af Máli
og menningu, Hjálmari
R. Bárðarsyni og Bóka-
verslun Jónasar Tómas-
sonar.
Besta mynd keppninnar að mati dómnefndar. Ljósmynd-
arinn er Eggert Marinósson í Reykjavík.
Þessi mynd bar sigur úr býtum í flokknum um ,,Náttúru-
perlur á Vestfjörðum. Ljósmyndari er Lilja Magnúsdóttir á
Tálknafirði.
Þessi mynd sigraði í flokknum ,,Lífríki til sjávar og sveita".
Ljósmyndari er Áslaug Þorvaldsdóttir í Borgarnesi.
Þessi mynd sigraði í flokknum ,Vinir veganna". Ljósmyndari
er Jóhann Björn Arngrímsson á Hólmavík.