Lindin - 01.04.1989, Blaðsíða 12
LINDIN
Karlaflokkur
Fyrir miðja öldina var farið að
halda karlaflokk í Vatnaskógi. í
þessa flokka fóru þeir sem voru
orðnir of aldnir til að fara í hina
hefðbundnu flokka. Flokkar
þessir voru upphaflega vikulang-
ir en síðar fóru þeir að styttast
niður í eina helgi. Þeir lögðust
niður á sjöunda áratugnum.
Það var síðan vorið 1985 að
nokkrir ungir Skógarmenn vörp-
uðu fram hugmynd um að end-
urvekja karlaflokkinn. Hafin
var undirskriftasöfnun með það
fyrir augum. Undirtektir voru
góðar. Var því ákveðið að haldin
skyldi karlaflokkur í lok sumars
1986. Þessi flokkur fékk yfir-
skriftina „Slökun ’86“ og stóð
eina helgi. Þar komu saman á
fjórða tug Skógarmanna á öllum
aldri (18-99 ára) til andlegrar og
líkamlegrar slökunar. Vinsældir
flokksins hafa aukist með hverju
ári og á „Slökun ’88“ voru sam-
an komnir vel á áttunda tug
Skógarmanna í Lindarrjóðri.
Margt er sér til gamans gert í
þessum flokkum svo sem Skóg-
armanna er von og vísa. Stund-
aðar eru ýmsar íþróttir, farið í
bátsferðir út á Eyrarvatn,
gönguferðir út í skóginn, spjall-
að við gamla og nýja kunningja
um heima og geima og fleira það
sem mönnun dettur í hug. Þess á
milli er hagstæð kviðfylli. Ekki
má gleyma samverustundunum.
Biblíulestur er að morgni laugar-
dags og messa á sunnudeginum.
Á kvöldin eru Skógarmanna-
kvöldvökur með léttu ívafi, sem
síðan eru endaðar með Guðs
orði. Að sjálfsögðu er laugar-
dagskvöldið veizlukvöld.
„Slökun ’89“ verður í haust,
og vænta má að þangað streymi
Skógarmenn á öllum aldri til
hvíldar og uppbyggingar. Þá
væri gaman að sjá þar ný andlit.
12