Lindin - 01.09.2003, Blaðsíða 13
Það sem Agnesi þótti eftirminnilegast úr sínum flokki var náttfatap-
artýið. Hér fara foringjar í 2. flokki í sumar á kostum í einu slíku
partýi.
Vindáshlíð
Fyrst lá leiðin ÍVindáshlíð þar
sem nálægt 60 stúlkur voru um
það bil að kveðja staðinn eftir
vikulanga dvöl. Þær höfðu kom-
ið sér fyri'r í grösugu skógar-
rjóðri í grennd við kirkjuna í
Vindáshlíð og sungu þar í kapp
við þresti og þúfutitlinga
„Drottinn er minn hirðir" og
fleiri söngva sem þær höfðu
lært. Eftir að hafa hlustað um
stund tók Lindin þær Agnesi úr
Kópavogi, Ernu úr Arbænum og
Sigríði úr efra Breiðholti afsíðis í
stutt spjall. I Ijós kom að þær
höfðu allar tekið þátt í kirkju-
legu barnastarfi að vetri til og
okkur lék forvitni á að vita
hvernig þeim hefði líkað sumar-
dvölin íVindáshlíð og hvað þær
hefðu haft fyrir stafni.
A: Það er búið að vera ofboðs-
lega gaman. Hver dagur byrjar
með fánahyllingu og biblíulestri
en svo tekur við fjölbreytt dag-
skrá allan daginn. A kvöldin eru
síðan kvöldvökur þar sem við
stelpurnar undirbúum leikrit og
leiki. Eitt kvöldið var líka nátt-
fatapartý sem foringjarnir sáu
um. Það var svaka stuð.
S: Hæfileikakvöldið var líka
mjög skemmtilegt. Það voru
mjög margar stelpur sem tóku
þátt í því og ein stelpan hermdi
t.d. eftir hermanninum í Harry
Potter Hún gerði það ótrúlega
vel og náði meira að segja
enska hreimnum alveg. Svo var
bæði íþróttakeppni og brennó-
keppni í flokknum. I brennó er
keppt á milli herbergja. Gljúfra-
hlíð vann í okkar flokki en for-
ingjarnir rústuðu þeim síðan.
E: Einn daginn fórum við í
gönguferð upp á Sandfell sem
er fjallið fyrir ofan Vindáshlíð. Eg
er mjög lofthrædd en komst
samt alla leið og síðan hlupum
við niður hinum megin og feng-
um okkur vatn að drekka í tjörn
sem þar er enda vorum við að
drepast úr þorsta.Við skoðuð-
um líka tvo fallega fossa í flokkn-
um sem heita Pokafoss og
Brúðarslæða.
Voruð þið að koma
í fyrsta sinn íVindáshlíð?
A: Eg var að koma í fyrsta sinn
en á örugglega eftir að koma
aftur seinna.
E: Eg kom hingað fyrst í vor
með krökkum úr Arbæjarkirkju
á mót sem var haldið fyrir 10-
12 ára krakka. Það var mjög
gaman. Aður hef ég verið í
sumarbúðum við Ulfljótsvatn og
að Reykjum í Hrútafirði.
S: Eg hef verið hér einu sinni
áður í dvalarflokki en oft komið
hingað í heimsókn með Magneu
Sverrisdóttur frænku minni.
Finnst ykkur
gaman að syngja?
Allar: já, og við höfum lært
mörg ný og skemmtileg lög í
Vindáshlíð!
A: Eg syng líka í Kársneskórnum
og finnst það mjög gaman.
Hvað fannst ykkur eftir-
minnilegast í flokknum?
E: Gönguferðin upp á Sandfell.
A: Náttfatapartýið.
S: ALLT!
„Einn daginn
fórum við í
gönguferð upp
á Sandfell sem
er fjallið fyrir
ofan Vindás-
hlíð. Ég er mjög
lofthrædd en
komst samt alla
leið og síðan
hlupum við nið-
ur hinum meg-
in og fengum
okkur vatn að
drekka í tjörn
sem þar er,
enda vorum
við að drepast
úr þorsta."
Ölver
Næst lá leiðin í Ölver þar sem
KFUM og KFUK starfrækja sum-
arbúðír undir Hafnarfjalli í skógi
vaxinni hlíð. Þar slóst Lindin í
fylgd með tæplega 40 stúlkum
sem voru á leið niður að
Hafnará til að busla dálítið í
góða veðrinu. Síðan voru
Frænkurnar Tinna
og Sandra voru tvær
vikur í Ölveri í júlí.
Af tungunni í Söndru
sést að berin voru
snemma á ferðinni
íár!