Lindin

Árgangur

Lindin - 01.09.2003, Síða 9

Lindin - 01.09.2003, Síða 9
 *1W Karlmenn hvíla lúin bein í Oddakoti í Vatnaskógi. Alfa-námskeið Á Alfa-námskeið- um er fjallað um grundvallarspurningar lífsins í opnu og vinsamlegu umhverfi. Alfa-námskeið var fyrst kennt hér á landi innan KFUM og KFUK árið 1996 en alls hafa lið- lega fjórar milljónir manna sótt slík nám- skeið í yfir 130 löndum. Hvert námskeið stend- ur í 10 vikur. Kynningar- kvöld verður þriðju- daginn 16. september kl. 20:00. Það er öllum opið án frekari skuldbindinga. Feðgahelgi Fyrsta feðgahelgin var haldin ÍVatnaskógi haustið 1994 og naut strax mikilla vinsælda. Markmiðið með slíkum helgum er að styrkja feður í föður- hlutverkinu, efla tengsl feðga og gefa þeim kost á skemmtilegri og uppbyggilegri dvöl í fögru umhverfi. I ár voru þrjár feðgahelg- ar haldnar í Vatnaskógi og hófst sú síð- asta að kvöldi föstudagsins 5. september. Flugelda- sala Dagana 28.-31. des- ember stend- ur KFUM og KFUK í Reykjavík fyrir flugeldasölu til styrktar starfi félagsins. Salan fer fram í húsi félagsins við Holtaveg 28. Heilsudagar karla Heigina 12 -14. september bjóða Skógarmenn KFUM 17-99 ára karlmönnum að koma á endurnærandi heilsudaga íVatnaskóg. Á helginni er fléttað saman skemmtun, fræðslu og helgihaldi ásamt hollum og góðum mat, hæfilegri hreyfingu og dálitlu vinnuframlagi við hæfi hvers og eins. Verðlagning tekur mið af því endar kost- ar helgin einungis 4.500 kn Hvatur Si'ðan á vordögum árið 2000 hefur sportfélagið Hvatur staðið fyrir fjölbreyttri hreyfiiðkun við allra hæfi í nafni KFUM. Félagið er öllum opið, jafnt konum sem körlum, 15 ára og eldri. Markmiðið er heilbrigð sál í hraustum líkama. I haust hyggst félagið bjóða upp á badminton, blak, borðtennis, göngu- ferðir; handbolta, innanhúss- knatt- spyrnu, körfubolta, skák og útifótbolta. Hægt er að skrá sig á tölvupóstlista fyrir einstakar deildir sem menn hafa áhuga á. Jólatréssala Mörgum þykir það setja sérstakan hátíðarblæ á undirbúning jólanna að fara saman út í náttúruna á aðventunni og höggva sitt eigið jólatré. Laugardaginn 13. desember stendur fólki til boða að koma í Vatnaskóg og höggva jóla- tré í samráði við starfsfólk á staðnum. I Vindáshlíð er sams konartilboð ígangi sunnudaginn 14. desember kl. 11-14. KSF Kristilegt stúdentafélag (KSF) var stofnað 17. júní 1936 og hefur alla tíð átt í nánu samstarfi við KFUM og KFUK. Félagið starfar einkum í þágu skólafólks á aldrinum 20-30 ára og er með vikulegar samverustundir í húsnæði KFUM og KFUK við Holtaveg kl. 20:30 á laugar- dagskvöldum. KSS Kristileg skólasamtök (KSS) voru stofnuð árið 1946 og hafa alla tíð starfað í nánu samstarfi við KFUM og KFUK. Sam- tökin starfa einkum á meðal skólafólks á aldrinum 15-20 ára og eru með vikulega fundi í húsnæði KFUM og KFUK við Holtaveg kl. 20:30 á laugardagskvöldum. Mæðgnahelgi Sumarbúðir KFUM og KFUK í Ölveri buðu í fyrsta sinn upp á mæðgnahelgi haustið 1998 og naut hún strax mikilla vinsælda Ii1<t og feðgahelgarnar ÍVatnaskógi. Markmiðið er að efla tengsl mæðgna og gefa þeim kost á skemmtilegri og upp- byggilegri dvöl í fögru umhverfi. I haust býðurVindáshlíð upp á slíka helgi 26.-28. september og Ölver 3.-5. október Námskeið Biblíuskólinn við Holta- veg býður á hverjum vetri upp á kvöld- og helgarnámskeið sem opin eru al- menningi. Biblíuskólinn er samstarfsverk- efni KFUM og KFUK, Kristniboðssam- bandsins (SIK) og Kristilegu skólahreyf- ingarinnar (KSH). Hann hefur það meg- inhlutverk að vera biblíu- og leiðtoga- skóli félaganna sem standa að rekstri hans og ná til almennings með fræðslu um Biblíuna og kristna trú. Nánari upplýsingar í síma 588 8899 og á vefslóðinni www.kfum.is. Einnig er hægt að koma með fyrirspurnir á netfangið kfum@kfum.is.

x

Lindin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lindin
https://timarit.is/publication/1539

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.