Lindin

Árgangur

Lindin - 01.09.2003, Blaðsíða 27

Lindin - 01.09.2003, Blaðsíða 27
þarf þá að vera verðskuldað því innihaldslaust hrós gerir lítið gagn. I öllum samskiptum okkar við annað fólk getum við haft áhrif á sjálfsmynd þess og því þurf- um við að vanda okkur í mannlegum samskiptum. Tökum sem dæmi að Oli litli kroti á stofu- vegginn heima hjá sér með tússpenna, þá er mikilvægt að kenna honum að það sé ekki vel lið- ið. Það er hægt að a) segja honum að hann sé óþekkur; Ijótur strákur en það er líka hægt að segja honum b) að það sé strang- lega bannað að krota á stofuveggi og að mamma og pabbi verði ekki glöð ef hann geri þetta aftur Fyrri að- ferðin ræðst á persónu Ola og getur því haft skaðleg áhrif á það hvernig hann lítur á sjálf- an sig en síðari aðferðin finnur að því sem hann gerði. Það er góð regla í samskiptum við ann- að fólk að gera einungis athuga- semd við þann verknað sem okkur kann að mislíka í stað þess að ráðast á persónu þess sem verknaðinn vann. Hvernig getur trúin styrkt sjálfs- mynd okkar? Gullna reglan sem Jesús kenndi lærisveinum sínum leggur áher- slu á að við eigum að koma fram við náunga okkar eins og við kjósum að komið sé fram við okkur.Við viljum frekar að fólk finni að hegðun okkar en að ráðist sé á persónu okkar og því ættum við að gera slíkt hið sama.Við styrkjum sjálfsmynd annarra með því að fiylgjægullnu reglunni og koma fram við ann- að fólk af virðingu. Neikvæðar hugsanir í eigin garð og annarra einkennir gjarn- an fólk með slæma sjálfsmynd. Til þess að geta verið sátt við okkur sjálf verðum við að læra að meta okkur eins og við erum og leyfa öðrum í kringum okkur að njóta þess jákvæða í fari okk- ar Það er mikill styrkur fólginn í því að trúa á Guð og hugsa til þess að hann, sá sem skapaði allt, elskar mig eins og ég er Guð blessar okkur með mis- munandi hæfileikum og hann vill að við lærum að meta það sem hann hefur gefið okkur Fyrir honum er enginn maður öðrum fremri og enginn hæfileiki merki- legri en annar Ef við tileinkum okkur sama viðhorf þá farnast okkur vel. Rannsóknir sýna að það að geta fyrirgefið sjálfum sér og öðrum er nauðsynlegt til þess að geta verið sáttur við sjálfan sig. Þegar við neitum að fyrir- gefa öðrum sem gert hafa á hlut okkar höldum við fast í sársaukann sem því fylgdi og leyfum honum að særa okkur áfram. Sá sem trúir á Jesú hefur verið fyrirgefið allt og sú fyrirgefning er miklu meiri en nokkur mað- ur getur fyrirgefið því Guð fyrirgefur og gleymir og minnir okkur ekki aftur á brot okkar Kristinn maður sem þekkir fyrirgefningu Guðs á því auðveldara með að fyrirgefa öðrum einstaka brot og um leið losar hann sig við byrðina sem því fylgir að geta ekki fyrirgefið. Það sem kemur helst í veg fyrir að við njótum þess að vera til sem manneskjur er sektarkennd yfir því sem liðið er og áhyggjur vegna framtíðarinn- arVið þurfum því að læra að njóta augnabliksins og takast svo á við erfiðleikana þegar þeir verða á vegi okkar I bréfi Páls postula til Filippímanna erum við hvött til að vera glöð, ekki of áhyggjufull og að leita til Guðs með óskir okkar í bæn, beiðni og þakkargjörð (Fil. 4). Það er reynsla mín að kristin trú sé gott veganesti fyrir lífið, geti styrkt sjálfsmynd okkar hjálpað okkur að lifa í sátt við okkur sjálf og aðra og njóta þess að vera til. Sá sem hefur góða sjálfs- mynd kann að meta kosti sína, er reiðubúinn að vinna með galla sína og sættir sig við að vera ekki fullkominn. Það sem kemur helst í veg fyrir að við njótum þess að vera til sem mann- eskjur er sekt- arkennd yfir því sem liðið er og áhyggjur vegna framtíð- arinnar.

x

Lindin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lindin
https://timarit.is/publication/1539

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.