Lindin

Árgangur

Lindin - 01.04.1989, Blaðsíða 10

Lindin - 01.04.1989, Blaðsíða 10
LINDIN Einar Kr. Hilmarsson: Uppbyggingin í Vatnaskógi Sumarið 1923 hófst sumarstarf KFUM í Vatnaskógi. Þá hafði félagið fengið til umráða einn hektara lands í skóginum og var einn vikulangur flokkur haldinn þar það sumar. Síðan eru liðin 66 ár og starfið í Vatnaskógi hefur vaxið mikið. Árið 1929 var Skógarmannaflokkurinn stofnaður og 1949 fengu Skógarmenn umráðarétt yfir öllum skóginum, sem er um 220 hektarar. Myndirnar hér á opnunni sýna þær byggingar sem risið hafa í Vatnaskógi á þeim 50 árum sem liðin eru frá þvví að hafist var handa við byggingu fyrsta skálans sumarið 1939. GAMLISKÁLINN var byggður á árunum 1939-43 eða 16 árum eftir að fyrsti flokkurinn fór í Skóginn. Hann hefur orðið tákn Vatnaskógar í hugum margra. Þar eru nú svefnpláss fyrir 38 drengi og 6 starfsmenn og auk KAPELLAN var byggð árið 1948. Hún leysti af hólmi bænatjaldið sem fram að því var alltaf reist á sínum stað. Kapellan er lítið en mjög fallegt Guðshús. Geyma margir góðar minningar þaðan frá æskuárum, því Drottinn var þar sérstaklega nálægur. Kapellan var vígð 24. júlí 1949. 10 þess samkomusalur. Nauðsynlegt er á næstu árum að endurbyggja hann að miklum hluta og er það verk þegar hafið. BÁTASKÝLIÐ var byggt 1962. Bátafloti Skógar- manna óx ört og var orðið aðkallandi að koma upp aðstöðu fyrir viðhald og geymslu bátanna yfir veturinn. 15-20 bátar og kanóar eru nú í eigu Skógarmanna.

x

Lindin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lindin
https://timarit.is/publication/1539

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.